Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Aðalsteinn Eiríksson er höfundur
bókarinnar Saga Núpsskóla sem
kemur út í júní, en Núpsskóli á 110
ára afmæli á þessu ári. Af því til-
efni verður efnt til mikillar þriggja
daga hátíðar á Núpi í júní.
Hátíðin hefst föstudaginn 23.
júní og stendur fram á sunnudag 25.
júní. Það eru Hollvinir Núpsskóla
sem standa að þessari hátíð, en í
félaginu eru nú um 200 meðlimir.
Formaður samtakanna er Sigríður J.
Valdimarsdóttir. Hún segir að gamlir
nemendur á Núpi hafi reynt að koma
saman á staðnum að minnsta kosti á
þriggja ára fresti og stundum oftar.
Nú eigi hins vegar að slá í klárinn
og eru allir gamlir nemendur og vel-
unnarar skólans hvattir til að mæta á
hátíðina í júní.
Höfuðmarkmið samtakanna er
að viðhalda minningu um starfsemi
Núpsskóla, vinna að varðveislu og
skráningu ýmissa muna. Þar er um
að ræða kennslutæki, bækur, mynd-
ir, skólaspjöld, nemendaskrár, mál-
verk og aðra hluti er notaðir hafa
verið við kennslu. Einnig ýmsa aðra
muni í eigu Núpsskóla er gætu talist
einstakir fyrir sögu hans. Hvetja á
til tengsla meðal nemenda og meðal
helstu verkefna var að láta skrá sögu
skólans sem nú er lokið.
Aðalsteinn Eiríksson er ekki
ókunnugur Núpsskóla og starfaði þar
m.a. sem kennari. Hann er sonur séra
Eiríks J. Eiríkssonar, sem var prestur
á Núpi frá því „nýja“ kirkjan var vígð
þar árið 1939. Þjónaði sr. Eiríkur í
kirkjunni fram til 1960.
Núpsskóli var settur á fót að frum-
kvæði séra Sigtryggs Guðlaugssonar
4. janúar 1907 á Núpi í Dýrafirði
og er því orðinn 110 ára. Þetta var
einn fyrsti alþýðu- og ungmenna-
skóla landsins. Slíkir skólar risu í
framfarahug aldamóta tuttugustu
aldar. Rætur þeirra voru í hugsjón-
um danskra lýðháskóla sem lagaðir
voru að íslenskum veruleika í mynd
héraðsskóla þegar leið á öldina.
Saga Núpsskóla er í senn almenn
skólasaga þjóðarinnar og saga
afskekktra sveita á Vestfjörðum sem
drógu með tímanum til sín hundruð
íslenskra ungmenna í samfélag vinnu
og gleði á eftirminnilegum morgni
ævi sinnar.
Hollvinir Núpsskóla segja þessa
sögu og lýsa bakgrunni hennar í
myndum, nemenda- og kennaratali,
sögu bygginga, viðhorfum og hugs-
unarhætti frumkvöðla og skólastjóra
frá sr. Sigtryggi til Bjarna Pálssonar.
Þar segir frá stjórnunarháttum,
félagslífi og samsetningu nemenda-
hópsins frá Steini Steinari, Kristjáni
Davíðssyni, Jóni úr Vör allar götur
til Birgittu Jónsdóttur og Jóns Gnarr.
Þetta er allmikil bók sem göml-
um nemendum, starfsmönnum og
velunnurum gefst tækifæri til að
kaupa í forsölu og skrá nafn sitt á
heillaóskaskrá 110 ára afmælis skól-
ans sem fagnað er með þessari útgáfu
bókarinnar á Núpi um Jónsmessubil
sumarið 2017.
Aðalsteinn segir að fyrri það
fyrsta séu hollvinasamtökin að reyna
að halda lífi í skólanum sem eigi
mjög undir högg að sækja.
Stöðug barátta við að halda reisn
staðarins
„Þetta er stöðug barátta fyrir því
að halda reisn staðarins,“ segir
Aðalsteinn. „Þetta var mikið menn-
ingarsetur sem setti nafn staðarins á
kortið eins og önnur héraðsskólasetur
á landinu. Þetta eru númer í menn-
ingarsögunni og ekki síst í sögu
bændamenningar í landinu.
Núpsskóli verður auglýstur til sölu
í þriðja sinn
Búið er að selja barnaskólann á Núpi
sem var í sameign hreppsins og ríkis-
ins til einkaaðila og hefur honum verið
forðað frá eyðileggingu. Hins vegar
blasir við að aðrar skólabyggingar
á Núpi þarfnast mikils viðhalds,
en enginn virðist vilja eiga þessi
mannvirki sem nú eru í eigu ríkisins
þrátt fyrir að Ríkiskaup hafi reynt
að selja hann í tvígang. Til stendur
að auglýsa skólann til sölu í þriðja
sinn og í þrennu lagi. Aðalsteinn segir
að Hollvinir Núpsskóla hafi hug á
að taka að sér elstu bygginguna þar
sem sundlaugin er, en hún var reist á
árunum 1930 til 1940. Það sé þó vart
gerandi fyrir svona félagsskap nema
að fá dygga aðstoð opinberra sjóða
og einkaaðila. Yngri hluti bygginga
er frá 1955 og 1965.
Hollvinir reiðubúnir að leggja
fram eigin vinnu
Sigríður J. Valdimarsdóttir, sem er
fædd og uppalin á Núpi og kenndi
einnig um tíma við skólann líkt
og Aðalsteinn, segir að Hollvinir
Núpsskóla séu reiðubúnir að leggja
fram sitt vinnuframlag eftir aðstæð-
um hvers og eins. Nokkur hópur hafi
t.d. farið vestur síðastliðið haust til
að loka gluggum í gamla skólanum
og íþróttahúsinu og forða því frá
skemmdum. Veitingarekstur hefur
verið í skólanum undanfarin sumur
og við sérstök tilefni að vetrarlagi,
eins og þorrablót. Verður svo trúlega
áfram. Sigríður segir að þau hafi þó
heyrt af því að fólk í sveitinni fyrir
vestan hafi sýnt því áhuga að kaupa
gamla skólahúsið til niðurrifs. Það
megi bara ekki gerast.
Verðmæti í menningarsögu
Íslendinga
Aðalsteinn segir að hugmyndir
Hollvina gangi út á að í elstu
byggingunni verði safn um skólann
og margvíslega menningu staðar-
ins. Steinsnar frá skólanum er hinn
merkilegi garður Skrúður, sem allir
skrúðgarðar á Íslandi draga nafn
sitt af. Hann er í góðri umhirðu. Þá
er á staðnum fyrrum heimili séra
Sigtryggs Guðlaugssonar, stofnanda
skólans. Hann fæddist 27. september
1862 á Þremi í Garðsárdal í Eyjafirði
en kvæntist Hjaltlínu Guðjónsdóttur
frá Ingjaldssandi árið 1918. Þau eign-
uðust tvo syni sem báðir urðu þjóð-
þekktir, en það eru veðurfræðingur-
inn Hlynur Sigtryggsson og Þröstur
Sigtryggsson, sem lengi var stýri-
maður og skipstjóri á varðskipum
Landhelgisgæslunnar. Heimili þeirra
hjóna er enn eins og þau skildu við
það við fráfall sitt.
Aðalsteinn segir að hluti vand-
ans við að koma endurnýjun gamla
skólans í farveg sé að þar sé við tvö
ráðuneyti að eiga. Annars vegar
menntamálaráðuneytið og hins
vegar fjármálaráðuneytið. Erfitt og
svifaseint virðist vera að samræma
aðgerðir þar á milli. Ef eigendaskipti
verði á skólanum þá hætti hann að
njóta ívilnunar sem skólastaður og
þurfi þá t.d. að sæta hærri gjald-
skrá hvað raforku og fasteignagjöld
varðar. Slíkt sé óaðgengilegt og í
raun dauðadómur yfir hugmyndum
Hollvina varðandi endurreisn gamla
skólans. Hann segir þó að vissu leyti
betra hvað varðar rekstrardæmið að
nú er búið að koma skólanum undir
forræði Fasteigna ríkisins, en það
sé þó verra er varðar menningarþátt
dæmisins. Sjá má nánari upplýsingar
um Hollvini Núpsskóla og hátíðina
í sumar á vefslóðinni nupsskoli.is.
/HKr.
Hollvinir Núpsskóla gefa út sögu skólans á 110 ára afmælinu:
Gömlum nemendum og velunnurum hóað
saman á þriggja daga hátíð í júní
Myndir / Hollvinir Núpsskóla