Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 57

Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 eða að land sé yfirgefið er talin vísbending um hnignun þess. Á sama tíma getur yfirgefið land verið tækifæri til endurheimtar vistkerfis þess. Helstu ástæður þess að land er yfirgefið eru samdráttur í framleiðslu, flutningur íbúa til þéttbýlis, aukinn aldur íbúa, ágengar tegundir og breytingar á styrkjakerfi landbúnaðarins eða aðrir félagslegir þættir sem draga úr gildi landbúnaðar. Skógrækt og skógarnytjar hafa einnig mikil áhrif á vistkerfið. Felling skóga og sala á timbri er iðulega fyrsta skrefið í átt að ræktarlandi fyrir nytjajurtir eða undir beit. Umbreyting lands með þessum hætti leiðir til mikilla breytinga á vistkerfinu og vatnsbúskapar og að lokum hnignunar landgæða. Þéttbýlismyndun Áætlað er að fjöldi íbúa í þéttbýli muni aukast um 2,5 milljarða til ársins 2050. Fjölgunin mun leiða til útþenslu borga og í sumum tilfellum mun frjósamt ræktunarland tapast. Í dag er milli 2 til 3% lands í heiminum flokkað sem borgir en talið að það verði 4 til 5% árið 2050 og að þéttbýli í þróunarlöndum eigi eftir að þrefaldast til 2030. Gert er ráð fyrir að 1,6 til 3,3 milljón hektarar ræktunarland muni glatast vegna útþenslu borga milli 2020 og 2030. Einnig verður að líta til þess að helgunarsvæði borga nær langt út fyrir borgarmörkin. Fylgni er á milli stækkunar borga, skógareyðingar og flutninga á landbúnaðarvörum. Uppbygging innviða í þéttbýli Á sama tíma og íbúum í þéttbýli fjölgar eykst þörfin fyrir innviði, samgönguæðar, afrennsli, skolp- og raflagnir. Samtímis þarf að endurnýja innviði margra eldri borga. Uppbygging af þessu tagi er gríðarlega kostnaðarsöm og hún mun verða stór þáttur í vexti hagkerfa víða um heim. Í dag þekja borgir og innviðir þeirra yfir um 60 milljón hektara, sem er álíka stórt svæði og Úkraína, og talið að svæðið muni stækka um 100 til 200 milljón hektara næstu fjóra áratugina. Slíkar breytingar hafa bæði bein og óbein áhrif á landnýtingu. Bættar samgöngur og betri samgöngumannvirki leiða til útþenslu borga, hnignunar náttúrulegra vistkerfa og auka einnig hættuna á flóðum. Auk þess sem frárennsli borga mun hafa mengandi áhrif á grunnvatn og vistkerfi. Útþensla borga breytir einnig endurgeislun og útgufun og mun þannig hafa áhrif á nærvirði þeirra og nærliggjandi svæða. Umfang áætlaðrar uppbyggingar innviða mun laða að sér vinnuafl, draga úr landbúnaði í nærumhverfi borganna og stuðla að því að fólk yfirgefi dreifbýlið. Utan þéttbýlis valda vegir og járnbrautir um ósnortið land miklu tjóni á vistkerfinu sé verkið ekki vel undirbúið og vel skipulagt. Lagning samgönguæða geta leitt til fiskibeinsáhrifa þar sem margir minni vegir og slóðar liggja útfrá stofnæðum og auka utanvegaakstur. Slíkir hliðarvegir og slóðar geta valdið gríðarlegu tjóni á skógum og graslendi. Í Brasilíu er opinbert vegakerfi landsins 20.000 kílómetrar en óopinberir vegir og slóðar sagðir vera nálægt 200.000 kílómetrar og tengjast margir þeirra ólöglegu skógarhöggi og námuvinnslu. Auk þess sem vatnsaflsvirkjanir hafa gríðarleg áhrif á nærliggjandi vistkerfi. Orkuvinnsla Hvort sem uppspretta orku er endur- eða óendurnýjanleg hefur vinnsla hennar áhrif á auðlindir náttúrunnar. Víða í þróunarlöndunum þar sem viður er brenndur til orkuvinnslu er vinnslan stór þáttur í skógar- og jarðvegseyðingu vegna uppblásturs. Vinnsla og brennsla á olíu og jarðgasi hefur vegna mengunar leitt til gríðarmikilla loftslagsbreytinga sem aftur hefur áhrif á ástand lands og möguleikum til landnýtingar á stórum svæðum. Orkuvinnsla með „fracking“, jarðbrot með vökva til olíuvinnslu, er vatnsfrek og krefst mannvirkja, flutningslagna og samgöngumannvirkja. Margir hafa áhyggjur af aukinni tíðni jarðskjálfta í tengslum við jarðbrot og hugsanlegu heilsutjóni íbúa vegna þeirra. Evrópusambandið veitir styrki til orkuvinnslu úr viði og viðarafgöngum á þeim forsendum að vinnsla sé mikilvæg á sjálfbærri orku. Kolabrennslustöðvar í Evrópu brenna sífellt meira af viði frá Bandaríkjunum og Kanada, sem hefur leitt til aukinnar fellingar skóga og losunar á koltvísýringi út í andrúmsloftið þar. Þrátt fyrir að einu tré sé plantað fyrir hvert tré sem er fellt tekur milli 20 og 100 ár að ná fullri kolefnisjöfnun. Framleiðsla á endurnýjanlegri orku hefur einnig áhrif á land, landnýtingu og leiðir til hnignunar landgæða. Ræktun nytjaplantna til framleiðslu á lífdísil er ekki síður þurftarfrek á ræktarland en framleiðsla á pálmaolíu og sojabaunum og oft á kostnað skóga og graslendis. Áætlað er að árið 2010 hafi ræktun til framleiðslu á lífdísil verið á um 45 milljónum hektara og er gert er ráð fyrir að sú tala eigi eftir að tvöfaldast fyrir 2030 og ná til 3 til 4,5% af ræktarlandi heimsins. Uppistöðulón og vatnsaflsvirkjanir kaffæra stór landsvæði með vatni, þurrka önnur og veita aðgang að þeim og gefa kost á annars konar nytjum. Virkjanirnar þurrka upp votlendi og breyta farvegi áa og vatnsbúskapa stórra vistkerfa. Sólarsellur og vindmyllur taka einnig land svo og dreifingarkerfi þeirra. Jarðefna- og námuvinnsla Pólitískar og efnahagslegar sviptingar undanfarin ár hafa leitt til aukinna fjárfestinga í jarðefna- og námuvinnslu og samtímis til aukinnar hnignunar jarðvegs vegna skógareyðingar, brennslu gróðursvæða og jarðvinnslu. Sem aftur hefur leitt til gríðarlegs tjóns á umhverfinu og til félagslegra vandamála. Opin jarðvinnsla þar sem heilu fjöllin eru grafin burt valda ómældum umhverfisspjöllum auk þess sem námur sem grafnar eru í fjöll eða jörð falla saman og geta valdið skriðum, jarðvegseyðingu og mengun í jarðvatni. Vinnsla á dýrmætum málmum og steinefnum skilur eftir sig tuga milljóna tonna af úrgangsefnum, mengar vatn vegna notkunar á sýru við vinnsluna, henni fylgir mikil loftmengun sem hefur slæm áhrif á heilsu fólks og dregur úr uppskeru. Ólögleg jarðefna- og námuvinnsla sem fer fram án eftirlits er enn meiri mengunarvaldur. Til dæmis er notað mikið af brennisteinssýru og kvikasilfri við ólöglega gullvinnslu og bæði efnin eru gríðarlega hættuleg mönnum og miklir mengunarvaldar í jarðvegi og vatni. Óbeinir áhrifavaldar landeyðingar Síðustu tvær aldir hefur eftirspurn eftir gæðum lands og þjónustu þeim tengdum aukist margfalt. Óbeinar eða undirliggjandi orsakir landhnignunar tengjast því lífsstíl, efnahagskerfi og neyslumunstri sem aftur er flókin samsetning af lýðræðis-, stofnana-, félags- og menningalegum þáttum. Þessir þættir tengjast svo alþjóðaverslun með vörur, vöruverði, auknum fólksfjölda, innanlandsmarkaði, eftirspurn neytenda, stjórnarháttum, þróum samfélaga og efnahag heimila. Á landsvísu hafa veikburða stjórnarhættir, óstöðugleiki, skortur á samhæfingu, spilling og glæpir víða verið skilgreindir sem óbeinn áhrifavaldur landhnignunar. Frá því á sjöunda áratug síðustu aldar hafa viðskipti með landbúnaðarvörur á alþjóðamarkaði tífaldast og verslun með timbur sjöfaldast. Ein afleiðing þessa er að eftirspurn eftir góðu ræktunar- og beitarlandi hefur margfaldast. Viðskipti með auðlindir eins og jarðveg, vatn og land eru einnig orðin alþjóðleg. Viðskipti af þessu tagi hafa leitt til aukningar í landbúnaðarframleiðslu í þróunarlöndum þar sem stjórnkerfið er oft veikburða. Óbeinir áhrifavaldar land- hnignunar geta legið víðs fjarri áhrifasvæðinu. Aukin kjötneysla í Kína hefur leitt til aukinnar ræktunar á soja sem fóður fyrir svín og fiðurfé í Brasilíu. Aukin eftirspurn eftir timbri og friðun skóga í Kína og Finnlandi hefur leitt til vaxandi skógarhöggs í Rússlandi og útflutnings á timbri til Kína. Við hrun Sovétríkjanna dró verulega úr landbúnaði og leiddi til aukins innflutnings á nautakjöti frá Brasilíu til Rússlands og aukinna þarfa fyrir beitiland í Brasilíu. Eigendur lausafjár eru í auknum mæli farnir að fjárfesta í landi í dreifbýli og þar komið fram nýr óbeinn áhrifavaldur þegar kemur að landnýtingu. Síðustu áratugi hefur hag smærri býla staðið ógn vegna aukinna krafna um lægra matarverð og aukinnar framleiðslu verksmiðjubúa. Krafan er studd af stórum verslanakeðjum og innkaupamunstri neytenda. Þróunin hefur lækkað matvælaverð og komið sér vel fyrir efnaminni neytendur. Lægri tekjur framleiðenda leiða hins vegar til minni fjárfestinga og auka líkur á sameiningu býla og minnka líkurnar á að bændur geti lifað af þeim tekjum sem býli gefa af sér. Þessi þróun getur haft mikil áhrif til aukinnar landhnignunar á komandi áratugum þegar bændur á minni býlum hætta búskap og flytja í þéttbýlið. Í dag er um 36% af öllu landi í heiminum, að Grænlandi og Suðurheimsskauts- landinu undanskildum, nýtt til landbúnaðar. mönnum og miklir mengunarvaldur í jarðvegi og vatni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.