Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Sumarið sem af er hefur verið
verulega skrítið, laxinn mætti alls
ekki á stórum hluta landsins, eins
árs laxinn, en einn og einn stórlax
hefur veiðst.
„Þetta var meiri háttar, með
þunnan taum og silungaflugu, þetta
var líka 70 mínútna barátta og mikið
fjör,“ sagði Haraldur Eiríksson, en
hann landaði 20 punda bolta í Laxá
í Dölum og mátti ekki taka mikið
á laxinum.
Og á sama tíma var Ytri Rangá að
komast á fleygiferð og áin að gefa
yfir hundrað laxa á hverjum degi.
„Þetta gengur vel hjá okkur,
frábær veiði,“ sagði Jóhannes
Hinriksson við Ytri Rangá.
Ytri Rangá er langefsta veiðiáin.
Inga Lind Karlsdóttir var að hætta
veiðum í Húseyjarkvísl þar sem hún
hefur veitt vel af fisk og stóra.
„Alltaf gaman í Húseyjarkvísl,
hérna erum við Árni búin að veiða
marga fiska,“ sagði Inga Lind enn
fremur.
„Smálaxinn mætir ekki ennþá,
hnúðlaxinn kom í torfum og hvergi
hefur verið hægt að fá maðka varla
í sumar. Þetta hefur verið skrítið það
sem af sumri.“
Einn og einn stórlax en samt skrítið
Fjör hjá ungum veiðimönnum
við Brynjudalsá
Brynjudalsá í Hvalfirði er lax-
veiðiá sem gefur vel af laxi á hverju
sumri og núna er áin komin í 100
laxa og það er víða kominn lax í
hana. Jafnvel í innstu veiðistaði
inni á dal.
Ungir veiðimenn voru á árbakk-
anum fyrir fáum dögum og skemmtu
sér vel, enda veiðin góð og fiskur
að taka fluguna.
„Jú, þetta var gaman, við feng-
um 7 laxa með krakkana en þetta er
árleg veiðiferð. Í fyrra var það Laxá
í Dölum og þar veiddist vel,“ sagði
Jón Þór Júlíusson, sem byrjaði korn-
ungur að veiða með föður sínum,
Júlíusi Jónssyni.
,,Áin er komin í 100 laxa og við
fengum fína 7 laxa á fluguna vítt
og breitt um ána. Það þarf kannski
aðeins að aðstoða liðið, en þau eru
áhugasöm og vilja landa fisknum
alveg sjálf,“ sagði Jón enn fremur.
Bara er veitt á flugu í Brynjudalsá
eins og Laxá í Kjós í næsta nágrenni.
Eina áin sem leyfir maðk á svæðinu
er Botnsá og þar voru veiðimenn að
fá fisk í vikunni.
Holdið er veikt og girndin
kenjótt ótukt sem fátt fær
hamið. Sé girnd óendurgoldin
getur reynst nauðsynlegt að
grípa til hjálparmeðala til að
vekja frygð þess sem hugur er
borinn til.
Hjálparmeðulin eru
margvísleg og ekki ólíklegt að
eitt þeirra kunni að virka.
Ástarhvatar eru fjölbreytilegir
og ekki víst að allir hafi sömu
virkni á allar manneskjur. Það
sem verkar örvandi á einn getur
reynst letjandi á annan. Matur og
ýmiss konar drykkir hafa löng-
um þótt góðir frygðarhvatar og
ekki tilviljun að fólk í tilhugalíf-
inu fer oft út að borða saman.
Aðrir safna í kringum sig hlutum
sem eiga að hafa örvandi áhrif
á gredduna og losa um blygð-
unarsemina. Þetta geta verið
erótískar bókmenntir, dónalegar
matreiðslubækur og handbæk-
ur um ástarlífið eða listmunir,
myndlist, tónlist, myndbönd eða
skúlptúrar.
Það sem telst erótík eða
sjálfsögð kynhegðun í einu
menningarsamfélagi getur
talist klám og öfuguggaháttur
í öðru. Í Austurlöndum er því
víða trúað að nashyrningshorn
auki kyngetu karla, Grikkjum
til forna þótti ekkert tiltökumál
þótt eldri karlmenn ættu sér
unga elskhuga af sama kyni
og í dag þykir samkynhneigð
ekkert tiltökumál víða um heim
en stutt er síðan slíkt var álitið
argasta óeðli. Á sama hátt hafa
mismunandi ástarhvatar tengst
ákveðnum tímabilum sögunnar
og mismunandi menningu.
Brönugrös hafa lengi verið
tengd ástargaldri. Þau þóttu og
þykja eflaust enn góð til að vekja
ástir séu þau lögð undir kodda
pilts eða stúlku. Seyði rótarinnar
þótti einnig gott til að örva kyn-
hvöt húsdýra. Líklegt er að trúin
á frygðarkraft brönugrasa tengist
lögun rótarinnar sem þykir líkj-
ast kynfæri karlmanns. Sé ljóns-
lappi tíndur á Jónsmessunótt er
sagt að seyði plöntunnar hafi þá
náttúru að auka kyngetu beggja
kynja.
Karlmenn sem eru svo
óheppnir að stóra táin á þeim er
lengri en táin við hliðina eiga
að kvænast niður fyrir sig en
sé stóra táin styttri eiga þeir að
giftast upp fyrir sína stétt. Sagt
er að karlmenn geti lesið hversu
oft þeir kvænast með því að telja
hrukkurnar á handarbakinu ofan
við litla fingur.
Til þess að vita hvort piltur
eða stúlka eru óspjölluð eru ýmis
ráð. Ef baldursbrá er sett í stól
stúlkunnar og hún látin setjast á
hana getur stúlkan ekki staðið
upp aftur nema hún sé hrein mey.
Sé kvikasilfur látið í lófa pilts
eða stúlku liggur það kyrrt ef
þau eru hreinn sveinn eða mey,
annars skelfur það og hendist til
í lófanum. Vilji ungur maður ná
ástum stúlku á hann að skera sig
til blóðs og koma blóðinu ofan í
hana með einhverjum ráðum en
má tryggja að kona elski menn
með því að gefa henni saxað
rjúpuhjarta að borða.
Til að bæta samlyndi og hjú-
skaparfar hjóna á karlmaðurinn
að ganga með hrafnshjarta á sér.
Ef konan er ófrjósöm skal gefa
henni kaplamjólk að drekka
eða taka eista úr ref, þurrka það
í skugga og mylja út í vín og
gefa henni að drekka skömmu
eftir að hún hefur á klæðum,
einnig er talið gott að konan hafi
hærra undir lendum en herðum
við samfarir til að auka líkur á
getnaði. / VH
Ástarhvatar og
stinningargrös
STEKKUR
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
HLUNNINDI&VEIÐI
Haraldur Eiríksson með stærsta laxinn í Laxá í Dölum.
Mynd / Árni
Myndir / Jón Þór.
Veiðin hafin í Fjarðará í Borgarfirði eystri
Fjarðará, ásamt Þverá í
Borgarfirði eystri, er falleg sjó-
bleikjuá sem rennur um undir-
lendi hins ægifagra og margróm-
aða Borgarfjarðar eystri. Frá
náttúrunnar hendi eru þessar ár
hentugastar fyrir sjóbleikju, en
þó veiðast nokkrir laxar á hverju
sumri.
Veiðisvæðið er allt um 20 km og
fylgir Þverá með veiðisvæðinu.
Sjóbleikjan er byrjuð að ganga
upp í Fjarðará og Þverá. Um síð-
ustu helgi veiddust vænar bleikjur
um alla á.
Fjarðará er síðsumarsá og nú fer
í hönd aðalveiðitímabilið í ánni.
Áin hefur verið lítið stunduð fram
að þessu.
„Veiðin er að byrja í Fjarðaránni
þessa dagana, bleikjan er byrjuð að
gefa sig,“ sagði Guðgeir Sigurjónsson
er við heyrðum í honum.
Þetta er gaman
Það er alltaf gaman að veiða lax,
eða maðkinn. Finna kippina þegar
hann byrjar að taka agnið og allt í
einu verður allt brjálað.
„Veiðin er skemmtileg og virkilegt
kikk að veiða laxa,“ sagði Anton
Bender, sem veiddi tvo laxa í Staðar-
hólsá í Dölum fyrir fáeinum dögum
á maðkinn.
„Jú, veiðin er spennandi og við pabbi
vorum að spá í að fara á Þingvelli se-
inna í sumar,“ sagði Anton enn fremur.
veiðimönnum fjölgar í veiðinni, Stan-
gaveiðifélag Reykjavíkur hef ur staðið
sig vel að bjóða ungum veiðimön-
num að renna fyrir laxa nokkrum sin-
num á sumri í Elliða ánum. Þar hafa
orðið til nokkrir veiðimenn. Veiði-
félögin við Hlíðarvatn í Selvogi hafa
boðið í veiði einu sinni á sumri. Þetta
eykur allt áhuga á veiðiskapnum. En
betur má ef duga skal.
í Dölum. Myndir / G. Bender
Sumarið byrjaði vel
í Breiðdalnum
„Þetta er búið að vera gott sumar
en það byrjaði með látum í
Breiðdalsá, en ég veiddi í fyrsta
hollinu í ánni 74 og 89 sentímetra
laxa á Skammadalsbreiðunni,“
sagði Jón Skelfir Ársælsson er við
heyrðum í honum með veiðina í
sumar.
„Já, þetta voru frískir laxar og
tóku vel í enda nýkomnir úr sjó.
Annar laxinn tók Micky finn skull
og hinn Frigga brass túbu, mér finnst
Skammadalsbreiðan skemmtilegur
flugustaður og þar geta verið stórir
laxar. Svo fór ég í Elliðaárnar og
veiddi lax á buffið með Haffa vini
mínum sem veiddi lax á fluguna.
Síðan er ég aðeins búinn að fara í
silung og vorum við í Hlíðarvatni um
daginn en fengum ekki högg. Það var
verulega rólegt þar en góð útivera,“
sagði Jón enn fremur.