Bændablaðið - 24.08.2017, Page 42

Bændablaðið - 24.08.2017, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017 Véla-landbúnaðartækja- framleiðandinn TAFE er þriðji stærsti framleiðandi dráttarvéla í heiminum í dag og starfar í nánu samstarfi við framleið- endur AGCO og Massey Ferguson dráttarvélar. Skammstöfunin TAFE stendur fyrir Tractors & Farm Equipment Limited. Fyrirtækið, sem er ind- verskt og hét upphaflega Amalgamations, hóf framleiðslu á dráttarvélum árið 1960. Fyrirtækið hafði þá um tíma framleitt Perkins dísilvélar fyrir Standard Motor Products of India Limited sem setti saman Massey Ferguson traktora fyrir Indlandsmarkað. Stofnandi, aðaleigandi og stjórn- arformaður Amalgamations, herra Anantharamakrishnan, hafði mikla trú á grænu byltingunni og öllu sem viðkom landbúnaði. Það var hann sem tók ákvörðunina sem leiddi til þess að fyrirtækið hóf framleiðslu á dráttarvélum. Framleiða Massey Ferguson Skömmu eftir að ákvörðun Amalgamations um fram- leiðslu á eigin dráttarvélum var kynnt var henni slegið á frest. Framleiðendur Ferguson fóru þess á leit við fyrirtækið að það yfirtæki framleiðslu á Massey Ferguson á Indlandi. Samhliða því var nafni Amalgamations breytt í Tractors and Farm Equipment Limited, skammstaf- að TAFE. Fyrsti traktorinn sem TAFE framleiddi var Massey Ferguson 1035 og naut sú dráttarvél mikilla vinsælda á Indlandi. Fyrirtækið öðl- aðist á skömmum tíma yfirburðastöðu á dráttar- vélamarkaði á Indlandi. Á sjöunda áratug síðustu aldar seldust um 12.000 traktorar á ári á Indlandi og TAFE framleiddi um 7.000 af þeim. Verksmiðja í Malasíu og önnur í Tyrklandi Auk þess að reka fjórar dráttar- vélaverksmiðjur á Ind landi starf- rækir TAFE einnig dráttarvéla- verksmiðju í Malasíu og aðra í Tyrklandi. Sé litið til dráttarvéla- framleiðenda sem framleiða traktora sem eru undir 100 hestöfl er TAFE annar stærsti dráttarvélaframleiðandi í heimi. Vinsældir TAFE smátraktora hafa aukist mikið undanfarin ár og eru þeir mikið notaðir til að létta gegningar og alls kyns verk innandyra. Hönnun smátraktoranna, sem allir eru dísilknúnir, þykir einföld og litla sem enga kunnáttu í vél- fræði þarf til að gera við flestar bilanir þar sem í traktorunum er ekki flókinn tölvubúnaður. Árið 2009 hóf TAFE fram- leiðslu á 90 til 105 hestafla dráttarvélum fyrir bandaríska fyrirtækið AGCO. Í fyrstu fóru traktorarnir á markað í Tyrklandi og Suður-Afríku en í dag eru þeir seldir víðar um heim. Verksmiðja TAFE í Tyrklandi framleiðir aðal- lega traktora fyrir AGCO. Tebúgarður og 150.000 traktorar Í dag framleiðir fyrirtæk- ið dráttarvélar á Indlandi undir þremur vörumerkj- um, TAFE, Massey Ferguson og Eicher. Auk þess sem fyrirtækið framleiðir margs konar landbúnaðartæki, jarð- tætara, plóga og vélar til að taka upp kartöflur. Það framleiðir einnig dísil- vélar, vökvapumpur, rafgeyma og ýmiss konar vörur úr plasti. TAFE rekur einnig stóran tebú- garð á Indlandi undir sérstakri landbúnaðardeild. Árið 2015 seldi TAFE um 150.000 dráttarvélar sem eru á bilinu 25 til 45 hestöfl í um 100 löndum. Þar á meðal í Bandaríkjunum og Evrópu. Ekki er vitað til að dráttarvél af gerðinni TAFE hafi verið flutt inn til Íslands. /VH TAFE – þriðji stærsti dráttar- vélaframleiðandi í heimi Yfirvöld í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu hafa látið kalla inn milljónir eggja úr verslunum. Krafist er lögreglurannsókna eftir að mælingar sýndu hátt hlutfall skordýraeitursins fipronil í eggjum. Verið er að innkalla margar milljónir eggja úr verslunum og vöruhúsum í Þýskalandi og Hollandi og búið er að stöðva sölu á eggjum frá Hollandi í Belgíu eftir að í ljós kom að í eggjum frá sumum framleiðendum fannst hátt hlutfall af skordýraeitri. Eitrið sem um ræðir kallast fipronil og er notkun þess stranglega bönnuð í matvælaiðnaði. Áætlað er að 2,9 milljón egg smituð af fiprolin hafi verið flutt til Þýskalands áður en innflutningur á eggjum til landsins frá Hollandi var stöðvaður í síðasta mánuði. Samkvæmt frétt The Guardian er búið að loka tímabundið um 180 hollenskum kjúklingabúum og hefja á lögreglurannsókn á umfangi málsins. Litið er á notkun eitursins í matvælaiðnaði sem glæpsamlegt athæfi. Fyrstu viðbrögð hollenska matvælaeftirlitsins vegna málsins hafa verið harðlega gagnrýnd. Í fyrstu gaf matvælaeftirlitið út yfirlýsingu þar sem sagt var að engin hætta væri á ferðum. Skömmu síðar kom önnur yfirlýsing þar sem neytendur voru varaðir við að borða egg þar til rannsókn málsins væri lokið. Alþjóðaheilbrigðismála stofnunin segir fiprolin mjög skaðlegt Sýni sem tekin voru úr kjúklinga- driti, blóði og eggjum, sýndi mjög hátt hlutfall skordýraeitursins fiprol- in á mörgum eggjabúum í Hollandi. Efnið er notað af dýralæknum til að drepa flær, lýs og önnur skordýr en notkun þess er bannað á dýrum sem ætluð eru til manneldis. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni, WHO, telst fiprolin til mjög hættulegra efna sem geta við inntöku valdið alvarlegum skemmd- um á lifur, skjaldkirtli og nýrum svo dæmi séu tekin. Saksóknari í Belgíu er að fara yfir lista viðskiptavina tveggja fyrirtækja í landinu sem framleiða og selja lúsavarnarefni til býla og annarra í Hollandi og Belgíu. Hugsanlegt er talið að fiprolin hafi verið blandað við önnur og lögleg efni sem notuð eru til að aflúsa kjúklinga til að auka notagildi þeirra. Einnig er talið mögulegt að fiprolin eða skordýraeitur blandað með því hafi verið selt til Bretlands, Frakklands og Póllands og notað til að aflúsa kjúklinga í eggjafram- leiðslu í þeim löndum. Búið að borða sönnunargögnin Samkvæmt frétt í hollensku dag- blaði hefur blanda af skordýraeitri með fiprolin verið notað af hollensk- um eggjaframleiðendum í meira en ár. Samkvæmt yfirlýsingu frá mat- vælaeftirliti Hollands er ekki nokkur leið að segja til um hversu lengi efnið hefur verið notað þar sem búið er að borða öll eggin. Í síðustu viku sendi hollenska matvælaeftirlitið frá sér viðvörun þar sem segir að í einni sendingu sem tekin var til skoðunar hefði magn af fiprolin reynst það hátt að neysla á eggjunum gæti haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar í för með sér fyrir fólk. Í viðvöruninni segir að ekki sé ráðlegt að gefa börnum egg frá að minnsta kosti 27 eggjabúum. Verslanir taka egg úr sölu Tvær af stærstu verslunarkeðjum í Hollandi hafa þegar tekið egg frá sumum framleiðendum úr sölu og þýska verslunarkeðjan REWE hefur gert slíkt hið sama. Verslunarkeðjurnar Lild og Aldi hafa einnig tekið hollensk egg úr sölu og sagt að neytendur sem hafa keypt hollensk egg geti skilað þeim. Auk þess sem sending með ríflega milljón eggjum sem var á leiðinni frá Hollandi til Þýskalands var stöðvuð við landamæri Þýskalands og snúið aftur til Hollands. Í belgískum fréttamiðlum er haft eftir talsmanni flæmskra kjúklinga- og eggjabænda að sala og dreifing á eggjum frá nokkrum býlum hafi verið stöðvuð í Flæmingjalandi vegna rannsókna á notkun fiprolin þar. Holland stærsti útflytjandi eggja í Evrópu Holland er stærsti útflytjandi eggja í Evrópu og eru eggjabændur í Hollandi um eitt þúsund og fram- leiða þeir um 10 milljarða eggja á ári. Formaður eggjabænda í Hollandi segir að 65% framleiðslunnar sé fluttur út og stór hluti framleiðsl- unnar fari til Þýskalands og því um grafalvarlegt mál að ræða og hætti verslanir að bjóða hollensk egg til sölu blasi við fjöldi gjaldþrota hjá hollenskum eggjabændum. /VH Matvælaöryggi: Milljónir eggja fjarlægð úr hillum verslana í Evrópu vegna skordýraeiturs UTAN ÚR HEIMI Hópur vísindamanna frá Washington-háskóla könnuðu hvaða áhrif eggjaneysla hefði á börn í Ekvador. Um 80 börn tóku þátt í rannsókninni á svæði þar sem um 40% barna eru vannærð. Börnunum voru gefin eitt egg á dag í sex mánuði og í ljós kom að nærri helmingur þeirra 37 barna sem talin voru of lágvaxin fyrir sinn aldur við upphaf rannsóknarinnar höfðu tekið umtalsverðan vaxtarkipp áður en henni lauk. Egg innihalda mörg næringarefni eins og kólín sem er nítrógenefnasamband sem hefur verið tengt við vöxt í rannsóknum á dýrum. Vítamín og dýraprótein hjálpa til við að byggja upp vöðvavefi. Rannsóknin var birt í vísindaritinu „Pediatrics“ sem er leiðandi rit fyrir barnalækna og þykir niðurstaðan vera áhugaverð fyrir hjálparstarf í vanþróuðum ríkjum. /ehg Eitt egg á dag eykur vöxt barna

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.