Bændablaðið - 06.04.2017, Page 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
FRÉTTIR
Klaufsnyrtingarstóllinn
er kominn aftur og nú galvaniseraður!
facebook.com/klaufsnyrtingarstollinn
849–7905
Pantanir í síma
takmarkað magn
Verð: 25.000 kr.
Spjallað við bændur:
„Við vöxum ekki með því að vera
alltaf að fækka og fjölga“
Sjötti þáttur „Spjallað við bænd-
ur“ er kominn í loftið. Að þessu
sinni eru sauðfjárbændurnir
í Háholti í Gnúp verjahreppi
sóttir heim, þau Bryndís Eva
Óskarsdóttir og Bjarni Másson.
Þau byrjuðu smátt með um
200 fjár en árið 2008 breyttu þau
gömlum svínahúsum í fjárhús og
juku við bústofninn. Árið 2012 tóku
þau hlöðuna undir sauðfé og eru nú
með rúmlega 400 fjár á fóðrum.
Auk sauðfjárræktarinnar reka þau
Bryndís Eva og Bjarni verktakafyrir-
tækið „Búið og gert ehf.“ sem vinnur
öll möguleg verk efni fyrir bændur í
sveitinni og aðra aðila.
Bjarni bóndi segir það mikilvægt
að sauðfjárræktin búi við stöð-
ugleika svo hægt sé að halda þeirri
framleiðslu sem er í dag. „Þannig
getum við vaxið sem atvinnugrein,
við vöxum ekki með því að vera
alltaf að fækka og fjölga. Við þurfum
að koma kjötinu inn á góða markaði
og leggjast á eitt um það, hvort sem
við heitum sláturleyfishafar, bændur
eða erum í störfum fyrir Markaðsráð
kindakjöts eða Landssamtök sauð-
fjárbænda. Það vil ég meina að sé
okkar stóra verkefni í dag.“
Þættirnir „Spjallað við bændur“
eru unnir af kvikmyndafyrirtæk-
inu Beit fyrir Bændablaðið. Þeir
eru aðgengilegir á Facebook-síðu
og vefsíðu Bændablaðsins, bbl.is.
Einnig eru þeir sýndir á sjónvarps-
stöðinni ÍNN á mánudögum.
Aðalfundur Landssambands kúabænda haldinn á Akureyri:
Verðum að ná inn í samtökin 90%
af framleiðendum, helst 100%
– segir Arnar Árnason, formaður sambandsins
Arnar Árnason, formaður stjórnar
Landssambands kúabænda, gerði
félagsaðild að sambandinu að
umtalsefni í skýrslu sinni á aðal-
fundi LK sem haldinn var á Akureyri
nýverið.
Fjármögnun breyttist verulega í
kjölfar þess að búnaðargjald var fellt
niður um síðustu áramót, frá því að
vera skyldugreiðsla bænda á búnað-
argjaldi yfir í fjármögnun sem byggð
var á félagsgjaldi. Undirbúningur
vegna breytinganna stóð yfir í
nokkurn tíma og söfnuðu samtökin
í sjóði til að mæta þeim tekjumissi
sem óneitanlega varð við svo veiga-
miklar breytingar á fjármögnun.
Sú leið sem varð fyrir valinu hjá
LK við innheimtu félagsgjalda var
ákveðin á síðasta aðalfundi samtak-
anna, en hún felur í sér veltutengt
gjald, 0,30 krónur af hverjum inn-
vigtuðum lítra mjólkur og 500 krón-
ur af hverjum grip sem lagður er inn í
afurðastöð í UN, K og K1U flokkum.
Arnar nefndi að í fyrstu umferð
hefði félagsmönnum verið safnað
á haustfundum LK og voru á þeim
skráðir 175 framleiðendur, en næstu
skref í félagasöfnun voru í höndum
stjórna aðildarfélaga á hverju svæði
sem hvöttu framleiðendur til að
ganga til liðs við samtökun. Nú eru
rúmlega 320 framleiðendur skráðir í
LK. Arnar sagði að næstu skref yrðu
stigin nú að loknum aðalfundi og
yrði samband haft við þá framleið-
endur sem ekki hefðu skráð sig.
Rekstrarkostnaður áætlaður 53
milljónir í ár
Áætlaður rekstrarkostnaður þessa
árs er 53 milljónir króna, þrátt fyrir
að gert sé ráð fyrir töluverðri hag-
ræðingu í rekstri samtakanna. „Það
er því augljóst að við verðum að ná
inn 90% af framleiðendum, helst
100%. Að öðrum kosti getum við
ekki rekið samtökin án stórkostlegra
breytinga,“ sagði Arnar.
Formaðurinn gerði mjólkurfram-
leiðslu og stefnumörkun til framtíðar
einnig að umtalsefni í skýrslu sinni
til aðalfundar. Á liðnu ári var met
slegið varðandi framleiðslu og sölu
mjólkurafurða. Innvigtun mjólkur
fór í fyrsta sinn yfir 150 milljónir
lítra. Heildarinnvigtun árið 2016
nam rúmlega 150,3 milljónum lítra
það ár, samanborið við 146 milljónir
lítra árið á undan, aukningin nemur
2,9% á milli ára.
Færri en stærri
Heildarsala mjólkur og mjólkur-
afurða umreiknuð á fitugrunn nam
139 milljónum lítra í fyrra og jókst
um 4,80% milli ára. Sala á smjöri
jókst um 4,2%, á rjóma um 1,8%
og ostum um 3,2%. Sala á prótein-
grunni var 129 milljón lítra, sem er
aukning upp á 5,22% milli ára.
„Á sama tíma og þetta er að ger-
ast hefur kúabændum fækkað um 40
á milli ára og eru nú 596 framleið-
endur af mjólk í landinu. Þróunin er
með sama móti og hún hefur verið
síðastliðin 40 ár, okkur er að fækka
en við erum að stækka á móti,“ sagði
Arnar.
Nauðsynlegt að huga að
framtíðinni
Greiðslumark þessa árs er 144 millj-
ón lítra. Sala hefur aukist jafnt og
þétt „og á meðan ferðamönnum sem
sækja Ísland heim fjölgar eru engin
merki um annað en að sú þróun
haldi áfam. Það er því nauðsynlegt
að kúabændur hugi að framtíðinni
og mæti vel undirbúnir til leiks,“
sagði Arnar, en á aðalfundi LK var
samþykkt tillaga um að hefja þegar
vinnu við stefnumörkun í mjólkur-
og kjötframleiðslu til næstu 10 ára.
Arnar fór í skýrslu sinni einnig
yfir gerð búvörusamninga en sú
vinna var í brennidepli í starfsemi
LK á liðnu ári sem og samráðs-
hóp stjórnvalda, bænda, neytenda,
afurðastöðva, launþega og atvinnu-
lífs um landbúnaðarstefnu, en sá
hópur mun skila skýrslu til land-
búnaðarráðherra og vinna m.a. að
endurskoðun á búvörusamningum.
Nokkur ágreiningur varð strax
við skipan hópsins og tók hann
töluverðum breytingum þar til
hann hóf störf snemma á þessu ári.
Bændasamtökin eiga þrjá fulltrúa í
hópnum og lagði LK þunga áherslu
á að fá sinn fulltrúa þar inn sem gekk
eftir.
Varhugavert að fella eina grein
búvörulaga úr gildi
Arnar fór einnig yfir endurskoðun
á samkeppnisstöðu mjólkuriðnað-
arins í ræðu sinni á aðalfundinum,
en ráðherra lagði drög að frumvarpi
um endurskoðun á samkeppnisstöðu
hans í byrjun mars, þar sem lagðar
eru til miklar breytingar á núver-
andi kerfi, m.a. felur það í sér að
verðtilfærsla milli tiltekinna afurða
verði óheimil og samkomulag og
verkaskipting milli mjólkursamlaga
sömuleiðis.
Arnar sagði LK hafa eindregið
lagst gegn þessum breytingum, „og
verður að teljast varhugavert að fella
eina grein búvörulaga úr gildi án
þess að taka búvörulögin til heild-
stæðrar endurskoðunar á sama tíma“.
Kostnaðarlækkun skilað sér beint
til neytenda og bænda
Nefndi Arnar að með samvinnu, sér-
hæfingu og fækkun mjólkurvinnsla
úr 17 árið 1990 niður í 5 árið 2016
hefði óumdeilanlega náðst fram tölu-
verð kostnaðarlækkun sem skilað
hefði sér beint til neytenda og bænda.
„Þessi árangur sem við sjáum í
dag af samstarfi afurðastöðvanna
hefði ekki náðst án heimildar til sér-
hæfingar og verkaskiptingar þeirra á
milli,“ sagði hann og benti jafnframt
á að samtökin hefðu harðlega gagn-
rýnt að málið fái ekki að fara inn
í þann feril sem það var sett í við
afgreiðslu búvörusamninga, þ.e. í
gegnum samráðshóp um endur-
skoðun búvörusamninga. /MÞÞ
„Það er því augljóst að við verðum að ná inn 90% af framleiðendum, helst 100%. Að öðrum kosti getum við
ekki rekið samtökin án stórkostlegra breytinga,“ sagði Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda, á
aðalfundi LK sem haldinn var á Akureyri í lok nýliðins mánaðar. Myndir /MÞÞ
Á
liðnu ári var met slegið varðandi framleiðslu og sölu mjólkurafurða.
Innvigtun mjólkur fór í fyrsta sinn yfir 150 milljónir lítra, samanborið
við 146 milljónir lítra árið á undan, aukningin nemur 2,9% á milli ára.
Aðalfundarfulltrúar fylgjast með ræðu formanns.
Frá aðalfundi LK á Akureyri.
Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúluhrepps:
Ekki verði seldur fimmeyringur
í Landsbanka Íslands
„Aðalfundur Búnaðarfélags
Auðkúluhrepps krefst þess af
Alþingi og ríkisstjórn að ekki
verði seldur fimmeyringur í
Landsbankanum.
Fundurinn telur að alls ekki megi
hleypa erlendum fjárglæframönnum
og vogunarsjóðum með krumlurnar
í sjóði hans.
Það er álit fundarins að
Landsbankinn eigi að vera 100% í
eigu allra Íslendinga. Viðskiptabanki
fyrir venjulegt fólk. Alveg eins og
sparisjóðirnir voru. Það þarf að lýsa
þessu yfir í eitt skipti fyrir öll fyrir
hönd eigendanna. Bankinn á ekki að
standa í neinu peningaþvætti.“
Þá ályktaði aðalfundur Búnaðar-
félags Auðkúluhrepps að það sé
algjörlega óásættanlegt að útgerðar-
menn, að þeim ólöstuðum, ráði því
hvar byggð skuli haldast í sjávarplás-
sum á Íslandi. Fiskvinnslufólkið og
íbúar byggðarlaga vítt og breitt um
landið eigi sinn rétt engu síður en
stórútgerðirnar.
Hrafnseyri mannlaus eyðistaður?
Aðalfundur Búnaðarfélags Auðkúlu-
hrepps biður Alþingi og ríkisstjórn
vinsamlegast að leiða hugann að
eftirfarandi:
„Er það ásættanlegt fyrir þjóð-
ina, að Hrafnseyri við Arnarfjörð,
fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar,
sé algjörlega mannlaus eyðistaður
a.m.k. 8 mánuði ársins?“
Bryndís Eva Óskarsdóttir, bóndi í Háholti, er tekin tali í nýjasta þætti
Spallað við bændur.