Bændablaðið - 06.04.2017, Page 2

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Aðalfundur Landssambands kúabænda: Staðinn verði vörður um bann við innflutningi á hráu og ófrosnu kjöti Þessa dagana er verið að safna tilnefningum til norrænu matarverðlaunanna Emblu. Skráningarfrestur er til 17. apríl. Verðlaununum er ætlað að upphefja allt það sem norrænt er í mat og matar- menningu. Það eru bændasam- tök á Norður- löndunum í sam- vinnu við Norrænu ráðherranefndina sem veita verðlaunin við hátíðlega athöfn í Kaupmannahöfn síðsumars. Á vefsíðunni emblafoodaward. com er tekið við tilnefningum í sjö flokka sem eru: • Matvælaiðnaðarmaður Norðurlanda 2017 • Hráefnisframleiðandi Norðurlanda 2017 • Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir marga 2017 • Matarblaðamaður Norðurlanda 2017 • Mataráfangastaður Norðurlanda 2017 • Matvælafrumkvöðull Norðurlanda 2017 • Norðurlandaverðlaun fyrir mat fyrir börn og ungmenni 2017. Hægt er að skrá þátttakendur í Emblu til hádegis þann 17. apríl 2017. Skráningareyðublöð fyrir flokkana sjö (á íslensku) er að finna á www.emblafoodaward.com, en þar má einnig fræðast betur um verðlaunin og tilurð þeirra. Aðalfundur Landssambands kúa- bænda samþykkti tillögu þar sem þess er krafist að Alþingi standi vörð um bann við innflutningi á hráu og ófrosnu kjöti, sem kveðið er á um í 10. gr. laga um dýra- sjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993. Þá segir að innflutningi á hráu kjöti fylgi bæði aukin hætta á mat- arsýkingum og verulega aukin hætta á sýkingum af völdum lyfjaónæm- um bakteríum, auk hættu á að nýir búfjársjúkdómar nái fótfestu hér- lendis. Um árabil hefur innflutning- ur verið bannaður á hráu, ófrosnu kjöti, en nú sýnist tvísýnt um það bann, bæði vegna alþjóðlegra skuld- bindinga og vegna þrýstings frá þeim sem telja sig hafa hag af auknum innflutningi búvara. Góður árangur hér á landi í baráttu gegn sjúkdómum Í greinargerð með tillögunni segir að góður árangur hafi náðst hér á landi í baráttu gegn sjúkdómum sem borist geta með hráu, ófrosnu kjöti, s.s. salmonellu- og kamfýló- baktersýkingum, sem breytast með innflutningi á fersku kjöti, en frysting veikir mjög smitefni í kjöti. Meiru varði þó að mjög strangar reglur gildi um notkun fúkkalyfja í landbúnaði hér og notkun þeirra ein sú minnsta sem þekkist í heiminum. Það endur- speglist í lágri tíðni sýkinga með fúkkalyfjaónæmun sýklum, en slíkar sýkingar eru taldar mikil ógn við lýðheilsu á komandi árum. Loks er í greinargerðinni minnt á að búfjársjúkdómar geta hæglega borist með innfluttu fersku kjöti en vegna langvarandi einangrunar íslenskra búfjárstofna eru þeir afar berskjaldaðir gagnvart framandi smitefnum. „Því er svo við að bæta að oft er mjög erfitt að greina uppruna- land innfluttra matvæla og þar með átta sig á við hvaða aðstæður fram- leiðslan fer fram. Með innflutningi á fersku kjöti er því bæði verið að tefla í nokkra tvísýnu lýðheilsu þjóðarinnar og taka áhættu varð- andi heilbrigði búfjárstofna,“ segir í ályktun frá aðalfundi LK. /MÞÞ Embla 2017 Álag á ferðamannastaði hefur aukist mjög samfara sprengingu í heimsóknum erlendra ferða- manna til Íslands og er ekkert lát á. Umhverfisstofnun hefur víðtækt verndunarhlutverk þegar kemur að náttúru Íslands og þá einkum er varðar friðlýst svæði. Á vefsíðu stofnunarinnar eru raktar nokkrar tölur um áætlaðan fjölda á ýmsa viðkomustaði hér á landi og álag af mannavöldum. Ferðamálastofa áætlar út frá svörum úr ferðavenjukönnun erlendra gesta að sumarið 2016 hafi fjöldi erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll verið 664.113 talsins. Í könnun Ferðamálastofu, svo eitt dæmi sé nefnt, sögðust 71,2% aðspurðra hafa heimsótt Suðurland. Má því gróflega áætla að tæplega 473 þúsund þeirra erlendu ferðamanna sem til landsins komu hafi heimsótt landshlutann. Með sömu aðferð heimsótti nálega annar hver erlendur ferða- maður Norðurland sumarið 2016, eða 333.400 gestir. Tæplega tvöfalt fleiri erlendir ferðamenn heimsóttu Reykjavík. Alls 95,6% allra erlendra ferðamanna höfðu viðdvöl í höfuð- borginni sumarið 2016, alls um um 635.000 erlendir gestir. Svo nokkrir vinsælir viðkomu- staðir séu valdir af handahófi út frá tölum Ferðamálastofu má áætla að 23,4% erlendra gesta hafi sumarið 2016 sótt Bláa lónið, eða 155.400 manns. Um 40% heimsóttu Ásbyrgi- Dettifoss, 62,6% erlendra gesta sóttu Geysi-Gullfoss heim sumarið 2016, eða hvorki fleiri né færri en 415.700 manns. Eru þá íslenskir gestir ónefndir. /MÞÞ Stóraukið álag á náttúruperlur Aðalfundur Landssambands landeigenda: Löggjafinn verður strax að setja skorður við uppkaupum útlendinga á heilu byggðarlögunum á Íslandi Örn Bergsson, formaður Landssambands landeigenda (LLÍ), var ómyrkur í máli gagnvart mögulegum uppkaupum erlendra einstaklinga eða fyrirtækja á fjölda jarða í sveitum landsins á nýlegum aðalfundi samtakanna í Reykjavík. Örn sagði meðal annars í skýrslu sinni til félagsmanna á fundinum: „Kaup breska auðjöfursins á Grímsstöðum og nokkrum jörðum í Vopnafirði, þar sem hann að auki falast eftir hálfri sveit í Þistilfirði, vekur mig til umhugsunar. Er þetta það sem við viljum, erum við tilbún- ir að selja landið? Heilu sveitirnar til erlendra auðjöfra? Leggja þær þess vegna í eyði? Eða að við verðum leiguliðar í eigin landi?“ Þarf að setja skorður „Erlendir aðilar hafa gegnum árin fjárfest í jörðum og reist myndar- lega hestabúgarða hér á landi. Það hefur verið bara jákvætt, ég geri enga athugasemd við það, en að auðjöfrar fari að kaupa upp heilar sveitir til að drottna yfir þeim og þá sérstaklega veiðihlunnindum hlýtur að vekja mann til umhugsunar. Ég tel að þarna þurfi að setja skorður við áður en stefnir í óefni. Búseta og atvinna í sveitum landsins hlýtur í framtíðinni sem hingað til að byggja á því að bændur eigi ábúðarjarðir sínar. Verði sveit- irnar keyptar af erlendum auðmönn- um munu þær eyðast til lengri tíma litið. Fram hjá þessu verður ekki litið og þótt skiptar skoðanir kunni að vera innan okkar samtaka um hvernig skuli bregðast við má öllum vera ljóst að höfðinu verður ekki stungið í sandinn. Hjáseta er ein- faldlega ekki í boði.” Uppkaup munu eyða sveitunum Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að uppkaup jarða í sveit- um mun til lengri tíma eyða þeim. Það er almennt viðurkennt að það sé óaðskiljanlegur hluti sjálfstæðis ríkis að eignarréttur á landi og auð- lindum hvíli almennt hjá þegnum þess.“ Stjórnvöld bregðist strax við hættunni Örn sagði í samtali við Bændablaðið að loknum fundinum að afar brýnt væri að knýja stjórnvöld til að bregðast strax við hættunni á að heilu og hálfu byggðarlögin yrðu í eigu útlenskra auðmanna sem gætu farið sínu fram án þess að landsmenn gætu rönd við reist. Þetta ætti ekki einungis við um búskap og veiði- réttindin heldur væri mun meira í húfi, til að mynda vatnsréttindi, aðgangur að ferðamannastöðum, uppgræðsla og vernd náttúrunnar, svo fátt eitt væri nefnt. Vísaði Örn meðal annars til for- dæmis Dana í þessu efni, sem sett hefðu ríkar skorður við eignarhaldi útlendinga á jarðnæði í Danmörku. Engan tíma mætti missa, eins og Vopnafjarðarmálið sýndi, yfirvöld yrðu strax að taka málið föstum tökum í samráði við hlutaðeigandi aðila. /HP FRÉTTIR Arnar Árnason, formaður stjórnar Landssambands kúabænda. Mynd / MÞÞ Örn Bergsson varar við uppkaupum erlendra einstaklinga og fyrirtækja á jöðrum í sveitum landsins. Mynd / HKr. Þingsályktunartillaga um landakaupamál lögð fram í fjórða sinn á sex árum: Endurskoðun á lagaumhverfi varðandi uppkaup á landi Þingsályktunartillaga um endur- skoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi var lögð fram á Alþingi 20. mars síðastliðinn. Er þetta í fjórða skiptið á síð- ustu sex löggjafar þingum sem málið er lagt fram í óbreyttri mynd og í greinar- gerð með henni kemur fram að tilefnið sé enn hið sama; að enn kaupi erlendir auð- menn mikilvægar landareignir á Íslandi. Flutningsmenn eru Svandís Svavarsdóttir, Lilja Rafney Magnús- dóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson. Komið í veg fyrir uppkaup erlendra aðila á landi Í þingsályktunartillögunni er gert ráð fyrir að ríkisstjórninni verðið falið að láta endurskoða lög og reglugerðir er varða uppkaup á bújörðum og öðru nytjalandi, svo og óbyggðum. Markmið með endur- skoðuninni verði meðal annars: a. Að setja skýrar reglur sem miði að því að koma í veg fyrir upp- kaup erlendra aðila, sem ekki hafa hér lögheimili og fasta búsetu, á landi; b. Að huga að almennum við- miðum, svo sem landstærð, nýtingu landgæða og fjölda landareigna sem heimilt er að sé á hendi eins og sama aðila; c. að horfa til umhverfissjónarmiða og ákvæða um almannarétt í allri lagaumgjörð og taka þar m.a. mið af sérstökum aðstæð- um varðandi landbúnaðarland, óbyggðir og náttúruauðlindir (svo sem vatn og jarðhita); d. að tryggja samræmi í réttar- heimildum. Ekki skipað í starfshóp Gunnars Braga Eitt af síðustu embættisverk- um Gunnars Braga Sveinssonar, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðar ráðherra, var að stofna þriggja manna starfshóp til að leggja mat á það hvaða takmarkanir komi helst til greina til að viðhalda rækt- anlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins. Kom það í kjölfar áralangrar umræðu í þjóðfélaginu um kaup erlendra aðila á bújörðum á Íslandi. Hópnum var ætlað að skoða þær takmarkanir sem er að finna í löggjöf nágrannalanda Íslands eins og Noregs, Danmörku og Möltu og rúmast innan EES-samningsins. Bændasamtök Íslands tilnefndu Einar Ófeig Björnsson sem sinn fulltrúa í hópinn. Hann segir að það hafi enn ekki verið formlega skipað í hópinn. Gert var ráð fyrir að hópurinn skilaði tillögum sínum í júní 2017 í síðasta lagi. /smh Goðafoss. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.