Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 41

Bændablaðið - 24.08.2017, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 að markmiði. Í því felst m.a. matvælaframleiðsla sem vinnur með náttúrulegu umhverfi. Ein af megináherslum vistræktar er tengsl milli einstakra þátta og staðsetningar þeirra innan kerfis með það fyrir augum að mynda stöðugt og afkastamikið samfélag sem líkir eftir samvirkni og skilvirkni náttúrulegra vistkerfa. Vistrækt er áströlsk að uppruna en hugmyndafræðin hefur breitt úr sér víða um heim, sér í lagi í Asíu, Afríku og Eyjaálfu. Garðyrkjuaðferðir vistræktar eiga því til að byggja á heitu loftslagi og þurrum jarðvegi. Því felst ákveðin áskorun í því að aðlaga vistræktaraðferðir að íslenskum aðstæðum. „Ég hef viljað að ræktunin okkar sé æt og sem mest fjölær. Við höfðum einnig alltaf verið ákveðin í því að ræktunin okkar yrði lífræn. Við vildum leita leiða til að vinna með náttúrunni í stað þess að berjast við hana. Fólk hefur verið að vinna með náttúrunni gegnum aldirnar og við þurfum bara að rifja upp aðferðir sem notaðar voru. Um allan heim hefur fólk kunnað aðferðir til að nýta vatnið, nýta hitann, nýta skjólið og samræktun svo ég nefni eitthvað.“ Dagný og Sigurður hafa því prófað sig áfram með ýmsar aðferðir í matjurtarræktun sinni. Sumt hefur virkað vel og annað ekki. „Það sem er flókið við það er að þetta er svo margþætt. Ákveðnar aðferðir geta verið að virka eitt sumarið og ekki það næsta. Þetta er ekki vísindaleg vinna hjá okkur. Þótt við skráum mjög mikið niður hvað við erum að gera og fylgj umst vel með því þá tel ég að það þurfi heila mannsævi til að læra hvað virkar í alvöru. Maður þarf að minnsta kosti að hafa lifað mörg mismunandi sumur,“ segir Dagný og nefnir dæmi. „Fyrripart sumars óx salatið illa hjá okkur og ég leitaði að ástæðu þess í aðferðum mínum og áburðargjöf og einhverju slíku. Svo hitti ég konu sem hafði svipaða sögu að segja af sér og öðrum í kringum sig. Þá er það bara þetta ár og árferði, hvað sem kann að útskýra það, salatið var bara lélegt.“ Uppskeran undirstaða fæðunnar Það kennir ýmissa grasa á Skyggnissteini. Dagný og Sigurður rækta bæði kartöflur og rófur af ýmsum gerðum, kúrbít og kuldaþolna tómata, maís, baunir, aspas, vínber, kál í öllum stærðum og gerðum, innlend og erlend ber, ávaxtatré, kryddjurtir, tejurtir og svo mætti lengi telja. Enda segir Dagný þau rækta allt sem þeim dettur í hug. Á landinu er fjölbreytt flóra af villtum jurtum sem þau nýta einnig mjög mikið. Umfang uppskerunnar er á þann veg að þau sækja lítið í grænmetisdeildir matvöruverslana. „Það hefur verið stefnan að borða aðallega uppskeruna okkar. Að sjálfsögðu kaupum við stundum eitthvað grænmeti. En við lítum á það sem áskorun, til að mynda að finna grænmeti sem vex sem lengst fram á veturinn og þolir töluvert frost. Þar get ég nefnt pastínökkur og rósakál sem dæmi. Einnig erum við að reyna að finna út úr því hvernig við getum fengið grænmeti sem fyrst á vorin. Þannig höfum við leyft svartrótinni að vera eftir á haustin og þá koma blöð á vorin sem hægt er að nota ásamt piparrótarblöðum, sjálfsáðu klettasalati í gróðurhúsunum o.fl.“ Dagný segir mikla vinnu fylgja því að rækta garðinn og sér í lagi meðhöndla uppskeruna svo hún geymist. Auk þess að ganga frá ferska grænmetinu haganlega, þá þurrka þau hráefnið, frysta það, salta, súrsa, sulta og setja í olíur. Auk þess halda Dagný og Sigurður fáeinar hænur sem sjá þeim fyrir eggjum til eigin nota. „Hænurnar lífga upp á tilveruna og hjálpa til með því að róta í haugum og beðum og leggja til áburð.“ Hraukbeðin hentugu Ein af þeim aðferðum sem Dagný og Sigurður kynntust gegnum vistrækt var notkun hraukbeða (e. Hugelkultur). Hraukbeð eru upphækkuð beð sem búin eru til með því að grafa trjádrumb og greinar ofan í jörðina, hylja með moltu og jarðvegi og rækta svo á beðinu. Með tímanum brotnar trjádrumburinn niður og losar þá hita og æskileg næringarefni fyrir jurtir í beðinu. „Ég held að hraukbeð séu eitthvað sem Íslendingar ættu að nota mikið af því þau er ótrúlega hentug fyrir okkar aðstæður. Beðið býr til skjól, hita og áburð og er praktískt á margan hátt.“ Lífræn umbreyting Með reynslu síðustu ára hafa Dagný og Sigurður komist að því að möguleikar matvælaframleiðslu hér á landi eru gríðarmiklir. „Við erum alltaf að sjá fleiri og fleiri fréttir af því við hvaða aðstæður matvæli eru framleidd. Við vitum ekki hvað fólkið sem ræktaði þetta hefur þurft að þola, við vitum ekki hvaða efni eru notuð. Svo getum við ekki treyst á alla þessa flutninga til landsins að eilífu. Mér finnst allt í lagi að kaupa framandi krydd og spennandi matvæli til að krydda lífið. Það er varla hægt að tala um fæðuöryggi ef framleiðslan byggir mest á innflutningi. Við ættum því að reyna að uppfylla grundvallarþarfir okkar sjálf.“ Hún segir einnig uppgang í lífrænni ræktun um allan heim enga tilviljun. Eftirspurn eftir lífrænum vörum hefur aukist svo um munar og í því liggi miklir möguleikar á Íslandi. Þá sé lífræn ræktun ekki síður spurning um náttúruvernd og heilsuvernd. „Það er mikilvægt að styrkja bændur í að umbreyta búum sínum í lífræn býli. Því það er mikið átak og getur tekið langan tíma, sérstaklega ef þeir eru með heybúskap. Það er um að gera að nýta þá styrki sem í boði eru, í því felast tækifæri,“ segir Dagný. Í búvörusamningi frá 2016 er gert ráð fyrir 35 milljónum á ári í aðlögunarstyrki til þeirra sem hafa byrjað lífræna aðlögun í landbúnaði undir eftirliti vottunarstofunnar Túns, en framleiðendur geta sótt um slíkan styrk í gegnum Matvælastofnun. Ræktun er vinna Dagný og Sigurður hyggja ekki á umfangsmikla matvælaframleiðslu, en hafa í litlum mæli verið að taka á móti fólki á Skyggnissteini þar sem þau kynna starfsemi sína og matbúa síðan handa gestum úr afurðunum. Dagný segir þó að afurðasala í litlum mæli gæti hentað þeim miðað við þær aðstæður sem staðurinn býður núna upp á, og bendir á reglugerð nr. 580/2012 um framleiðslu á matvælum undir smáræðismörkum, sem gefur frumframleiðendum afurða í litlu magni færi á að selja vöru til neytenda undir ákveðnum kringumstæðum. „Ef fólk ætlar að fara þessa leið sem við fórum, það er að gera margt og pínulítið af hverju, þá verður það að átta sig á því að maður býr ekki til mikla peninga úr því og því fylgir mikil vinna. Mér finnst gott að rifja upp það sem Hildur Hákonardóttir sagði í bókinni Ætigarðurinn. Þar stendur að maður eigi ekki að láta sér detta það í hug að hægt sé að rækta ofan í heila fjölskyldu og um leið vera útivinnandi í fullu starfi.“ Hún segir því að best sé að sníða ræktun sína eftir aðstæðum. „Ef þú ert útivinnandi með lítinn garð þá er t.d. mjög sniðugt að rækta salat og kryddjurtir.“ Opnir framtíðarmöguleikar Eftir að hafa búið bæði í sveit og borg í 4 ár hafa Dagný og Sigurður nú sest alfarið að á Skyggnissteini. Þar ætla þau að halda áfram að rækta garðinn og vinna úr þeim efniviði og tækifærum sem þeim bjóðast í náttúrunni og nálægð við víðernin á hálendinu. „Ég hef enga þörf á að skilgreina okkur. Mér finnst gaman að vasast í öllu mögulegu. Hluti af því er að rækta. Í því felst sköpun og það er gefandi.“ Þarna eru þau Dagný og Sigurður að prófa þekkt samval innan vistræktar sem nefndist „Systurnar þrjár“. Maískorn, kúrbítur og baunir eru ræktaðar saman og eiga að hjálpa hvert öðru. Maísplantan er sterkur burðarbiti fyrir baunaplöntur sem þarf eitthvað til að klifra upp. Baunirnar sækja nitur í jarðveginn sem gagnast bæði maísnum og kúrbítnum. Kúrbítur er skriðjurt sem þekur moldina, viðheldur því raka í jarðveginum og kemur í veg fyrir illgresi. Óupphituð gróðurhús reynast vel fyrir hitakærar plöntur. Hægra megin má sjá hina voldugu valurt sem nýtist bæði sem lækningajurt og er sérstök búbót í jarðvegsgerð. Matjurtarbeð hannað í mandölusniði að hætti vistræktar. Þarna má sjá lauka, fjölskyldan í leik og störf. Jurtasveipur sóttur í aðferðafræði vistræktar. Steinarnir þjóna sem hitagjafar og kryddjurtum er raðað eftir vatns- og birtuþörf. Það er stefna hjónanna að borða aðallega uppskeruna úr garðinum og þau þurfa sjaldan að sækja í grænmetisdeild matvöruverslana.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.