Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Gunnar Kristinn Guðmundsson, bóndi á Göngustöðum í Svarfaðardal, er að taka við búinu af foreldrum sínum:
Ákvað að slá til og byggja hátæknivætt
og vandað fjós í stað þess að hætta
Mikil gróska hefur verið
í uppbyggingu kúabúa í
Svarfaðardal. Þar er búið að reisa
fjölmörg ný fjós og bændur eru
hver af örðum að taka í notkun
hátæknimjaltaþjóna. Þar er
Gunnar Kristinn Guðmundsson,
bóndi á Göngustöðum, engin
undantekning.
Í byrjun desember byrjaði
Gunnar að flytja kýrnar á bænum
úr gamla fjósinu í nýtt og glæsilegt
lausagöngufjós sem keypt var hjá
Landstólpa. Þegar blaðamaður
Bændablaðsins kom við á bænum
í fyrri viku var Gunnar í óða önn
að gera klárt fyrir kýrnar í fjósinu,
en mörg handtökin voru þó eftir.
Var hann m.a. að fara að taka inn
glænýjan sköfu-róbot og setja upp
flokkunarhlið og burðarstíur. Á
veggi og gólf lét hann setja epoxy
plastefni sem kemur til með að
auðvelda öll þrif í fjósinu.
Byggingartíminn aðeins hálft ár
„Ég held að þetta komi skemmtilega
út þegar allt verður klárt,“ sagði
Gunnar.
„Það er frábært að gera þetta á
svona stuttum tíma. Það var búið
að gera grunninn kláran í lok apríl
og ég ætlaði að byrja á þessu í maí
en tafir urðu á teikningum. Það var
svo sem ágætt, því þá gat ég klárað
sauðburðinn áður en smiðirnir
komu. Fyrsti smiðurinn kom hér
3. júní og við byrjuðum að steypa
í mykjuhúsinu 6. júní. Svo var
byrjað að mjólka hér í nýju fjósi
þriðjudaginn 28. nóvember.
Tekur við búinu af foreldrum
sínum
Gunnar er smám saman að taka við
rekstrinum á búi foreldra sinna,
Guðmundar Gunnlaugssonar og
Margrétar Gunnarsdóttur. Þau keyptu
Göngustaði fyrir 41 ári. Þau hófu
síðan framkvæmdir fyrir 38 árum
til að hefja þar mjólkurframleiðslu.
Byrjuðu þau frá grunni en þá var
engin kýr á bænum. Keyptu þau 7
kvígur og hófu mjólkurframleiðslu
í kjölfarið. Þar hafa þau síðan
rekið hefðbundið básafjós með
brautakerfi. Var stígandi í rekstrinum
og ljóst undir það síðasta að ráðast
þyrfti í miklar endurbætur ef halda
ætti áfram. Sagði Gunnar að þá
hafi líka komið til greina að hætta
búskapnum alveg.
Einum hádegisverði
frá því að hætta
„Það var einum hádegismat frá
því að ég flytti í burtu og hætti.
Málið snerist um að auglýsa þetta
til sölu og fara, eða að fara í þessa
uppbyggingu. Vorum við farin að
búa okkur undir að hætta en létum
lifa eitthvað af nautum meðan við
kláruðum kýrnar út. Það var svo
ákveðið að stökkva út í þetta og ég
sé ekki eftir því í dag,“ segir Gunnar.
Með 40 mjólkandi kýr og er að
stækka stofninn
„Við erum með rétt rúmlega 40 kýr
og í heild 110 nautgripi. Það er mikið
af óbornum kvígum hjá okkur og
svo hefur gengið vel að kaupa inn
kvígur til að stækka stofninn. Ég á
eftir að sækja 15 kvígur sem ég er
búinn að kaupa og eiga að bera um
og eftir áramót. Ég stefni á að vera
með 64 mjólkandi kýr í húsi í byrjun
mars,“ segir Gunnar.
Hann segir að ótrúlega mikið hafi
verið af lausum gripum til sölu að
undanförnu og því gengið vel að
fá kvígur. Hann sagði skýringuna
frekar vera offramboð af kvígum
frekar en að bændur séu að hætta
í greininni.
„Að vísu tók ég 6 kvígur af bæ
sem hætti í fyrra og ég er að fá þær
inn núna.“
Kýrnar hugsi yfir nýrri tegund af
mjaltaþjóni
Eitt af fyrstu verkunum við að koma
kúnum fyrir í nýju og tæknivæddu
lausagöngufjósi er að kenna þeim
á græjurnar. Gunnari fórst það
verk vel úr hendi og var m.a. að
kenna kúnum á nýja mjaltaþjóninn.
Kannski ekki skrítið að þær væru
hugsi yfir tækinu, því þær höfðu
örugglega ekki séð þessa tegund
áður á nokkrum bæ í Svarfaðardal.
Kaup á mjaltaþjónum líkt við
trúarbrögð
„Við pössuðum okkur á því að vera
örugglega ekki með eins „róbot“
og nágrannarnir,“ sagði Gunnar
brosandi. Nágranni hans, aðeins
neðar í dalnum, Karl Ingi Atlason
á Hóli, var þá nýbúinn að benda
blaðamanni á að ef menn vildu
skoða þær tegundir sem í boði eru
á mjaltaþjónamarkaðnum, þá væri
best að skreppa í Svarfaðardalinn.
Þar gætu menn séð allar tegundirnar
á litlu svæði. Sagði hann að
vissulega mætti líkja afstöðu bænda
til vals á róbotum við trúarbrögð,
svona líkt og þegar bændur taka
ástfóstri við ákveðnar tegundir
af dráttarvélum. Gunnar var ekki
frá því að nokkuð væri til í þeirri
skýringu nágrannans.
Átta mjaltaþjónar komnir í
Svarfaðardal á þrem árum
Á þrem árum hefur tæknin
heldur betur haldið innreið sína í
Svarfaðardalinn með innleiðingu
mjaltaþjónanna. Fljótlega voru
komnir þrír á bæi í dalnum og
nú á einu ári hafa verið settir
upp fimm til viðbótar. Þar má
sjá allar tegundirnar sem í boði
eru hérlendis. Það eru Lely
mjaltaþjónar frá VB landbúnaði
ehf., Delaval frá Bústólpa ehf.,
GEA frá Líflandi ehf. og Fullwood
Merlin frá Landstólpa ehf.
Á Hóli hjá Karl Ingi Atlasyni
er nýlegt fjós og Delaval róbot
og á Búrfelli austan við ána
gegnt Hóli er verið að byggja
nýtt fjós sem kemur frá BYKO.
Þar kemur væntanlega enn einn
mjaltaþjónninn. Hjá Sveini
Kjartani Sverrissyni á Melum,
sem líka er austan ár var settur upp
GEA róbot sem tekin var í notkun
í haust. Þá var líka tekinn í notkun
nýr róbot hjá Trausta Þórissyni
á Hofsá neðar í austanverðum
Svarfaðardal seinnipartinn í
haust. Hjá Gunnsteini Þorgilssyni
bóndi á Sökku verður svo tekin í
notkun enn einn mjaltaþjónninn
eftir áramótin. Þá er einnig verið
að byggja upp hjá Þorleifi Kristni
Karlssyni á Hóli á Upsaströnd,
skammt norðan við Dalvík og
við mynni Svarfaðardal. Verða þá
líklega aðeins þrjú kúabúa eftir
í Svarfaðardal áður en langt um
líður sem ekki eru með róbot.
Með Fullwood mjaltaþjón og
mjólkurkæli
Mjaltaþjónninn hjá Gunnari er
glænýr hollenskur „róbot“ af gerðinni
Fullwood Merlin sem Landstólpi er
með umboð fyrir. Fyrsti róbotinn af
þeirri gerð hér á landi var settur upp
í september hjá Erni Óla Andréssyni
á Bakka í Víðidal.
„Við erum líka með 5.000 lítra
Fullwood Packo mjólkurtank sem
er með ískæli. Hann er líka frá
Landstólpa og er eini mjólkurtankur
sinnar tegundar á Íslandi. Hann virkar
þannig að í neðri hlutanum er vatn
sem er við frostmark.“
Samkvæmt upplýsingum
frá Landstólpa fer mjólkin frá
mjaltaþjónum fyrst í gegnum forkæli
sem kældur er með neysluvatni. Þaðan
fer mjólkin í gegnum forkæli númer
tvö sem tilheyrir mjólkurkælinum,
en í gegnum hann rennur 0 gráðu
heitt vatn úr kælitanknum sem kælir
mjólkina niður í 7 gráður. Síðan
fer vatnið í hringrás um tankinn
og heldur hitastiginu stöðugu í 7
gráðum. Þessi tankur á að gefa betra
geymsluþol og halda fitusýru niðri
auk þess sem ekki á að vera hætta á
að það frjósi í tanknum.
„Ástæðan fyrir kaupunum á
þessum Fullwood mjaltaþjóni og
Fullwood Packo mjólkurtank, er
að ég keypti húsið af Landstólpa.
Þeir buðu mér til Hollands til að
skoða Fullwood róbot sem mér
leist vel á. Fyrst ég var að taka
húsið, innréttingar og allt annað frá
Landstólpa, þá fannst mér liggja
beinast við að klára dæmið og taka
líka allt annað í fjósið frá þeim. Þessi
róbot mjólkar eins og allir hinir. Það
Gunnar Kristinn Guðmundsson, bóndi á Göngustöðum, við glænýjan hollenskan mjaltaþjón af gerðinni Fullwood Merlin. Myndir / HKr.
Gömlu útihúsin á Göngustöðum og það nýja lengst til hægri. Það mun örugglega ekki væsa um gripina í þessari byggingu.
Göngustaðir í Svarfaðardal.