Bændablaðið - 14.12.2017, Side 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Eftir frækilega frammistöðu
íslenska karlalandsliðsins
í knattspyrnu á EM í
Frakklandi sumarið 2016
kepptist heimspressan við
að lýsa undrun og aðdáun á
dugnaði og eljusemi þessarar
dvergþjóðar á hjara veraldar.
Jafnvel helsta sjávarútvegsblað
Noregs, Fiskeribladet/Fiskaren,
hreifst með og lagði forsíðu sína
undir íslensku sigurförina.
Og ekki nóg með það, heldur
fékk blaðið sérfræðing á norsku
rannsóknastofnuninni Nofima
(sem er hliðstæð stofnun og Matís
á Íslandi) til þess að útskýra hvers
vegna Íslendingum gengi svona vel
á svo mörgum sviðum, í sumum
tilvikum betur en Norðmönnum,
eins og til dæmis í sjávarútvegi.
Svarið birtist stórum stöfum
á forsíðunni: Áhættuvilji, þol,
hugrekki, stolt (sjá meðfylgjandi
forsíðumynd).
Gerum meiri verðmæti úr
hráefninu
Öllum þykir hólið gott, ekki síst
ef það kemur að utan, en hollt er
þó að taka ummælum um yfirburði
íslenska kynstofnsins með fyrirvara.
Nægir þar að minnast heimatilbúinna
yfirlýsinga um yfirburðargetu
íslenskra fjármálamanna áður en
allt hrundi.
Að þessu sögðu er það þó
óumdeilt, bæði í Noregi og á
Íslandi, að Íslendingar geri meiri
verðmæti en Norðmenn úr hverju
kílói af botnfiski sem dregið er úr
sjó. Skýringin liggur að mestu leyti
í mismunandi skipulagi veiða og
vinnslu í löndunum tveimur.
Veiðar og vinnsla aðskilin
í Noregi
Grundvallarreglan í Noregi er sú
að veiðar og vinnsla skuli vera
aðskilin. Það þýðir til dæmis að
eigendur fiskibátanna keppast við
að veiða þorskinn þegar auðveldast
er að ná í hann, það er að segja á
vetrarvertíðinni þegar hann gengur
úr Barentshafinu til hrygningar
upp að norsku ströndinni. Þannig
hrúgast 80–90% þorsksins á land
á fyrstu fjórum mánuðum ársins.
Fiskimönnunum er tryggt umsamið
lágmarksverð fyrir fiskinn sem gerir
það að verkum að hvatning til þess
að skila hráefninu í sem mestum
gæðum er í lágmarki.
Það segir sig sjálft að þetta
verklag veldur fiskvinnslunni í landi
miklum erfiðleikum. Alltof mikið
framboð á fiski af mismunandi
gæðum á stuttum tíma framan af
ári getur leitt til söluerfiðleika og
verðlækkunar en of lítil veiði það
sem eftir er ársins gerir það að
verkum að ekki er hægt að þjóna
markaðnum á þann hátt sem hann
kýs.
Samvinna veiða, vinnslu
og markaða
Á Íslandi á hinn bóginn er mikil
samvinna milli veiða, vinnslu og
markaða sem leiðir til hærra verðs
fyrir afurðirnar. Fiskiskipin eru að
stærstum hluta í eigu sömu aðila og
fiskvinnslustöðvarnar. Sjálfstæðir
bátaeigendur sem selja gjarnan á
fiskmörkuðum haga veiðum sínum
að töluverðu leyti eftir því hvenær
verðið er hæst.
Í erindi sem Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja,
flutti á síðasta ári kom fram að
verðmæti á hvert kvótakíló þorsks
frá Íslandi á árinu 2014 hafi verið
20 norskar krónur en frá Noregi
15 norskar krónur. Sem sagt,
Íslendingar gera þriðjungi meiri
verðmæti úr hverju veiddu kílói en
Norðmenn. Að sögn Þorsteins Más
er stóri munurinn sá að aðeins tæp
20% af þorskafurðum frá Íslandi eru
lítið unnin vara en hlutfallið í Noregi
er 90%.
Fiskur fluttur óunninn úr landi
Fiskvinnsla í Noregi byggist að
verulegu leyti á heilfrystingu
úti á sjó og vinnslu á saltfiski
og skreið í landi. Stór hluti
þorskaflans er fluttur ferskur
eða frosinn úr landi og
unninn erlendis, svo sem í
Portúgal, Danmörku og Kína.
Flakavinnsla í Noregi hefur
verið lítil. Íslendingar hafa
aftur á móti lagt aukna áherslu
á vinnslu í landi. Útflutningur
á ferskum afurðum, sem
gefa jafnan mestan arð, fer
vaxandi. Er nú svo komið
að hlutur ferskra afurða í
útflutningsverðmæti þorsks
frá Íslandi er tæp 40% en var
12% árið 2000.
Sendinefndir til Íslands
Framámönnum í norskum
sjávarútvegi eru þessar
staðreyndir fullljósar.
Á hverju ári koma
sendinefndir skipaðar
fulltrúum hagsmunaaðila,
stjórnmálamanna og
rannsóknamanna frá Noregi
til Íslands til þess að kynna
sér hvernig staðið sé að
málum hér. Samt breytist
tiltölulega lítið. Ástæðan
er sú að það hentar norska
bátaflotanum vel að fiska
megnið af þorskkvóta
sínum á vetrarvertíðinni
þegar auðveldast er að veiða
fiskinn uppi við ströndina.
Ólíkar aðstæður
Bátaútgerðarmennirnir
benda á að aðstæður til
þorskveiða við Noreg séu
frábrugðnar aðstæðum við Ísland.
Eftir að þorskurinn hafi lokið
hrygningu við Noregsstrendur
snúi hann aftur norður í Barentshaf
þar sem langt sé að sækja hann en
þorskurinn við Ísland haldi sig í
námunda við landið árið um kring.
Fleira kemur einnig til. Norskir
fiskimenn eru vanir því að taka
rösklega á því á vertíðinni og
eiga síðan náðugri daga það sem
eftir er ársins. Erfitt er að breyta
slíkum venjum. Þá má nefna að
norska fiskveiðistjórnunarkerfið
er miklu ósveigjanlegra en hið
íslenska. Kvótaleiga er óheimil og
miklar hömlur eru á sameiningu
veiðiheimilda. Bátarnir eiga því
óhægt um vik að framlengja úthaldið
svo það nái árið um kring.
Byggðastefna
Þótt Norðmenn séu tvöfalt stærri
fiskveiðiþjóð en Íslendingar miðast
umgjörð sjávarútvegsins í Noregi
fyrst og fremst við það að styðja
við byggð í Norður-Noregi. Á
Íslandi hefur sjávarútvegurinn
aftur á móti verið ein mikilvægasta
stoð efnahagslífsins og sú skoðun
ríkjandi að vart sé annað í boði en
að reka hann á eins hagkvæman hátt
og kostur er.
Menn geta svo velt fyrir sér hvort
þeir mannkostir sem Íslendingum
voru eignaðir á forsíðu Fiskeribladet/
Fiskaren og getið var um hér að
framan hafi eitthvað með velgengni
íslensks sjávarútvegs að gera.
Himingeimurinn, stjörnurnar,
fjarlægðin, vísindaskáldsögur,
garðyrkja í geimnum og
möguleikar á könnun geimsins
hafa vakið áhuga minn allt
frá því ég var barn og horfði
á lendinguna á tunglinu í
svarthvítu sjónvarpi í Árnanesi
í Nesjum.
Mér er minnisstætt þegar
ég gekk úti á hlaði með ömmu
minni, fædd 1882, og hún leit
til himins og sagði: „Villi minn,
hugsa sér að ég er fædd í torfkofa
og núna eru menn á tunglinu.“
Frá því að menn fóru að skjóta
tólum og tækjum út í geiminn
hefur smám saman verið að
safnast saman alls konar tæknidót
á sporbaug um jörðina. Geimrusl
sem annað slagið, ef heppni er
með okkur, brennur upp þegar
það fer í gegnum gufuhvolfið.
Mönnuðum geimförum fylgir
óhjákvæmilega annars konar
úrgangur. Lífrænn úrgangur
sem til skamms tíma hefur verið
sturtað óhindrað út í geiminn þar
sem hann þótti of þungur til að
flytja aftur til jarðarinnar.
Samkvæmt NASA skilar
geimfari sem er í geimstöð í
ár af sér um 80 kílóum af saur.
Þvag er endurunnið og notað sem
drykkjarvatn. Í dag er saurinn
þurrkaður og fluttur aftur til
jarðarinnar með geimskutlunni.
Þrátt fyrir að hluti saursins
sem losað var út í geiminn hafi
brunnið upp í gufuhvolfinu og
hafi stundum frá jörðu litið út eins
og stjörnuhrap eða óskastjarna
festist hluti hans á sporbaug um
jörðina. Og er nú svo komið að
þunnt saurlag, sem við skulum
velsæmis vegna kalla seyrulag,
umliggur jörðina í sporbaugshæð
úti í geimnum.
Rithöfundurinn Sir Arthur
C. Clarke, sem þekktastur er
fyrir bækurnar 2001: A Space
Odyssey, sem Stanley Kubrick
gerði samnefnda bíómynd
eftir, Rendezvous with Rama
og Childhood’s End. Margar
af sögum Clarke fjölluðu um
geimferðir en hann birti einnig
fjölda greina um möguleika
geimferða og tækni henni tengdri.
Ein þessara greina nefndist
Toilets of the Gods og fjallaði um
það áhugaverða efni, losun lífræns
úrgangs í geimnum. Í greininni
segir Clarke að eftir nokkur ár
af mönnuðum geimferðum hafi
vísindamenn farið að rannsaka
geimrusl með því að hirða hluta
af því og flytja til jarðar. Það sem
kom þeim á óvart var að hlutirnir
sem fluttir voru til jarðar eftir að
hafa hringsólað umhverfis hana
í nokkur ár voru að stórum hluta
þaktir þunnu lagi af seyru eða
saur sem hefur verið sturtað úr
mönnuðum geimförum.
Í framhaldi af þessu fabúlerar
Clarke um það hvort lífið á
jörðinni gæti hafa kviknað út
frá saur sem vitsmunaverur frá
öðrum plánetum hafi losað út
á ferðum sínum um geiminn.
Lífrænt efni úr saurnum hefur svo
borist til jarðarinnar og fyrir tóma
tilviljun eða handleiðslu guðanna
á tíma sem var lífinu hagkvæmt.
Til að tilgátan gangi upp
verður að gera ráð fyrir að líf
hafi kviknað áður í óravíddum
geimsins og þeim milljónum
pláneta sem þar eru og þar hafi
þróast vitsmunaverur sem hafi
lagt í geimferðir. Tilgátan gerir
semsagt ráð fyrir að lífið á jörðinni
sé ekki sjálfsprottið heldur
aðkomið með geimverusaur úr
óravíddum geimsins.
Sé þetta rétt þurfum við að
endurskoða sköpunarsöguna
verulega, hvort sem hún byggist
á vísindum eða trú. Líklega erum
við eftir allt saman bara seyra úr
geimnum. Gleðileg jól, /VH
Geimseyra
STEKKUR
HLUNNINDI&VEIÐI
Guðjón Einarsson
gudjone3@gmail.com
Ísland – Noregur
Óskum lesendum okkar til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Þökkum frábær samskipti á liðnum árum