Bændablaðið - 24.08.2017, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Næturfrost í Þykkvabæ fyrr
í ágúst skemmdi talsvert af
kartöflugrösum og mun þannig
draga úr uppskeru í haust. Að
sögn kart öflubónda í Önnuparti
er hætta á meira næturfrosti í
kortunum og því hættulegir daga
framundan.
Guðmundur Harðarson,
kartöflubóndi í Önnuparti, segir
að meiri hluti kartöflugarða
Þykkbæinga hafi orðið fyrir
einhverjum skemmdum í
næturfrosti fyrr í ágúst. Sjálfur
ræktar Guðmundur kartöflur á 30
hekturum í tólf görðum og segir hann
að af þeim séu skemmdir í ellefu.
„Skemmdirnar eru mismiklar, allt
frá því að vera smávægilegar í að
vera mjög miklar.“
Að sögn Guðmundar er allt
of snemmt að gera sér grein fyrir
hversu mikið fjárhagslegt tjón vegna
frostsins er, en að hans sögn gæti
það verið um 20% uppskerunnar
ef ekki verða frekari áföll.
Mismiklar skemmdir
„Garðurinn sem slapp er um tveir
og hálfur hektari þannig að það
sér mismikið á 27,5 hekturum hjá
mér. Skemmdirnar valda því að
undirvöxturinn verður hægari hér
eftir og ekkert sem má koma upp
á til að sprettan verði enn minni og
uppskeran lítil. Reyndar er sýnt nú
þegar að uppskeran verður minni
vegna frostsins en ef allt gengur að
óskum getur hún orðin sæmileg.
Garðar, sem eru út við
Hólsárbakka og sunnan við
byggðina, sluppu best en garðar
ofar í landinu fóru verst.
Það er kartöflugarður nánast við
hliðina á sjálfvirku veðurstöðinni í
Þykkvabæ sem er í túnfætinum hjá
mér við Önnupart. Sá garður er svo
til alveg óskemmdur og veðurstöðin
sýnir skaðlítið frost og það sýnir
að frostið hefur verið harðar ofar
í landinu.“
Skemmdir draga úr uppskeru
Guðmundur segir að grösin sem
skemmdust í frostinu jafni sig
ekki. „Ég er hræddur um það séu
hættulegir dagar framundan sem
geti valdið enn meiri skemmdum
á grösunum.“
Yrkin sem Guðmundur ræktar eru
gullauga, rauðar íslenskar, premier
og milva og segir hann engan mun
eftir yrkju hvað skemmdir varðar.
„Ég kíkti sums staðar undir grös
sem hafa fallið og kartöflurnar
eru enn fremur litlar. Sú stærsta
af gullauga skreið varla í 50
millimetra.“
Lítið farinn að taka upp
„Fram til þessa hef ég eingöngu
tekið upp kartöflur sem hafa verið
ræktaðar undir plasti og til að
afgreiða pantanir á sumarmarkað.“
Guðmundur segir að skemmdir
eins og garðarnir í Þykkvabæ hafa
orðið fyrir seinki fyrir upptöku
kartaflna í haust vegna þess að
vöxturinn er hægari. „Ef við aftur
á móti fáum á okkur meira frost og
grösin gjörfalla breytist staðan. Að
vísu er ágætt að kartöflur geymist
í jörðinni í viku eða hálfan mánuð
eftir að grösin falla áður en þær eru
teknar upp. Hýðið verður sterkara og
það sér minna á kartöflunum og þær
verða fallegri í hillum verslananna
fyrir vikið.“
Grösin mega ekki verða fyrir
meiri skemmdum
Markús Ársælsson, kartöflubóndi í
Hákoti í Þykkvabæ, tekur undir með
Guðmundi í Önnuparti og segir að
nánast allir garðar í Þykkvabæ hafi
orðið fyrir mismiklum skemmdum.
„Ég rækta kartöflur á 18 til 20
hekturum og það sjást skemmdir á
öllum görðunum en mismiklar.
Þar sem skemmdirnar eru
verstar dregur úr sprettu en þar sem
skemmdirnar eru minnstar munu
þær ekki hafa nein áhrif.“
Að sögn Markúsar er það sem
skiptir mestu máli núna að það komi
ekki aftur frost á grösin. „Gerist
það aftur verða grösin fyrir miklu
meira áfalli og þá erum við að tala
um mikið tjón.
Það er ekki nema miður ágúst
núna og ef ekkert gerist frá í
september er tjónið ekki svo mikið
og við í þokkalegum málum. Útlitið
er ekki gott fyrir næstu helgi og ef
himinninn heldur áfram að vera
skafheiðríkur eins og hann er núna
er töluverð hætta á næturfrosti. Hver
dagur er því dýrmætur fyrir okkur
hvað uppskeruna varðar.“ /VH
Gull til Gústafs
Gústaf Ásgeir Hinriksson keppti nú á
sínu þriðja heimsmeistaramóti, og er
á sínu síðasta ári í ungmennaflokki.
Hann ætlaði sér því greinilega stóra
hluti eftir að hafa orðið af titli á
síðasta móti. Hann tefldi fram Pistli
frá Litlu-Brekku í fjórgangi og
slaktaumatölti og komu efstir inn
í úrslit eftir forkeppni fjórgangs.
Þeir héldu toppsæti sínu allt til
loka og sigruðu með einkunnina
6,80. Þeir urðu svo í þriðja sæti í
úrslitum slaktaumatölts með 7,00
í einkunn og silfur í samanlögðum
fjórgangsgreinum og gátu gengið
ansi sáttir frá móti.
Clara Olsson frá Svíþjóð sigraði
slaktaumatölt á Þór frá Kaldbak
með einkunnina 7,13 Brynja
Sophie Arnason frá Þýskalandi var
önnur á Skugga frá Hofi I en hún
hlaut jafnframt heimsmeistaratitil í
samanlögðum fimmgangsgreinum
ungra knapa.
Þá fór hin þýska Olivia Ritschel
og Alvar frá Stóra-Hofi mikinn í
töltkeppni ungmenna og sigraði af
nokkru öryggi. Hún hlaut einnig
heimsmeistaratitil í samanlögðum
fjórgangsgreinum ungra knapa.
Íslendingar áttu fulltrúa í úrslitum
töltsins. Finnbogi Bjarnason á
Randalín frá Efri-Rauðalæk urðu
þar í fjórða sæti og hækkaði sig um
eitt sæti frá forkeppni.
Fjaðurmagnaður Máni
Ein af stjörnum mótsins reyndist
vera Máni Hilmarsson og Prestur
frá Borgarnesi. Þeir voru valdir
inn í íslenska landsliðsins af
liðsstjórum en hafa átt góðu gengi
að fagna á mótum heima. Þeirra
aðalkeppnisgrein var fimmgangur,
en tóku þó þátt í slaktaumatölti og
skeiðgreinum.
Þeir sigruðu fimmgang
ungmenna með glæsibrag, hlutu
6,79 í lokaeinkunn og langhæstu
einkunn knapa fyrir skeið 8,17. Við
mótsslit var Máni einnig heiðraður af
alþjóðasamtökum hestamannafélaga,
FEIF, fyrir prúðmannlega
reiðmennsku og hlaut fyrir vikið
FEIF-fjöðrina. /ghp
Máni Hilmarsson hlaut FEIF-fjöðrina fyrir fumlausa reiðmennsku á mótinu. Öruggir skeiðsprettir skiluðu honum
Irene Reber og Þokki frá Efstu-Grund fóru mikinn á mótinu.
Þórarinn Eymundsson og Narri frá Vestri-Leirárgörðum þurftu að sætta sig
Næturfrost skemmdi kartöflugrös í Þykkvabæ
Skemmd grös í kartöflugarði í
Þykkvabæ.