Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 7

Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Íslandsstofa, í samstarfi við aðalræðisskrif- stofu Íslands í New York, skipuleggur nú ferð fyrir íslenska framleiðendur og útflytjendur á matvælum og drykkjarvörum, til New York dagana 24.–27. júní 2017. Tilgangur ferðarinnar er fyrst og fremst að kynnast sérvörumarkaðnum og viðskiptaum- hverfinu í Bandaríkjunum, með áherslu á aust- urströnd Bandaríkjanna og New York. Farið verður á Fancy Food-sýninguna í New York, matvörumarkaðir og sérvöruverslanir heimsótt- ar og þátttakendur fá kynningu á viðskiptaum- hverfinu í Bandaríkjunum. Þátttaka í ferðinni er kjörið tækifæri fyrir matvælafyrirtæki sem hafa hug á að kynna sér matvælageirann (eink- um sérvörumarkaðinn) í Bandaríkjunum nánar, komast í tengsl við dreifingaraðila og kanna grundvöll eða hefja útflutning. Allar nánari upplýsingar um ferðina er að finna á vef Íslandsstofu, www.islandsstofa.is. Ný stjórn Landssambands kúabænda var kjörin á aðalfundi samtakanna sem haldinn var Akureyri nýverið. Arnar Árnason var endurkjörinn for- maður samtakanna, en aðrir í stjórn eru Bessi Freyr Vésteinsson, Hofsstaðaseli, Elín Heiða Valsdóttir, Úthlíð, Herdís Magna Gunnarsdóttir, Egilsstöðum og Pétur Diðriksson, Helgavatni. Þessi stjórn verður starfandi starfsárið 2017 til 2018. Stjórnarmenn eru jafnframt Búnaðarþingsfulltrúar Landssambands kúa- bænda 2017 til 2019. Varamenn voru kjörn- ir þeir Davíð Logi Jónsson, Egg og Rafn Bergsson, Hólmahjáleigu. /MÞÞ MÆLT AF MUNNI FRAM Núna, liðugri viku eftir vorvísnagerð Skarphéðins Ásbjörnssonar, mylgrar hér niður snjó við Eyjafjörð. Samt er kominn einhver vorhugur í þjóðina. Alla vega er byrj- að að bruma í sálinni á Ingólfi Ómari Ármannssyni, en að sunnan sendi hann næstu þrjár vorvísur: Blika drangar blánar ver blær um vanga líður. Vorsins ganga greiðfær er glóey fangið býður. Seður lýði glóey góð, glæðir tíðin þorið. Kveður þýðan ástaróð yndisblíða vorið. Vorið blíða vekur þrá, vonir lýði fanga. Glóey skrýðir grund og sjá grös í hlíðum anga. Fyrir allnokkru bárust fregnir af báglegu ástandi frárennslismála í Mývatnssveit. Þjóðin bókstaflega gól af gremju yfir ástandi skólpmála í þessari náttúruperlu Norðurlands. Eftir að hafa hlýtt á umræður í Kastljósi sjónvarpsins orti Davíð Hjálmar Haraldsson á Akureyri þessa vísu: Það er fjör og hamagangur hér, á hótelinu allir flýta sér að skíta í Mývatn meðan það er hreint. Á morgun snemma verður það of seint. Líkt og fram kom í síðasta vísnaþætti, þá er nokkurt vinfengi með Einari Kolbeinssyni í Bólstaðarhlíð og títt- nefndum Skarphéðni Ásbjörnssyni á Akureyri. Skarphéðinn á forláta trillu sem hann sækir á sjávarfang. Þótt Einar hafi um langa hríð verið lausa maður í áhöfn hjá mér, þá fór nú svo í haust, að Skarphéðni tókst að véla Einar tötrið með sér til svartfuglsveiða frá Dalvík. Trúlegt þykir mér, að Skarphéðinn hafi talið Einari trú um að hjá sér hefði hann skárra skipsrúm og betri skiptahlut. Alltént sendi Skarphéðinn mér þessa vísu í símann strax og þeir félagar höfðu leyst landfestar: Siglir nú á skárri skel en skeð hefur nokkuð lengi. Til tilbreytingar veiðir vel í vandaðra manna gengi. Einhverra vonbrigða gætti þó er á miðin var komið. Virtist sem Einar stæði hvergi undir væntingum Skarphéðins og skot- fimi hans stórlega ofmetin. Skarphéðinn sendi vísu: Skotfimi slík sjaldan sést og sárafáir hygg að noti. Á að giska enginn féll í öðru og þriðja hverju skoti. Nú, ekki gekk Skarphéðni að fastna sér Einar í fast skipsrúm því uppvægur vildi hann á sjó með mér fyrir tæpri viku síðan. Einar vílar ekki fyrir sér ferðalög hing- að norður ef veiðiskapur er í boði. Einar ekur þessa 120 km á Skodabifreið sinni með undra hraða. Við upphaf ferðar sendi Einar vísu: Lífið virðist laust við neyð, ljúft er þess að njóta, hugurinn ber mig hálfa leið, hitt fer ég á Skoda. Og litlu síðar: Framhjá geysist frægum stað hvar fráleitt hljóma sálmar. Þar sem gramur gekk um hlað gamli Bólu-Hjálmar. Á Leirubrúnni yfir Eyjafjarðará sendi hann svofellda fyrirspurn: Eftir að þú hundskast heim úr hænsnastússi þínu, mun þá leggja kaffikeim úr kotrassgati þínu? 175 Umsjón: Árni Geirhjörtur Jónsson kotabyggð1@gmail.com Ný stjórn LK, Bessi Freyr Vésteinsson, Herdís Magna Gunnarsdóttir, Arnar Árnason, Pétur Diðriksson og Davíð Logi Jónsson. Mynd / MÞÞ LÍF&STARF Landssamband kúabænda: Ný stjórn kjörin á aðalfundi Landssamtök sauðfjárbænda: Ný stjórn og Oddný Steina nýr formaður Oddný Steina Valsdóttir, Butru í Fljótshlíð, er nýr formaður Landssamtaka sauðfjár- bænda (LS). Oddný lýsti ein yfir framboði til for- mennsku eftir að Þórarinn Ingi Pétursson lýsti því yfir að hann gæfi ekki kost á sér áfram í formannsembættið. Þórarinn Ingi var kjörinn formaður árið 2012 og tók þá við af Sindra Sigurgeirssyni. Þórarinn gaf áfram kost á sér sem formaður Markaðsráðs kindakjöts en ný stjórn tekur afstöðu til þess. Allir félagsmenn voru í kjöri til formanns, en Oddný hlaut 44 af 46 greiddum atkvæðum. Oddný Steina kom ný inn í stjórn LS árið 2012, en var áður í varastjórn. Hún varð vara- formaður strax það ár og hefur verið síðan. Hún er fyrsta konan til að gegna formennsku í LS. Varaformaður verður valinn af stjórn LS og sömuleiðis ritari. Tveir nýir í stjórn Ný stjórn var einnig kosin á aðalfundinum. Þar koma nýir inn þeir Gunnar Þórarinsson, Þóroddsstöðum, og Trausti Hjálmarsson, Austurhlíð. Þórhildur Þorsteinsdóttir, Brekku, er endurkjörin en hún var ritari í gömlu stjórn- inni. Böðvar Baldursson, Ysta-Hvammi, var áfram valinn til stjórnarsetu, en hann sat sem meðstjórnandi í síðustu stjórn. Út úr stjórn fór Atli Már Traustason, Syðri-Hofdölum, og Oddný sem sat í stjórn sem varaformaður, en er eins og fyrr segir komin í formannssætið. /smh Ný stjórn LS. Oddný Steina Valsdóttir á Butru, formaður og Þórhildur Þorsteinsdóttir, Brekku. Aftari röð frá vinstri: Böðvar Baldursson, Ysta-Hvammi, Gunnar Þórarinsson, Þóroddsstöðum og Trausti Hjálmarsson, Austurhlíð. Mynd / HKr. Íslenskur matur á Bandaríkjamarkað

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.