Bændablaðið - 24.08.2017, Side 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 24. ágúst 2017
Ábúendurnir á Hrafnkelsstöðum
fluttu á jörðina árið 1990 en þá
var hún í eigu ríkisins. Hófst þá
uppbygging á svæðinu og var
jörðin keypt nokkrum árum
seinna.
Árið 2007 hófst svo ferðaþjón-
ustan hjá fjölskylduni ásamt því að
Karl sinnti starfi sínu sem landpóst-
ur. Reiðhöllin reis svo árið 2008 og
hefur nýst vel fyrir tamningar yfir
vetrartímann.
Mikill uppgangur hefur verið í
ferðaþjónustunni síðustu ár og árið
2012 reis nýtt hús til að sinna henni.
Þar er gisti- og salernispláss fyrir
átta manns auk eldhúss, matsalar og
setustofu.
Býli: Hrafnkelsstaðir.
Staðsett í sveit: Á Mýrum í
Borgarfirði.
Ábúendur: Bóndinn Karl Heiðar
Valsson og eiginkonan Monika
Kimpfler.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Fjölskyldan á þessum bæ eru fimm
talsins. Hjónin Karl og Monika og
börnin þeirra þrjú, Heiðar Ernest,
Lára María og Úrsúla Hanna.
Gæludýr á bænum er þónokkur,
hundarnir fimm sem taka mismikinn
þátt í búskapnum en flestum þeirra
finnst gott að liggja inni á meðan
tveir af þeim eru úti að vinna. Einnig
eru nokkrir kettir á bænum.
Stærð jarðar? Um 800 hektarar.
Gerð bús? Erum ferðaþjónustubú
og stundum einnig hrossarækt og
tamningar.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Á bænum eru um 150 hross,
sjö geitur, nokkrar kindur, átta
landnámshænur og svínin Babe,
Berta og Barbie.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Á veturna vaknar heimilisfólkið
klukkan átta. Kalli fer í póstferð en
hann starfar sem landpóstur ásamt
því að sinna búinu. Monika fer út í
hesthúsið, eftir stuttan morgunverð
og tvo kaffibolla, til að moka, gefa
og temja til hádegis. Sama er upp
á teningnum eftir hádegi fram að
kvöldgjöfinni sem er í kringum
klukkan sex. Kalli kemur síðan úr
póstferð og þá er kvöldmatur.
Á sumrin hefst dagurinn á því
að undirbúa morgunverð fyrir gesti.
Eftir morgunverðinn þarf að smala
hrossum fyrir fyrri reiðtúr dagsins
en þegar því er lokið þá er farið með
gesti í reiðtúr fram að hádegismat.
Eftir mat er síðan farið í síðdegis-
reiðtúr eða stuttar skoðunarferð-
ir um nærsveitir sem endar svo á
kvöldverði. Eftir kvöldmat er farið
yfir skipulag næstu daga.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er til svo margt
skemmtilegt við bústörfin að
ekki er hægt að velja bara eitt en
leiðinlegustu störfin eru að þurfa
að rétta af girðingarstaura á hverju
vori eftir leysingar og festast í
drullu á vormánuðum sem síðan
berst út um allt. En þetta er víst
eithvað sem fylgir því að búa í
mýri.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Svipað, kannski að það verði
aðeins færri unghross á bænum
og yngra fólkið, Lára Maria og
tengdasonurinn Jóakim, séu komin
meira inn í bústörfin og inn í ferða-
þjónustuna.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Ágætlega
ef vel er haldið um taumana með
innflutning búvarnings.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Við teljum helstu tækifærin vera
að markaðssetja íslenska vöru sem
gæðavöru og sýna fram á að hún sé
betri en hver önnur fjöldaframleidd
vara.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Brauð, ostur, mjólk, kjötálegg og
skyr.
Hver er vinsælasti maturinn
á heimilinu? Lambalæri með
brúnuðum kartöflum og rabar-
barasultu.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar heimislisfrúin
keyrði splunkunýja traktorsvélina
út í skurð.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Nautalund með hvítlauks- og kryddjurtasmjöri
og regnboga tómatsalat
Mörg kryddjurtabeðin skarta sínu
allra besta um þessar mundir og
eins er úrval ferskra kryddjurta
gott í betri verslunum.
Þá er um að gera að nýta þess-
ar gersemar almennilega og vel
er við hæfi að nota þær með
úrvals nautakjöti, „filet mignon“.
Pönnusteikt nautasteik „filet
mignon“ með hvítlauks- og
kryddjurtasmjöri
› Fjórar nautalundir skornar í 180–200
gramma steikur.
› 20 ml ólífuolía
› 20 g smjör
› Salt og pipar eftir smekk
Hvítlauks- og kryddjurtasmjör
› ½ stk. smjör
› 1 msk. saxað ferskt rósmarín
› 1 msk. ferskt extragon
› ½ msk. hvítlaukur saxaður
Fyrir kryddjurtasmjör:
Settu smjörið í örstutt í örbylgjuofn
þar til það er auðvinnanlegt, eða í
10–15 sekúndur.
Hrærið kryddjurtum og hvítlauk
saman þar til allt er alveg blandað
saman.
Setjið smjörið á pappír eða
álfilmuna af smjörinu og reynið
svo að endurmóta það, þar til það
líkist stöku smjörstykki. Setjið
í kæli í um tíu mínútur og takið
það svo út fimm mínútum áður
en það er borið fram með kjötinu.
Fyrir nautasteikurnar:
Forhitið ofninn í 200 gráður. Takið
steikina úr ísskápnum 30 mínútum
fyrir eldun. Það er gert til þess að
hún nái stofuhita og líklegra sé að
matreiðslutíminn verði nákvæmur.
Kryddið á báðum hliðum með salti
og pipar.
Látið pönnuna hitna mjög vel. Bætið
ólífuolíunni og smjörinu á hana.
Setjið nautasteikurnar á pönnuna
í tvær mínútur á hvorri hlið.
Pönnusteikingin gefur steikunum
fallegan lit.
Setjið steikurnar beint í ofninn.
Varið ykkur á því að handfangið
getur verið brennandi heitt þegar
það kemur úr ofni. Notið ofnvett-
linga og ofnfasta pönnu eða fat. Fyrir
miðlungs mikið eldað kjöt, hafið
það í 4–5 mínútur í ofninum. Meira
eldað í 5–6 mínútur og vel eldað
6–7 mínútur. En það fer eftir þykkt.
Gott er að nota kjöthitamæli. Látið
kjötið svo hvíla í fimm mínútur áður
en steikurnar eru bornar fram. Það
er mikilvægt að steikin nái réttum
kjarnhita. Framreiðið með sneið af
hvítlauks- og kryddjurtasmjöri.
Regnboga tómatsalat
Notið tómata í mismunandi litum,
stærðum og gerðum og stráið með
basil til að gefa þessu salati sérstak-
an glæsileika og bragð.
› 500 g þroskaðir tómatar af ýmsum
litum, stærðum og gerðum við
stofuhita
› Sjávarsalt til að krydda með
› 2 tsk. balsamic-edik
› Kaldpressuð ólífuolía
› Fersk basilikublöð
Aðferð
Skerið tómatana og setjið á fat og
kryddið með salti og smá pipar.
Ediki og olíu er dreift yfir ásamt
basiliku.
Borið fram með kjötinu eða sem
létt salat.
Amerískar pönnukökur
Þetta eru þessar þykku, svamp-
kenndu amerísku pönnukökur
sem oft eru borðaðar með heitu
hlynsírópi og stökku beikoni.
› 1 msk. lyftiduft
› 1 klípa af salti
› 1 tsk. hvítur sykur
› 2 stór egg (léttþeytt)
› 30 g smjör (brætt og kælt)
› 300 ml mjólk
› 225 g hveiti
› Smjör til steikingar
Aðferð
Auðveldasta leiðin til að gera þetta
er að setja allt hráefni í matvinnslu
og vinna þetta þannig saman. En ef
þið blandið öllu saman með þeytara
í skál, blandið þá fyrst saman hveiti,
lyftidufti, salti og sykri. Sláið eggjum,
bræddu smjöri og mjólk saman og
setjið í könnu ásamt þurrefnunum.
Það er miklu auðveldara að hella á
pönnu en að nota skeið.
Hitið slétta pönnu á eldavélinni.
Þegar þú eldar pönnukökurnar er allt
sem þú þarft að muna að þegar efri
hlið pönnunnar er komin með eldaðar
loftbólur þá er kominn tími til að elda
hina hliðina – og þetta þarf aðeins
um eina mínútu ef það er réttur hiti
á pönnunni.
Berið fram með meðlæti að eigin
vali.
MATARKRÓKURINN – BJARNI GUNNAR KRISTINSSON MATREIÐSLUMEISTARI
Hrafnkelsstaðir