Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 15

Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 15
15Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Árið 2016 var vel heppnað starfs- ár hjá Smalahundafélagi Íslands. Alls voru þrjár keppnir haldnar á árinu. Tvær þeirra hafa fengið umfjöll- un áður á síðum Bændablaðsins, nefnilega Íslandsmótið að Bæ í Dölum og mót Austurlandsdeildar Smalahundafélagsins á Eyrarlandi í Fljótsdal. Þriðja mótið var haldið laugardaginn 5. nóvember. Mótið var haldið að Húsatóftum, en þetta er í fyrsta skipti sem fjárhundamót er haldið þar. Smalahundadeild Árnessýslu stóð fyrir mótinu. Veðrið lék við gesti, gott haustveður og aðstæður til keppni hinar ágætustu. Alls tóku 12 hundar þátt í keppn- inni og þar af 11 í A-flokki en einung- is einn í B-flokk. A-flokkurinn er sá flokkur sem inniheldur mest tamda hunda og var því um sterkt mót að ræða. 110 stiga keppi í A-flokki haldin í fyrsta sinn Í fyrsta skipti á Íslandi var A-flokkurinn með svokallaðri 110 stiga keppni, en það er hámarks stigafjöldi sem hver keppandi getur hlotið fyrir sitt rennsli. Með þessu móti bætist ein þraut við brautina miðað við hvernig hefð er fyrir því að hafa hana hérlendis. Úrslit voru eftirfarandi: 1. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Frigg frá Kýrholti 95 stig 2. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Doppa frá Húsatóftum 91 stig 3. Agnar Ólafsson og Brook frá Wales 89 stig 4. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum 88 stig 5. Gunnar Guðmundsson og Ólína frá Hafnarfirði 87 stig 6. Svanur H. Guðmundsson og Korka frá Miðhrauni 80 stig 7. Gunnar Guðmundsson og Karven Taff frá UK 74 stig 8. Halldór Sigurkarlsson og Smali frá Miðhrauni 73 stig 9. Kristinn S Hákonarsson og Astra Polar frá UK 71 stig 10. Hilmar Sturluson og Perla frá Móskógum 60 stig Einn keppandi dró sig úr keppni. Eins og áður sagði var einungis einn keppandi í B-flokk en það var Kristinn Hákonarson með tíkina Mist en þau hlutu 52 stig. Verðlaunahafar hlutu fóðurpoka í sinn hlut að talningu stiga lokinni. Mótið var í alla staði hið ánægjuleg- asta og vonandi vísir að hefð fyrir svona mótshaldi að skapast á þessu svæði. Smalahundadeild Árnessýslu vill koma á framfæri til allra þeirra sem aðstoðuðu við mótshaldið. Sérstaklega Reyni Þ. Jónssyni dóm- ara og styrktaraðilum mótsins. Þeir voru Dýralæknaþjónustan Stuðlum, Landstólpi og Jötun vélar. Vaxandi áhugi Talsverð merki eru upp um að vax- andi áhugi sé fyrir smalahundum á landinu. Aldrei hafa fleiri einstak- lingar eða hundar keppt á mótum en á árinu 2016. Þá voru þrjú mót haldin sem er meira en venjulega og góð þátttaka í þeim öllum. Miðað við þátttöku væri vafalaust ástæða til að fjölga mótunum frekar sem vonandi verður raunin í fram- tíðinni. Það sem stendur því helst fyrir þrifum er vöntun á kindum til mótshalda yfir sumartímann meðan sauðfé er á úthaga. Sömuleiðis eru fáar kindur á lausu á veturna þegar þær eru með fangi. Ströng dagskrá sauðfjárbænda á haustin hjálpar svo ekki til. Engu að síður eru félags- menn bjartsýnir á að mótshald sé að festa sig í sessi á landinu. Það er ekki nokkur spurning að framgang- ur greinarinnar verður meiri með frekara mótshaldi. Smalahundafélagið mun standa fyrir ferð til Englands í haust. Þar verður haldið námskeið fyrir hópinn, hundar sýndir og fleira í þeim dúr. Einn þekktasti smali Bretlandseyja, Derek Scrimgeour, verður gestgjafi og mun sjá um dag- skrána. Ferðin var auglýst síðla árs í fyrra og fylltist upp í öll laus pláss á fáeinum dögum. Færri fengu en vildu. Heimsmeistaramótið í Hollandi Árið 2016 kom í ljós að í fyrsta skipti mun Smalahundafélag Íslands senda fulltrúa á Heimsmeistaramót smalahunda sem fer fram í Hollandi dagana 13.–16. júlí. Smalahundafélagið varð aðildarfélag ISDS í lok árs 2015 og þar með fékk það keppn- isrétt á heimsmeistaramótinu. Fjöldi keppenda fer eftir stærð aðildarfélaganna og mun SMFÍ því senda tvo þátttakendur, sem eru Aðalsteinn Aðalsteinsson og Elísabet Gunnarsdóttir. Þetta er í fyrsta skipti sem heimsmeistara- mótið er haldið utan Bretlandseyja sem sýnir að greinin er að breiðast út, rétt eins og hún gerir á Íslandi. Framtíðin Með sama áframhaldi er ljóst að íslensk fjárhundamenning mun vaxa mikið á komandi árum. Þær nýjungar sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár sýnir það. Til dæmis má nefna skráningu á hvolpum í alþjóðlega skráningakerfið sem varð möguleiki síðla árs 2015 og góða þátttöku á mótum. Smám saman er að komast á hefð fyrir notkun smalahunda á Íslandi en lengst af höfum við ekki búið við hana. /AJH Smalahundafélag Íslands: Öflug starfsemi – haldnar voru þrjár keppnir á síðasta ári Efstu menn í 110 stiga keppni í A-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.