Bændablaðið - 14.12.2017, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
FRÉTTIR
Innflutningur á spæni:
Fótur af klaufdýri finnst í innfluttum spæni
Lífland hefur innkallað spæni frá
Staben í Svíþjóð eftir að fótur af
klaufdýri fannst í einum bagga
síðdegis á mánudag. Líklega er
um fót af dádýri að ræða.
Dýrahræ geta borið með sér
smitefni og sem varúðarráðstöfun
hefur fyrirtækið innkallað alla
sendinguna af spæninum og
stöðvað dreifingu.
Lífland tilkynnti Matvælastofnun
síðla mánudags um að alifuglabóndi
hefði fundið fót af klaufdýri í
innfluttum spæni sem hann var að
dreifa í tómu alifuglahúsi.
Spænirinn fjarlægður
Á heimasíðu Mast segir að
spænirinn hafi verið fjarlægður
og húsið þvegið og sótthreinsað.
Í kjölfarið og í samráði við
stofnunina brást Lífland við og
stöðvaði dreifingu á spæni úr
viðkomandi gámi. Hringt var í þá
aðila sem vitað var að hefðu keypt
úr gáminum og varan innkölluð.
Ein hestavöruverslun á
höfuðborgarsvæðinu hafði fengið
spæni úr viðkomandi sendingu sem
hún hafði í almennri sölu. Nokkurn
tíma tók að hafa uppi á öllum
kaupendum, en í morgun náðist í
þann síðasta. Aðeins sex eigendur
höfðu borið spæninn undir hross
og einn þeirra undir sauðfé að auki.
Hafa þeir nú hreinsað viðkomandi
stíur samkvæmt leiðbeiningum frá
Matvælastofnun.
Litlar líkur á smiti
Hverfandi líkur eru taldar á að
smit hafi borist í dýr hér á landi
við þetta atvik, en þó verður eftirlit
með heilsufari dýranna sem komust
í snertingu við spæninn aukið næstu
vikurnar.
Matvælastofnun hefur
óskað eftir upplýsingum frá
dýraheilbrigðisyfirvöldum í Svíþjóð
um sjúkdómastöðu í hjartardýrum
þar í landi. Samkvæmt fyrstu
svörum er ekki vitað um alvarlega
smitsjúkdóma í þeim.
Samkvæmt upplýsingum
frá sænska fyrirtækinu er
framleiðslulínan lokuð og með
þannig tækjabúnaði að fóturinn
sem fannst hafi ekki getað farið
þar í gegn, því telur fyrirtækið að
honum hafi verið komið fyrir og
að um skemmdarverk sé að ræða í
verksmiðjunni. Málið er rannsakað
sem slíkt í Svíþjóð. /VH
Umhverfisráðuneytið:
Hreint loft til framtíðar
Fyrrverandi umhverfis- og
auðlindaráðherra gaf út fyrir
skömmu fyrstu almennu áætlunina
um loftgæði fyrir Ísland og ber
hún heitið Hreint loft til framtíðar.
Áætlunin gildir fyrir árin 2018 til
og með 2029 og er meginmarkmið
hennar að stuðla að loftgæðum og
heilnæmu umhverfi.
Á vef ráðuneytisins segir að
loftgæðaáætlunin taki til þeirra
þátta er varða loftgæði utandyra.
Í áætluninni koma fram mælanleg
markmið, upplýsingar um loftgæði
og tímaáætlun, aðgerðir og
stefnumörkun til að bæta loftgæði.
Við vinnslu áætlunarinnar var tekið
mið af Landsáætlun um loftgæði,
sem var gefin út af Umhverfisstofnun
árið 2010 og skýrslunni Hreint
loft, betri heilsa – Umfjöllun um
loftgæði og heilsufar á Íslandi ásamt
tillögum til úrbóta, sem var gefin út
af velferðarráðuneyti og umhverfis-
og auðlindaráðuneyti í apríl 2013.
Samkvæmt áætluninni er
stefnt að því að fækka árlegum
ótímabærum dauðsföllum af völdum
loftmengunar á Íslandi, fækka árlega
fjölda daga þar sem svifryk fer yfir
skilgreind heilsufarsmörk af völdum
umferðar úr 7 til 20 skiptum niður í
engin skipti fyrir árslok 2029 og að
ársmeðaltal brennisteinsvetnis verði
áfram undir skilgreindum mörkum.
Áætlun um loftgæði er sett í
samræmi við breytingar sem gerðar
voru á lögum um hollustuhætti
og mengunarvarnir 2013 vegna
innleiðingar á Evróputilskipun
2008/50/EB um gæði andrúmslofts
og hreinna loft í Evrópu. /VH
„Við ætlum að boða bændur til
fundar á þrettándanum þar sem
fjallað verður um nýjungar í
markaðssetningu á lambakjöti
og enda fundinn á veglegri
hádegisveislu, bændum að
kostnaðarlausu,“ segir Ásmundur
Friðriksson þingmaður, sem hefur
að eigin frumkvæði skipulagt
viðburð í Íþróttahúsinu á Hellu 6.
janúar næstkomandi. Hann heldur
því fram að það séu mikil tækifæri
að auka virði lambakjöts og nefnir
dæmi máli sínu til stuðnings.
„Þegar ég velti fyrir mér
hvernig hægt væri að koma því
við að bændur nytu aukinna
tekna af þeim gæðum sem þeir
framleiða varð til hugmyndin að
fundi þar sem við blásum bændum
bjartsýni í brjóst. Í samstarfi
við IKEA, Kjötkompaníið,
Markaðsráð kindakjöts ,
Bændablaðið og sauðfjárbændur
á Suðurlandi verður haldinn
fundur í Íþróttahúsinu á Hellu
laugardaginn 6. janúar 2018
kl. 10.30. Að loknum erindum
verður fundargestum boðið í mat
með léttum veitingum, öllum að
kostnaðarlausu,“ segir Ásmundur.
Á fundinum verður sagt frá því
hvernig fyrirtæki ná að hámarka
verðmæti landbúnaðarafurða
og eins hvernig stórverslun
nær að selja gríðarlegt magn af
lambakjöti á hagstæðu verði fyrir
neytendur. Þá munu forsvarsmenn
sauðfjárbænda halda erindi um
markaðssetningu sauðfjárafurða.
10.000 manns njóta veitinga í IKEA
„Ég hef kynnt mér hvernig Þórarinn
Ævarsson, framkvæmdastjóri
IKEA, og hans starfsfólk hefur
náð ótrúlegum árangri í meðferð
landbúnaðarafurða og sölu þeirra í
IKEA-versluninni á Íslandi. Þar eru
allt upp í 10 þúsund manns á dag sem
njóta veitinga þegar mest er. IKEA
hefur selt afurðir sem hafa verið lítt
vinsælar og því ódýrar, til dæmis
lambaskanka. Skankarnir hafa
verið í boði í mörg ár en nú leitar
IKEA leiða til að nýta fleiri hluta
lambsins. Þórarinn mun fara yfir það
á fundinum en líka segja frá því að
bakaríið í IKEA notar lambafitu
ásamt olíu til djúpsteikingar og
notast við gamlar ömmuuppskriftir
á kökum sem renna út eins og heitar
lummur,“ segir Ásmundur.
Lambakjöt sem lúxusvara
Veisluþjónusta og verslanir
Kjötkompanísins í Hafnarfirði,
sem Jón Örn Stefánsson rekur,
hefur náð góðum árangri í sínu
markaðsstarfi og selur vandaðar
steikur og fjölbreyttar gæðavörur
í sínu kjötborði, að sögn Ásmundar.
„Salan gengur eins og enginn sé
morgundagurinn! Kjötkompaníið
verslar aðeins hágæða kjöt frá
afurðastöðvum og fær sérvalda
lambahryggi sem eru á bilinu
3,3–3,5 kg. Vinsælasti rétturinn hjá
Kjötkompaníinu er Lambakonfekt,
kótelettur sem seldar eru á 5.990 kr.
kílóið og seljast mjög vel. Kjötborðið
í verslunum þeirra er sannkallað
augnakonfekt og fólk dáleiðist af því
að sjá hvernig hægt er að bera kjöt
fram og hreinlega borðar kjötið með
augunum,“ segir Ásmundur.
Bændur þurfa að njóta velgengni
„Þórarinn og Jón Örn munu segja
frá því hvernig þeir hafa ásamt sínu
starfsfólki markaðssett lambakjöt og
landbúnaðarafurðir með gríðarlega
góðum árangri. Annar með því að
ná sem hagkvæmustu verði fyrir
neytendur en hinn stílar á dýra
gæðavöru. En það magnaða er að
báðir eru að gera frábæra hluti og
rekstur þeirra gengur mjög vel. Ég
tel það mikilvægt að slík velgengni
skili sér í betra verði til bænda,“
segir Ásmundur. Auk þeirra Þórarins
og Jóns Arnars mun Oddný Steina
Valsdóttir, formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, ávarpa fundinn og
Svavar Halldórsson mun fara yfir
kynningar- og markaðsmál.
Skráning á bbl.is
Ásmundur segist búast við miklum
fjölda bænda á fundinn. „Það verður
boðið upp á mögnuð erindi sem
eiga eftir að blása bændum von
í brjóst um bættan hag. Þá verður
fundarmönnum boðið í mat af
Kjötkompaníinu og IKEA þar sem
þeir kynna afurðir frá eldhúsum
fyrirtækja sinna og bjóða léttan
drykk með matnum.“
Sá háttur verður hafður á að
bændur þurfa að skrá sig til leiks á
fundinn á vef Bændablaðsins, bbl.
is. Gert er ráð fyrir góðri aðsókn en
sætafjöldi er takmarkaður svo það
borgar sig að skrá sig sem fyrst.
/TB
Ásmundur Friðriksson hefur mikla trú á íslenska lambakjötinu og boðar
bændur á fund til þess að ræða nýjar leiðir í markaðssetningu. Mynd / TB
Opinn fundur á Hellu um markaðssetningu á lambakjöti 6. janúar:
„Viljum blása bændum bjartsýni í brjóst“
– segir Ásmundur Friðriksson, þingmaður á Suðurlandi
Ákveðið hefur verið að gróðurhús
Det danske cannabis-projekt,
Spectrum Cannabis Danmark,
verði staðsett í Óðinsvéum á
Jótlandi. Í gróðurhúsinu verður
fyrsta löglega hampræktin í
Danmörku.
Danska þingið samþykkti fyrr
á þessu ári að danskir bændur geti,
að uppfylltum skilyrðum, fengið
leyfi til að rækta kannabis sem
nota á í lækningaskyni.
Þann 1. janúar 2018
næstkomandi taka gildi lög í
Danmörku sem leyfa sjúklingum
að nota, undir eftirliti lækna,
kannabis til að lina þjáningar.
Húsnæði ræktunarstöðvarinnar
og rannsóknarstöðvar henni
tengdri verður 40.000 fermetrar
að flatarmáli. Fyrirtækið Spectrum
Cannabis er í eigu kanadísks
fyrirtækis, Canopy Growth, og
hins danska Danish Cannabis.
Fáist öll tilskilin leyfi til reksturs
gróðurhússins getur fyrirtækið boðið
vöru sína, þurrkuð blóm, hampolíu
og hamp í hylkjum í upphafi árs
2019. Þangað til mun það flytja inn
hamp til lækninga frá Kanada.
Strangar öryggiskröfur eru
gerðar í kringum framleiðsluna
og engu minni en gerðar eru til
banka, sprengiefnageymslu eða
öryggisfangelsis.
Borgarstjórinn í Óðinsvéum
segist vera hæstánægður með að fá
starfsemina til borgarinnar og treysti
því að fyrirtækið muni standast allar
kröfur sem gerðar verða til þess.
Talsmenn Spectrum Cannabis
Danmark segja að Óðinsvé sé
tilvalinn staður fyrir starfsemina.
Gert er ráð fyrir að starfsmenn
fyrirtækisins verði 125.
/VH
Hamphlaðan í Danmörku:
Kannabisgróðurhúsið
verður í Óðinsvéum
Bændablaðið
á bbl.is og líka á Facebook
Næsta blað kemur út 11. janúar
Gleðileg jól
Sænsk dádýr með alla fjóra undir sér.