Bændablaðið - 14.12.2017, Page 54

Bændablaðið - 14.12.2017, Page 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Í síðustu viku var haldin ráðstefna um möguleika þess að auka kolefnisbindingu á Íslandi. Ráðstefnan sem fór fram í Bændahöllinni var á vegum Landgræðslu Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarinnar og Bændasamtaka Íslands. Húsfyllir var á ráðstefnunni. Upptökur af öllum erindunum eru aðgengilegar á vefsíðunni bondi.is. Frummælandi ráðstefnunnar var Írinn Eugene Hendrick og fjallaði erindi hans meðal annars um þær aðgerðir sem Írar hafa ráðist í til að binda kolefni með breyttri landnotkun og aukinni skógrækt. Bændablaðið tók Hendrick tali að ráðstefnunni lokinni. Hendrick, sem er kominn á eftirlaun, er skógfræðingur að mennt og starfaði lengi við landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið á Írlandi og bar ábyggð á málefnum sem snerta skógrækt og loftslagsbreytingar. Eitt af verkefnum Hendrick var vinna sem sneri að aðkomu Íra að tillögu Evrópusambandsins til að draga úr magni kolefnis úr andrúmsloftinu. Markmiðið að draga úr losun um 40% „Tillaga Evrópusambandsins er tvíþætt. Í fyrsta lagi snýr hún að landnýtingu, breytingum á landnýtingu og skógrækt og hvernig gert er grein fyrir og hvernig ávinningur vegna kolefnisbindingar vegna skógræktar eða annars konar landnýtingu er nýttur. Hins vegar snýr tillagan að því hversu hátt hlutfall bindingarinnar hverrar þjóðar verður í heildarmarkmiði Evrópusambandsins. Í dag er stefnt að því að draga úr losun kolefnis út í andrúmsloftið um 40% frá því sem hún var 2005 fyrir árið 2030.“ Ávinningur skógræktar margþættur Hendrick segir að hlutverk skógræktar í að binda kolefni úr andrúmslofti sé mikið. „Ávinningurinn með skógrækt er einkum tvíþættur. Með skógrækt er kolefni í andrúmslofti bundið í trjánum og nytjar á skógarafurðum koma að hluta í staðinn fyrr nytjar á jarðefnaeldsneyti og eru ólíkt því endurnýjanlegar þegar nýjum trjám er plantað í stað þeirra sem eru felld. Timbur sem í er bundið kolefni er einnig hægt að nota til dæmis við húsbyggingar og getur komið í staðinn fyrir efnivið eins og stál, ál og steinsteypu, sem er orkufrek í framleiðslu.“ Að sögn Hendrick leggja Írar ríka áherslu á skógrækt um þessar mundir og að auka skógarþekju landsins meðal annars til að auka hlut landsins í bindingu kolefnis úr andrúmslofti. „Skógrækt á Írlandi hefur dregist saman undanfarin ár og er um 6,5 þúsund hektarar á ári eins og er en markmiðið er að planta út um átta þúsund hekturum af nýjum skógi á ári frá og með 2020. Ein ástæða þess að dregið hefur úr skógrækt á Írlandi undanfarin ár er að dregið hefur úr kjörlendi til skógræktar vegna skógræktar fyrri ára og önnur er að það er vöxtur í landbúnaði á Írlandi. Tekjur af mjólkur- og kjötframleiðslu eru miklar og hvatinn til skógræktar í staðinn fyrir búfjáreldi minni en áður.“ Hendrick segir að landeigendum á Írlandi sé í sjálfsvald sett hvort þeir breyti landnýtingu sinni yfir í skógrækt en ef þeir kjósi slíkt fái þeir opinberan styrk til að auðvelda þeim framkvæmdina og eftir það greiðslu í fimmtán ár. „Hugmyndin er meðal annars sú að með því að auka skógrækt sé verið að styrkja atvinnu á landsbyggðinni. Í dag starfa um tólf þúsund manns við skógrækt á Írlandi og sá fjöldi mun líklega aukast eftir því sem nytjar á skógunum verða meiri. Írland flytur enn inn talsvert af timbri en á sama tíma flytjum við einnig talsvert mikið út af borðviði, um 500 þúsund rúmmetra á ári, og megnið af því fer til Englands.“ Kolefnisbinding á Íslandi Hendrick segist vera að heimsækja Ísland í fjórða sinn og að hann telji að Ísland geti lagt mikið til þegar kemur að því að binda kolefni úr andrúmslofti með réttri landnýtingu. „Aukin skógrækt er líklega sú aðferð sem skilar mestu því auk þess að binda kolefni í timbri bindur skógurinn einnig kolefni í jarðvegi. Auk þess sem með tímanum gefa skógar af sér margs konar afurðir. Rannsóknir sýna að aukin skógrækt, hvort sem hún er á Íslandi eða annars staðar í heiminum, er ein besta landnýtingaraðferðin til að binda kolefni úr andrúmslofti. Auðvitað er líka hægt að auka bindingu kolefnis í ræktunarlandi og votlendi með því að draga úr áburðarnotkun og endurheimta votlendi með því að fylla upp í skurði á landi sem ekki er nytjað til landbúnaðar. /VH Ráðstefna um leiðir til að auka kolefnisbindingu á Íslandi: Aukin skógrækt besta leiðin til að binda kolefni úr andrúmslofti AUÐLINDIR&UMHVERFISMÁL Eugene Hendrick, skógfræðingur og sérfræðingur í bindingu kolefnis úr andrúmslofti, í pontu á ráðstefnu um möguleika á að auka kolefnisbindingu á Íslandi. Mynd / smh Útskriftarnemar í meistaranámi í hönnun við Listaháskóla Íslands stóðu fyrir viðburði á Hlemmi Mathöll á dögunum til heiðurs íslensku geitinni og kölluðu hann Hlemmur Geithöll. Viðburðurinn er afrakstur verkefna sem unnin voru í samstarfi við fjölmarga aðila. Á Hlemmi voru til sýnis ýmsar afurðir verkefnanna; meðal annars bók sem í verða upplýsingar og sögur um íslensku geitina. Margnota taupokar voru til sölu, hægt var að smakka þurrkaðar geitakryddpylsur og þurrkað geitakjöt. Á matseðli veitingastaðanna Kröst, Skál og La Poblana var boðið upp á rétti úr geitakjöti. „Eins og flestir vita hefur íslenska geitin verið í útrýmingarhættu en þær eru núna um 1.200 í landinu. Við vissum að til stendur að fjölga dýrunum í 7.000 á ákveðnu tímabili og vildum leggja okkar af mörkum til að vekja athygli á málinu,“ segir Andrea Magdalena Jónsdóttir, ein meistaranámsnemanna, þegar hún spurð um uppátækið á Hlemmi. Bókverk um íslensku geitina „Bókin var prentuð í 58 eintökum og hún til sölu á viðburðinum. Enn eru einhverjar bækur til sem auðvitað er hægt að kaupa. Þetta var ekki formleg bókaútgáfa með ISBN tölu en við sáum sjálf um textavinnu, myndatöku, uppsetningu, hönnun kápu og prentun. Í bókina voru teknar saman helstu upplýsingar um íslensku geitina, en ekki mikið er til á prenti um þær. Þess vegna lögðum við í vinnuna við að gera bók sem er einnig hálfgert bókverk því kápuna prýðir kasmírull. Í bókinni eru fallegar myndir og sex sögur af geitum frá Háafelli á Hvítársíðu, fróðleikur og fleira,“ segir Andrea Magdalena. MAST ekki tilkynnt um sýningu á tveimur geitum Á Hlemmi Geithöll gátu gestir skoðað tvær lifandi geitur. Að sögn Konráðs Konráðssonar, héraðsdýralæknis Suðvesturumdæmis, hafði Matvælastofnun (MAST) ekki verið tilkynnt um sýningarhaldið eins og reglur kveða á um að þurfi að gera. Vísar Konráð til 7. greinar reglugerðar um velferð sauðfjár og geitfjár, þar sem segir: „Umráðamanni sauðfjár og geitfjár sem nota á við gerð auglýsinga, kvikmynda, leiksýninga eða við aðrar aðstæður og/eða í umhverfi sem sauðfé og geitfé er ekki eðlilegt, ber að tilkynna Matvælastofnun um fyrirhugaða notkun eigi síðar en 10 dögum áður en áætluð notkun fer fram. Óheimilt er að hefja notkun fyrr en skilyrði varðandi húsnæði, búnað, notkun og þekkingu eru uppfyllt og hafa verið staðfest af Matvælastofnun að lokinni úttekt.“ Konráð segir að málið sé í skoðun hjá MAST. /smh Hlemmur Geithöll: Geitaafurðir og lifandi geitur til sýnis – Verk meistaranámsnema við Listaháskólann Hluti þess sem var sýnt á viðburð- inum; bækur um geitina, marg- nota taupokar og postulíns öskjur í laginu eins og geitahjarta – enda afsteypur af einu slíku. Þrekkur er unninn úr blöndu af geitataði, blóðbergi, hvönn, birki og fjalla- grösum og er hugsað sem viðbótar eldsneyti með kolum þegar grillað er. Mynd / Guðrún Margrét Ansnes Jóhannsdóttir Gestir fengu meðal annars að smakka á þurrkuðum geitalærum. Mynd / smh Bústólpi ehf • fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is Okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár, með þökk fyrir viðskiptin á árinu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.