Bændablaðið - 06.04.2017, Page 36

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Vísindamenn í Danmörku hafa enduruppgötvað í nærri 130 millj- óna króna verkefni (8 milljónir dkr.) sáraeinfalda og ævaforna leið Inúíta á Grænlandi til að geyma orku. Telja þeir einfalt og ódýrt að nýta hana við geymslu raforku frá vindmyllum. Vindmyllur snúast aðeins þegar nægur vindur er til staðar. Þær geta því líka verið að snúast og framleiða raforku þegar ekki er þörf á allri orkunni. Vísindamenn um allan heim hafa því mikið brotið heilann yfir hvernig hægt sé að geyma raforkuna sem engin leið er að festa hendur á. Nú kann lausnin loks að vera í sjón- máli, og hún er afar einföld. Að sækja vatnið yfir lækinn með ærnum kostnaði Öðru hvoru telja vísindamenn sig vera að finna upp byltingarkennd- ar aðferðir við ýmsa hluti sem eru samt í raun svo sáraeinfaldar að hver einasti óbreyttur borgari gæti hafa gert það sama. Þannig var það einmitt þegar danskir vísindamenn lögðust yfir það verkefni hvernig ætti að geyma afgangsraforku frá vind- orkuverum sem ekki færi samstundis til notkunar. Einhverjir hefðu sjálfsagt talið svarið við spurningunni milljón dollara virði og vel það. Í raun kost- aði svarið samt ekki neitt og lá fyrri allan tímann. Verkefni sprenglærðu vísindamannanna við að komast að þessari niðurstöðu kostaði aftur á móti sem svarar nærri 130 milljónum íslenskra króna, að því er fram kemur á vefsíðu technologist.eu. Duttu niður á fornar aðferðir Inúíta Það voru vísindamenn í Risö Campus við DTU-tækniháskólann nærri Roskilde-firði í Danmörku sem uppgötvuðu sér til furðu að svarið við geymslu á orkunni frá háþróuðum vindmyllum væri að finna í ævafornum aðferðum Inúíta á Grænlandi og víðar í Norður- Ameríku við að geyma hitaorku. Þeir lögðu einfaldlega steina í eld- stæðin og fluttu þá svo glóandi heita inn í tjöld sín og önnur híbýli til að nýta hitann eftir að eldurinn var slokknaður. Algengara var þó að norðurslóðafólkið notaði svokallaða Qulliq-lampa, sem eru selaolíu- eða sápusteinslampar. Var þá skál höggv- in í sápustein og lýsi sem fékkst úr selspiki og hvölum, eða spikið sjálft sett í steinskálina sem eldsneyti. Á skálarbarminum var svo komið fyrir kveik eða mörgum kveikum í röð sem nærðust á orkunni frá spikinu sem smám saman bráðnaði vegna hitans frá steininum. Þetta var að sjálfsögðu sprottið upp úr því að ekkert var um trjágróður á þessum norðlægu slóðum til að nota sem brenni. Eða eins og máltækið segir; neyðin kennir naktri konu að spinna. Eldurinn í lampanum gaf síðan bæði frá sér ljós og hitaði um leið stein- inn sem geymdi í sér varmaorkuna lengur en loginn brann. Aðferðir Inúíta til að geyma umframorku vindmyllanna Vísindamennirnir telja sig geta nýtt sömu aðferð við geymslu á raforkunni frá vindmyllunum. Þá er 60% af umfram raforkunni frá vindmyllunum utan álagstíma breytt í hitaorku með gamaldags hitablásur- um til að hita grjót í sérstökum geymslutönkum. Einungis er reiknað með að hitatapið í þessum grjóttönk- um sé 1%. Hitinn úr grjóttönkun- um er síðan nýttur áfram ýmist til að framleiða raforku með gufuafli þegar þörf er á eða í fjarvarmaveitur til húshitunar. Restin af raforkunni frá vindmyllunum (40%) fer síðan beint inn á samtengda orkukerfið. Talið er að hægt sé að ná allt að 600 gráðu hita í miklum grjótmassa í slíkum geymslum eða tönkum. Heita steinana má síðan nýta til að hita vatn og búa til gufu til að knýja gufuhverfla sem snúa rafölum og framleiða þannig rafmagn þegar á þarf að halda. Meðal annars þegar enginn vindur blæs til að snúa vind- myllunum. Þessi aðferð að nota heita steina til að framleiða gufu fyrir túrbínur er síður en svo ný tækni. Leita oft flókinna leiða í stað gamalla lausna Allan Schrøder Pedersen hjá DTU Energy segir að oft einblíni vísinda- menn um of á nýja og flókna tækni þar sem gamlar aðferðir þyki ekki nógu merkilegar til að rannsaka. Miklum kröftum hafi t.d. verið eytt í að finna upp aðferðir til að geyma orku með rafgeymum, með efna- fræðilegum hætti og í framleiðslu á svokölluðum grænum orkusellum. Munurinn á öllum þessum aðferðum og að geyma orku í steinum sé hvað grjót sé ódýrt. Þá sé búið að þrautreyna þessa aðferð í það minnsta allt síðan Inúítar stigu fæti á Grænland og Alaska fyrir þúsundum ára. /HKr. Alríkisdómari í Kentucky í Bandaríkjunum vísaði fyrir skömmu frá dómi kæru á hendur landeiganda fyrir að skjóta niður fjarstýrt flygildi eða „dróna“ yfir landareign sinni. Dómurinn hefur vakið athygli vegna sérstöðu sinnar og varpar jafnframt upp spurningu um hvort drónar geti í raun verið „réttdræp- ir“ í óleyfilegu flugi yfir einka- landi. Drónabani ný starfsgrein? Það var landeigandinn William Meredith sem skaut flygildið niður, en sjálfur kallar hann sig drónabana (Drone hunter). Þarna virðist vera komin fram ný starfsgrein líkt og tófuskyttur á Íslandi. David Boggs, sem fjarstýrði drónanum sem metinn var á 1.500 dollara, taldi sig hins vegar í full- um rétti samkvæmt reglum banda- ríska loftferðaeftirlitsins (Federal Aviation Administration – FAA). Hann hefði fullt leyfi til að fljúga samkvæmt reglum í bandarískri lofthelgi og væri því ekki að fara yfir land í óleyfi. Landeigandi á loftrýmið upp í 25 metra hæð Dómarinn vísaði aftur á móti til þess að árið 1946 hafi hæstiréttur Bandaríkjanna kveðið upp úr með það að eignarréttur manna á landi næði líka til loftrýmis yfir eigninni upp í allt að 83 fet hæð, eða 25,7 metra. Þá væri alríkisdómstóll ekki heldur hæfur til að taka slíkt mál að sér þar sem FAA hafi ekki gefið út neinar reglur sem skilgreindu hvenær um væri að ræða óleyfilegt dróna- flug. Þá væri FAA ekki heldur aðili að málinu. Benti dómari kæranda á að réttur vettvangur fyrir slíkt mál væri ríkisdómstóll í Kentucky og þá undir sérstakri löggjöf um ólöglega för um eignarland eða „trespassing“. Ekki kom fram í fréttinni hvort drónaeigandinn hygðist áfrýja úrskurði dómarans en þar var sagt að líklega myndi drónaeigandinn forðast flug yfir landi drónabanans á næstunni. /HKr. Alríkisdómur í Kentucky í Bandaríkjunum: Máli gegn„drónabana“ vísað frá dómi TÆKNI&VÍSINDI Landaeigandi í Bandaríkjunum sem kallar sig „drónabana,” skaut niður lögsóttur án árangurs. fylltur er með steinum. Mynd / technologist.eu Danskir vísindamenn duttu niður á eldgamla lausn á knýjandi vanda: Orka frá vindmyllum geymd með ævafornum aðferðum Inúíta Tölvubúnaður farinn að pirra bandaríska bændur: Hakka sig inn í tölvukerfin til að gera við dráttarvélarnar Tölvutæknin í dráttarvélum getur greinilega bæði verið bless- un og bölvun. Allavega hugsa bandarískir bændur sumum dráttarvélaframleiðendum þegj- andi þörfina fyrir að vera með læstan aðgang að tölvukerfi vél- anna þegar eitthvað bilar. Greint var frá því á CNET í síðustu viku að dráttarvélarfram- leiðandinn John Deere hafi staðið í stappi við bændur að undanförnu sem hafa hakkað sig inn í tölvukerfi véla fyrirtækisins til að þurfa ekki að leita til sérhæfðra viðgerðar- manna John Deere. Fyrirtækið hefur einkaleyfisvarinn rétt sem segir að einungis umboðsmenn John Deere og viðurkennd verk- stæði megi framkvæma viðgerðir á vélunum. Er það stutt lögum um einkaleyfi. Bændur reyna að virkja lagarétt sem heimilar viðgerðir Fljótt á litið virðist þetta fyrir- komulag vera mjög gott þar sem eigendum vélanna er þá tryggð viðgerð sem gerð er af fagmönn- um. Samkvæmt ummælum bænda er þetta þó ekki alveg svo einfalt. John Deere hafi rukkað svimandi háar upphæðir fyrir þjónustuna auk þess sem fagmennirnir hafi ekkert verið að flýta sér að mæta á svæðið þegar vélar biluðu. Þá séu klásúlur í samningum, sem bændur undir- gangast við kaup á vélunum, að þeir geti ekki lögsótt Jogn Deere vegna tekjumissis, tapaðrar uppskeru eða annars ef vél bilar. Vegna þessa hafa bændur gripið til þess ráðs að fá tölvuhakkara til að komast fram- hjá læsingum í tölvukerfi vélanna svo hægt sé að gera við þær án aðstoðar sérfræðinga John Deere. Þá hafa þeir reynt að virkja lög um rétt manna til að mega lagfæra sín tæki. Það gæti þvingað framleið- endur til að opna utanaðkomandi viðgerðarmönnum óheft aðgengi hvort sem um er að ræða traktor, bíl eða síma. Bílaiðnaðurinn í svipuðum málum Mál af þessum toga eru ekki bara bundin við landbúnaðartæki. Rétturinn til að mega gera við hefur verið heitt mál í bílaiðnaðinum, sér- lega í kjölfar sívaxandi tölvuvæð- ingar í bílum. Lengst hefur verið tekist á í Bandaríkjunum um brot á því sem kallað er einkaleyfislög stafræna árþúsundsins, eða „Digital Millennium Copyright Act“. Seint á árinu 2016 var sett undanþága við þessum lögum sem gengur út á að þú megir eiga við stýringar eða skynjara í bílum svo framarlega að það brjóti ekki í bága við mengunar- reglur. Þekkt er t.d. hérlendis að bil- aðir skynjaravæddir hvafakútar séu teknir úr bílum og hefðbundnir og margfalt ódýrari hljóðkútar settir í staðinn. John Deere segir þjónustu tryggða John Deere hefur svarað öllum ásök- unum með því að ríkjandi fyrirkomu- lag tryggi kaupendum aðgang að þjálfuðum tæknimönnum og viður- kenndum varahlutum. Þá séu flest nýjustu landbúnaðartækin þannig útbúin að stjórnandi tækjanna geti veitt umboðsaðila aðgang að vélinni í gegnum síma. Þannig sé hægt að bilanagreina tækið úr fjarlægð til að meta hvort þörf sé á að kalla út viðgerðarmann. Einnig sé auðvelt að nálgast varahluti og þjónustu hjá umboðsmönnum. /HKr Deere sem öðrum framleiðendum.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.