Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
Bylting í
hreinlæti!
Sími 480-0040 sala@buska.is www.i-teamglobal.com
Hafðu samband og pantaðu kynningu fyrir þitt fyrirtæki
Auðveldari og betri þrif,
sparar tíma og léttir lífið
Buska
Til sölu 4x4
Sími 562-1717
bilalif@bilalif.is
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
Skoda Octavia, árg. 2015, langbakur, dísel, 1.600 cc,
fjórhjóladri nn, bsk. 6 gíra, ekinn 52.500 km.
Einn eigandi. Skráður VSK-bíll en auðvelt að breyta.
Ekkert áhvílandi. Myndir á bilalif.is, raðnúmer 247468.
Sparneytinn gæðabíll. Verð: 3.190.000 kr.
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Gúmmíbelti
- Fyrir smágröfur
Gjafabréf Bændaferða og Hey Iceland er tilvalin
gjöf til þeirra sem hafa gaman af því að ferðast.
GEFÐU GJÖF SEM
ENDIST ÆVILANGT
Hugsanleg sameining Grundarfjarðar, Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar:
Ekki kosið um sameiningu í næstu
sveitarstjórnarkosningum
Bæjarstjórn Grundarfjarðar
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að ekki verði að svo stöddu efnt
til íbúakosningar um sameiningu
sveitarfélaga. Allir bæjarfulltrúar
í Grundarfirði samþykktu þessar
lyktir málsins.
Samstarfsnefnd um mögulega
sameiningu sveitarfélaganna
Grundarfjarðarbæjar, Helgafells-
sveitar og Stykkishólmsbæjar hefur
aflað gagna og rætt um ýmsa þætti
sem tengjast mögulegri sameiningu
sveitarfélaganna. Sveitarfélögin
fengu ráðgjafarfyrirtækið KPMG
til þess að afla gagna og vinna
skýrslu fyrir sameiningarnefndina
og hefur hún verið kynnt fyrir
sveitarstjórnum.
Samstarfsnefndin segir að í
ljósi þessara gagna og niðurstöðu
Jöfnunarsjóðs um framlög vegna
sameiningarinnar sem byggja á
núgildandi reglum sjóðsins telji
nefndin ekki forsendur til að ná
fram niðurstöðu í vinnuna þannig
að hægt sé að kjósa um sameiningu
fyrir sveitarstjórnarkosningar á
næsta ári.
Boðið fram í hverju
sveitarfélagi fyrir sig
Nefndin leggur til að á vegum
sveitarstjórnanna þriggja fari
fram viðræður við ráðuneyti
sveitarstjórnarmála þar sem
gerð verði grein fyrir afstöðu
sameiningarnefndarinnar.
Vísar nefndin einnig til skýrslu
ráðuneytisins um stöðu og
framtíð íslenskra sveitarfélaga frá
september sl. þar sem m.a. er lagt
til að ráðuneyti sveitarstjórnarmála
taki markvissari þátt í verkefninu
um styrkingu sveitarstjórnarstigsins
og fjárfesti í því. Það er því ljóst
að boðið verður fram í hverju
sveitarfélagi fyrir sig í komandi
sveitarstjórnarkosningum.
/MÞÞ
Grundarfjörður. Mynd / HKr.