Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 71

Bændablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 71
71Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 Í sumar stóð Yara á Íslandi fyrir gróffóðurkeppni milli útvaldra bænda víðs vegar um landið. Markmið keppninnar er að vekja athygli á gróffóðuröflun og hvetja menn til að leita allra leiða til að bæta gæði og magn uppskerunnar. Valdir voru 6 bændur til að taka þátt í keppninni. Þeir áttu það allir sameiginleg að kaupa Yara áburð hjá Sláturfélagi Suðurlands og ekki síður að hafa sýnt metnað og góðan árangur í sinni gróffóðuröflun. Árangur keppenda var metinn út frá gæðum og magni gróffóðurs. Eftirfarandi aðilar tóku þátt í keppninni: Á Vesturlandi Magnús Þór Eggertsson, Ásgarði. Á Norðurlandi Guðmundur Óskarsson, Hríshól og Halldór Örn Árnason, Grund. Á Austurlandi Björgvin Gunnarsson, Núpi. Á Suðurlandi Ágúst Ingi Ketilsson, Brúnastöðum og Stefán Geirsson, Gerðum. Ágúst Ingi Ketilsson sigurvegari Eftir að allar upplýsingar höfðu verið dregnar saman og reiknuð út stig eftir fyrirfram ákveðnum reglum stóð Ágúst Ingi Ketilsson, Brúnastöðum í Flóa, uppi sem sigurvegari. Það var reyndar ótrúlega lítill munur á milli keppenda, en það sem einkum réði úrslitum var að Ágúst var með mjög góða uppskeru í magni og gæðum bæði í fyrri og seinni slætti. Hver er uppskriftin af besta gróffóðrinu? Sáðgresið í keppnisspildunni á Brúnastöðum er SS-tún; 70% vallarfoxgras (25% Switch, 45% Vega), 30% Hávingull Norild. Þann 26. apríl voru borin á 20 tonn/ha af kúamykju. Allir keppendur tóku skítasýni sem var svo greint hjá Efnagreiningu á Hvanneyri. Misjafnt var hvort notað var íblöndunarefni í skítinn eða ekki. Ágúst sett þann 1. desember 2016 íblöndunarefni í kúamykjuna. Þann 5. maí var borin á 500 kg/ ha af NPK 22-6-6 Se. Sláttur hófst 13. júní, slegið var með knosara og snúið einu sinni. Daginn eftir var rúllað og pakkað, notað var íblöndunarefnið. Þann 16 júní voru rúllurnar teknar af velli. Fjöldi rúllna á ha var 12,5 og meðalþyngd 987 kg/rúllu. Þurrefnið var 33,9%. Þann 18. júní var borin á 150 kg/ha af Opti KAS. Þann 28. júlí var slegið, ekki með knosara, og snúið. Daginn eftir var snúið aftur og svo þann 30. júlí var rúllað og pakkað. Ekkert íblöndunarefni var notað líkt og í fyrsta slætti. Fjöldi rúllna á ha var 5,2 og meðalþyngd 656 kg/rúllu. Þurrefnið var 66,7%. Hvað getum við lært af gróffóðurkeppninni? Gróffóðurkeppnin getur kennt okkur ótrúlega margt og er mjög fræðandi fyrir margar sakir. Fyrir það fyrsta sjáum við mikinn breytileika milli búa varðandi uppskerumagn. Það á sér skýringar í ýmsum þáttum eins og veðurfari, frjósemi jarðvegs og bústjórn. Meðal uppskerumagn allra þátttakenda var um 7.500 FEm/ha. Sá sem náði mestri uppskeru var með um 10.300 FEm og sá sem var með minnstu uppskeruna var með um 5.900 FEm. Í báðum tilvikum er sennilega kostað svipuðu til gróffóðuröflunarinnar, en kostnaður á hverja gróffóðureiningu ólíkt lægri hjá þeim sem hafði mesta uppskeru. Hins vegar er uppskerumagnið ekki allt. Gott gróffóður þarf að uppfylla ýmsar kröfur varðandi orkuinnihald, prótein og magn steinefna. Lykillinn að árangri er að láta greina gróffóðrið og ekki síður að gefa sér tíma til að vigta rúllur og meta uppskeru. Forsenda þess að ná árangri er að hafa upplýsingar um hver staðan er. Þannig má greina styrkleika og veikleika og bæta þá þætti sem við á. Til að hámarka nýtingu hverrar spildu fyrir sig væri rétt að athuga hvort ekki væri betra að bera á tvígildan eða jafnvel þrígildan áburð milli slátta, sérstaklega þegar bændur eru farnir að slá þrisvar sinnum. Eins er mikilvægt að bera á sem fyrst eftir hvern slátt til að hámarka nýtingu áburðarefnanna. Hverjum slætti er í raun ekki lokið fyrr en rúllurnar eru komnar í stæðu. Þakkir Yara á Íslandi þakkar öllum keppendum í gróffóðurkeppninni fyrir þátttökuna og óskar þeim alls hins besta á nýju ári. Ágúst Ingi Ketilsson var sigurvegari í gróffóðurkeppni Yara á Íslandi 2017 Kúamykja NPK 22-6-6 Samtals áburðarefni: 175 47 94 44 17 18 0,1 0,008 Magn N P K Ca Mg S B Se Opti KAS 27 Samtals tilbúin áburðarefni: 158 30 29 16 4 15 0,1 0,008 Samtals áburðarefni: 225 47 94 53 21 18 0,1 0,008 Mynd 1: Áburðargjöf fyrir keppnisspilduna á Brúnastöðum Sigurvegarinn, Ágúst Ingi Ketilsson á Brúnastöðum. 175 140 150 120 132 194 50 59 46 72 41 32 39 0 50 100 150 200 250 300 Brúnastaðir Gerðar Ásgarður Grund Hríshóll Núpi Áb or ið m ag n N, k g/ ha 1. sl 2. sl 3. sl 182 217 266 225 240 120 MYND 3: Áborið köfnunarefni með búfjáráburði og tilbúnum áburði hjá öllum þátttakendum 5,0 3.722 2.184 2.834 2.252 1.068 2.1832.0371.878 3.711 2.753 1.886 3.591 2.671 1.832 5.005 5.329 0 1.000 2.000 3.000 4.000 5.000 6.000 1. sl 2. sl 3. sl 1. sl 2. sl 3. sl 1. sl 2. sl 3. sl 1. sl 2. sl 3. sl 1. sl 2. sl 3. sl 1. sl 2. sl 3. sl Brúnastaðir Gerðar Ásgarður Grund Hríshóll Núpi He ild ar u pp sk er a, F em /H a 21,0 15,5 9,0 8,5 17 9,5 3,0 14,0 4,5 15,0 15,0 14,0 13,5 8,5 Uppskera FEm/ha Einkunn fyrir gæði uppskeru 9,0 MYND 2: Samanburður milli keppenda á uppskerumagni og einkunn fyrir gæði uppskeru Hér má sjá hversu mikið var borið á af köfnunarefni fyrir hvern slátt. Heildarmagn köfnunarefnis sem borið var á er Hér má sjá samanburð milli þátttakenda hvað varðar uppskerumagn. Tölurnar inn í súlunum eru FEm/ha og tölurnar fyrir ofan eru einkunn sem fékkst fyrir gæði uppskerunnar. Hægt var að fá 22 stig fyrir hvern slátt. Bændur réðu því hversu marga slætti þeir tóku. Samanlagður stigafjöldi ásamt uppskerumagni skar síðan úr um það hver stóð uppi sem sigurvegari. Fyrirmynd af þessari einkunnargjöf er fengin frá Yara í Noregi. Á FAGLEGUM NÓTUM Er erfðamengisglugginn að opnast holdanautabændum? Þann 4. nóvember sl. setti American Angus Association (AAA), ræktunarfélag Angus gripa í Bandaríkjunum, á markað próf sem ætlað er til nota við erfðamengisúrval í ræktunarstarfi þessa útbreidda holda nautakyns. Það tekur til allra eiginleika í kynbótas tar f inu , byggir á greiningu arfgerðar 380.000 gripa í skýrsluhaldi og nær yfir um 50.000 einbasabreytileika í erfðamenginu. Prófið er þróað í samvinnu við fyrirtækið Neogen. Undirritaður komst í samband við Stephen Miller, forstöðumann kynbótarannsókna AAA og hefur, í ljósi mikilla ætternistengsla fósturvísanna við Norður-Ameríku, kannað möguleika á að gera þessi próf á kálfunum þegar þeir koma í heiminn hér á landi. Til þess þyrfti nýja einangrunarstöðin á Stóra- Ármóti að ganga í félagið (félagar í AAA eru staðsettir víða um heim). Árgjaldið er rúmlega 8.000 krónur á bú og skrá þarf gripina í ættbók þess, en gjaldið er rúmlega 700 kr. á kálfinn. Þetta á þó ekki við um þá gripi sem eru með rauðan Angus í framættum, þar sem AAA lítur á rauðan Angus sem annað kyn en það svarta og tekur ekki við skráningum á því rauða (74029 Horgen Erie á rauða forfeður). Prófið sjálft kostar tæplega 4.000 kr. pr. grip. Nú skiptist Angus kynið í fjölmarga undirhópa, eiginleikar kunna að vera skilgreindir með öðrum hætti þar vestra og því ekki víst að framangreind próf gefi okkur vitræna niðurstöðu. Að mínu viti er þó ekkert annað í stöðunni en að láta á það reyna, hvort fá megi vísbendingu um kynbótagildi þeirra gripa sem verið er að flytja hingað til lands. Baldur Helgi Benjamínsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.