Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 78

Bændablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 78
78 Bændablaðið | Fimmtudagur 14. desember 2017 É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Fyrsti bíllinn sem ég eignaðist 17 ára var Opel Rekord 1966 sem þá var orðinn 11 ára gamall og afar þreyttur. Hann var svo þreyttur að vinna þurfti í honum í einn dag svo að hægt væri að keyra hann í tvo daga. Opel Rekord var einn mest seldi bíllinn frá Opel og var afar vinsæll sem fjölskyldubíll á árunum 1966 til 1970. Nú er kominn nýr rúmgóður og kraftmikill bíll frá Opel sem er sportlegur fjölskyldubíll með gott innrými og pláss fyrir mikinn farangur. Mikið lagt upp úr öryggi og þægindum Opel Insigma er fáanlegur í þrem mismunandi gerðum, Enjoy 1,5L bensín-túrbó, Innovation 1,5L bensín-túrbó og 1,6L dísil-túrbó. Bíllinn sem ég prófaði var 1,5L bensín-túrbó bíllinn sem skilar 165 hestöflum (dísilbíllinn er 136 hestöfl). Öryggisþættirnir eru margir, s.s. akreinalesari sem les ótrúlega vel hvítu línurnar í vegköntunum þrátt fyrir að þær séu ekki alltaf vel sjáanlegar með berum augum. Blindhornsvari og hliðarvörn er í bílnum, fjarlægðarvari í næsta bíl fyrir framan sem lætur vita hvort ekið sé of nálægt næsta bíl fyrir framan (mismunandi fjarlægð sem miðast út frá hraða hverju sinni). Þægindi fyrir ökumann og farþega, frammi í bílnum er hiti í sætum og upp á bak, en bíllinn sem prófaður var er með leðursæti og í svoleiðis bílum finnst mér að öll sæti ættu að vera upphituð (líka aftursæti). Einnig er hiti í stýrinu sem hentar vel í kulda eins og hefur verið undanfarna daga. Bakkmyndavél og skiltalesari að verða staðalbúnaður í bílum Síðustu 3–5 ár hefur orðið mikil framför hjá flestum bílaframleiðendum samanber að nú eru flestir bílar komnir með bakkmyndavél, GPS leiðsögukerfi, blindhornsvara og skiltalesara sem les umferðarskiltin um hámarkshraða og lætur vita í mælaborðið hver hámarkshraðinn er á hverjum stað. Í sumum bílum er hægt að stilla hámarkshraðann í bílnum eftir þessum skiltalesara. Allur þessi búnaður er í Opel Insigma og meira til, s.s. bílastæðaaðstoð (hjálpar til að leggja í stæði) og sjálfvirk rafstýrð neyðarhemlun svo eitthvað er nefnt. Að sitja í ökumannssætinu getur stundum verið þreytandi, en í Opel Insigma er hægt að stilla bílstjórasætið á átta vegu og einnig að setja fram litla framlengingu fyrir læri (sem mér finnst mjög gott þegar ekið er langt). Eyðsla minni en ég gerði ráð fyrir Að keyra bílinn er gott og hávaði að utan inn í bílinn er með minna móti sem bendir til þess að bíllinn sé vel hljóðeinangraður. Fjöðrun er skemmtileg á malbiki, stíf og með sportbílaeiginleika. Á malarvegi var fjöðrunin of stíf þar sem dekkin gefa nánast ekkert eftir þegar ekið er í dæmigerðar holur á malarvegum. Bíllinn sem ég prófaði var á 18 tommu felgum, en hægt er að fá hann á 17 tommu felgum með hærri dekkjum sem gefa betur eftir á möl, en eru síðri í miklum leik á malbiki. Þrátt fyrir að bíllinn væri á harðkorna vetrardekkjum mældist hávaðinn inni í bílnum ekki nema 58db. (mæli alltaf eins með db. mæli á hægra læri á 90 km hraða á malbiki). Fyrirfram hafði ég ímyndað mér að svona stór bíll með svona kraftmikla vél væri að eyða nálægt 10 lítrum á hundraðið, en að loknum prufuakstri hafði ég farið 120 km. Í blönduðum akstri og samkvæmt aksturstölvunni var mín eyðsla 8,5 lítrar á hundraðið á meðalhraða upp á 49 km. Fáir mínusar, en margir plúsar Eftir aksturinn fór ég yfir alla þá þætti sem prófaðir voru, en mér fannst bíllinn frekar hastur á holóttum malarvegum. Full lágt var til lofts fyrir farþega í aftursætum. Voru aðeins örfáir sentímetrar til lofts frá mínu höfði þegar ég sat í aftursætinu, en ég er 175 cm. Varadekkið er það sem ég kalla aumingi og varla boðlegt íslensku vegakerfi. Plúsarnir voru svo fjölmargir að varla er pláss á prenti fyrir þá alla, en hrifnastur var ég af hitanum í stýrinu, fjarlægðarskynjaranum í næsta bíl á undan, stóru farangursrými, hljómtækjunum, hljóðeinangrun frá umhverfishljóðum og ökumannssætinu. Verðið á Opel Insigma er frá 4.290.000 og upp í 4.990.000. OPEL Insigna Innovation. Myndir / HLJ Blindhornsvari er nú að verða staðalbúnaður í bílum sem vonandi verður skyldubúnaður. Dekk með svona lágan prófíl gefa nánast enga fjöðrun á holóttum malarvegum. Lofthæð fyrir farþega í aftursæti er með minna móti. Undir plötunni í stóru farangursrýminu er varadekksaumingi sem er þó Nokkuð sáttur í lok prufuaksturs með eyðsluna. Grænn bíll fyrir framan segir fjarlægð í hann vera í lagi. Gulur bíll, segir að of stutt bil sé í bílinn fyrir framan. Hæð 1.455 mm Breidd 1.941 mm Lengd 4.897 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.