Bændablaðið - 14.12.2017, Side 69
69Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017
en eftir að sniglarnir hafa náð
réttri stærð eru þeir tíndir og
settir í sérstök búr og á sérstakt
lokaeldisfóður. Eftir það er
meltingarvegurinn hreinsaður
með vatnsfóðrun og á sama tíma
er dagsljósinu stýrt, þannig að
líkami þeirra bregst við eins og
komið sé haust þegar ekkert er
lengur að éta og dagsbirtan minni.
Þegar þetta gerist fara sniglarnir í
dvala og draga sig inn í kuðunginn
og þá eru þeir tilbúnir og eru settir
í aflífun í gufuofni. Þar sem þeir
eru í dvala er þetta talin afar góð
aðferð við aflífun. Eftir stutta suðu
er kjötið tekið úr skelinni, sett í
lofttæmdar umbúðir og fryst.
Eggin hrein lúxusfæða
Þó svo að sniglarnir sjálfir séu
mikilvægasta afurð þessa sérstaka
bús þá eru egg þeirra afar verðmæt
einnig. Fái sniglar rétt fóður og
hitastig geta þeir framleitt 60–100
egg á tveggja vikna fresti og þarf
egg frá 8–12 sniglum til þess að eiga
nóg í lágmarks 30 gramma söluhæfa
einingu af eggjum.
Ditte og Carsten eru með sérstaka
bolla sem sniglarnir verpa í og svo
eru eggin handhreinsuð og þvegin
afar gaumgæfilega. Þau eru svo
flokkuð í gæðaflokka og lögð í pækil
áður en þeim er pakkað til sölu.
Þessi egg eru afar verðmæt og
má nefna sem dæmi að svokallaður
sniglakavíar, sem gerður er úr
sniglaeggjum, kostar um 250
þúsund krónur kílóið. Svona
lostæti er í dag aðallega framleitt
í Frakklandi og Ítalíu og er oft á
boðstólum á svokölluðum Michelin
veitingastöðum.
Veðja í fyrstu á veitingahúsin
Ditte vonast til að þessi nýja búgrein
eigi eftir að blómstra í Danmörku og
dafna vel. Að hennar sögn er hægt
að nota kjötið af sniglunum í margs
konar veislurétti, bæði má grilla þá,
nota í sósur, setja á pitsur eða hvað
sem er. Þá sé kjöt snigla einkar
heppilegt að samsetningu, bæði
fitusnautt og próteinríkt. Í fyrstu er
markmið hennar að selja sniglana á
veitingastaði landsins en síðar meir
er hugmyndin að koma sniglunum
í sölu í verslunum sem sérhæfa sig
í að selja hágæða matvörur.
Engin vetrarvinna
Það má hverjum vera ljóst að
sniglabúskapur er afar sérhæfður
og ein af mörgum ástæðum er sú að
búskapurinn leggst í raun alveg af á
haustin eftir afurðavinnsluna, þá fer
búið í vetrardvala líkt og sniglarnir
sjálfir á meðan eggin bíða þess að
klekjast að vori og þá hefst vinnan að
nýju við þessa áhugaverðu búgrein.
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Ekki allir sniglar stækka, þroskast og henta til neyslu. Sumir eru og verða Sniglakavíar er mikið lostæti, hér borinn fram á brauði með rauðbeðum
og osti.
FÉLAG
EGGJAFRAMLEIÐENDA
FÉLAG
KJÚKLINGABÆNDA
Samband íslenskra
loðdýrabænda
Bændur og búalið og aðrir
landsmenn!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.