Bændablaðið - 06.04.2017, Side 38

Bændablaðið - 06.04.2017, Side 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Vélsmiðjan Richard Hornsby og synir í Lincoln- skíri á Englandi var starf- andi frá 1828 til 1918. Á þeim níutíu árum fram- leiddi fyrirtækið meðal annars gufu- og olíuvélar. Árið 1896 setti fyrirtækið á markað sína fyrstu drátt- arvél. Hönnuður dráttarvélanna frá Hornby og sonum hét Herbert Akroyd Stuast og kölluðust dráttarvélarnar Horsby- Akryod. Þær voru eins strokka, 20 hestöfl, fyrsta faratækið í heimin- um með þjöppukveiki á vélinni. Járnsmiðja breytist í vélsmiðju Stofnandi fyrirtækisins Richard Hornsby fæddist 1790 og lauk prófi sem landbúnaðarverk- fræðingur. Að loknu námi árið 1815 setti hann á fót járnsmiðju í Lincoln-skíri ásamt tveimur öðrum. Árið 1828 keypti Hornsby samstarfsmenn sína út úr rekstrin- um og breytti járnsmiðjunni í vél- smiðju. Sama ár hóf fyrirtækið framleiðslu á landbúnaðartækj- um og fljótlega flytjanlegum gufuvélum sem voru sérhannaðar fyrir þreskivélar. Gufuvélarnar frá Hornsby yrðu fljótlega mjög vinsælar og ráðandi á þeim mark- aði á Bretlandseyjum. Árið 1896 setti fyrirtækið á markað sína fyrstu dráttarvél. Í kjölfar góðs árangurs keypti fyrirtækið talsvert land þar sem það stóð fyrir tilraunum með ný landbúnaðartæki sem það hafði í hyggju að framleiða. Samningur við herinn Árið 1903 efndi breski herinn til samkeppni um hönnun á traktor með öflugri vél sem ekki þurfti mikla kælingu. Dráttarvélin átti að geta dregið 25 tonn 65 kíló- metra leið á hraða sem næmi fimm kílómetrum á klukkustund og vera undir 13 tonn að þyngd. Verðlaunaféð var eitt þúsund sterlingspund. Einungis ein vél var send inn og var það ný týpa frá Hornsby með eins strokka olíuvél og kall- aðist Hornsby Heavy Oil Tractor. Ekki var nóg með að nýja drátt- arvélin uppfyllti allar kröfur hersins til að vinna verðlauna- féð hún vann einnig sérstakan bónus upp á 180 sterlingspund fyrir að draga 25 tonnin 93 kíló- metra á þess að stoppa og fá olíu eða vatn. Þrátt fyrir að einungis hafi verið framleidd fjögur eintök af vinningsvélinni hóf fyrirtækið framleiðslu á tveggja strokka olíuvélum fyrir breska herinn og vænkaðist hagur þess mikið. Framleiðsla á stríðstólum Í kjölfar samningsins við herinn hóf fyrirtækið, árið 1904, fram- leiðslu á beltadráttarvél sem gekk fyrir steinolíu. Tveimur árum síðar setti það svo á markað léttari týpu af beltadráttarvél sem þótti standa öllum hjólavélum framar á þeim tíma. 1908 var enn ein ný týpan af beltadráttarvél frumsýnd og í það sinn var Edward VII Bretakonungur við- staddur. Nýja beltavélin var að öllu leyti líkari skriðdreka og stríðstóli en dráttarvél til mat- vælaframleiðslu. Þrátt fyrir gott sam- starf endurnýjaði breski herinn ekki samning sinn við Richard Hornsby og synir árið 1911. Í fram- haldinu tók reksturinn dýfu og yfirtekið, árið 1918, af bandarísku fyr- irtæki sem hét Holt Manufactoring Co og síðar sameinaðist C.L. Best og úr varð Caterpillar Tractor Company. /VH Hornsby Akroyd – með þjöppukveiki á vélinni Pólskir ráðherrar sökuðu í byrjun mars önnur ESB-lönd um tvöfalt siðferði, svik og baktjaldamakk til að koma í veg fyrir eðlilega framvindu mála á Evrópuþinginu í Brussel. Virtist allt komið upp í loft innan sambandsins þar sem Pólverjar hótuðu að beita neitun- arvaldi gegn öllum ákvörðunum þingsins í framtíðinni. Sunday Express fjallaði um málið og sagði árás Witold Waszczykowski, utanríkisráðherra Pólverja, á evru- verkefnið í heild sinni hafa verið sérlega óheflaða. Þar hafi hann sakað öll hin aðildarríkin um að ráðast á sitt land og reka rýtinginn í bakið á Pólverjum í sambandi við endur- kosningu á Donald Tusk sem forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins til 30. nóvember 2019. Urðu Pólverjar öskureiðir yfir því að meirihluti leiðtogaráðsins valdi að láta einfaldan meirihluta duga varðandi endurkosningu Donalds Tusk en ekki að hann yrði að vera kosinn einróma. Áður hafði meirihlutinn krafist þess að einróma samþykkt yrði að vera fyrir því að mótframbjóðandinn, Jacek Saryusz Wolski, sem valinn var af Pólverjum, yrði samþykktur. Ekkert varð því af því framboði. Sagði utanríkisráðherrann Pólverja ekki láta þetta yfir sig ganga átakalaust. Pólverjar myndu í hefndarskyni sniðganga öll stór verkefni sem studd væru af öðrum ESB-þjóðum. Það gæti lamað sam- tökin algjörlega. Pólverjar treysta ekki Donald Tusk Bakgrunnur þessa máls er að valda- miklir stjórnmálamenn hafa sakað Donald Tusk um að bera ábyrgð á - bróðir hans létust í mjög dularfullu flugslysi árið 2010. Embættismenn innan ESB hafa þó neitað öllum slíkum ásökunum og hafa skellt skuldinni á mistök flugmanna. Tvískipt ESB Ofan á allt þetta hefur Pólverjum verið gerð grein fyrir því að keyrð verði í gegn ný stefna sem miðar að tvískiptu Evrópusambandi (two-speed Europe) eftir útgöngu Breta. Þar muni risarnir innan ESB, Þýskaland, Frakkland, Ítalía og Spánn, sigla á öðrum hraða en restin af ESB-ríkjunum. Héldu þessu ríki reyndar sérstakan fund um þessi áform fyrir fundinn í Brussel. Óttast Pólverjar að í slíku ferli verði þeir skildir útundan, ekki síst í ljósi þess að þeir hafa ekki enn tekið upp evruna. Átökin stigmögnuðust í deilum og hörðum orðaskiptum um hæfni Donalds Tusk í embætti forseta Evrópuráðsins. Að sögn Sunday Express virðist sem nær ómögulegt kunni að vera að sætta sjónarmið pólskra stjórnvalda og stjórnvalda í Brussel. Sérstaklega þar sem Pólverjar segjast ætla að vinna gegn stefnu ESB í framtíðinni. Áform um samræmingu krafta leystist upp í hörð átök Þingið í Brussel átti að fjalla um framhaldið eftir brotthvarf Breta úr sambandinu, en samþykkt var í báðum deildum breska þingsins í síðustu viku að virkja úrsagnarferl- ið. Evrópuþinginu var ætlað að efla samstöðu þeirra 27 ríkja sem eftir eru í ESB, en það leystist í raun upp í hörðum átökum vegna endurkosn- ingar Donalds Tusk og breytta stefnu ESB. Frakklandsforseti hótaði Pólverjum Pólverjar neituðu að skrifa undir niðurstöðu ráðsins. Það leiddi til þess að upp úr sauð yfir kvöldverði fulltrúanna þegar Francois Hollande Frakklandsforseti hótaði að loka fyrir allar fjárveitingar sambandsins til Póllands. Í kjölfarið hélt Beata sérstakan blaðamannafund þar sem hún réðst að leiðtogum ESB. Sagði hún þá reyna að kúga Pólland og varaði þá við því að þetta myndi hafa margvíslegar afleiðingar fyrir sambandið. Í kjölfar fundar Evrópuráðsins gaf Witold Waszczykowski, utanríkis- ráðherra Pólverja, vísbendingar um hvað stjórnvöld í Varsjá myndu gera. Gaf hann í skyn að Pólverjar myndu virkja neitunarvald sitt hvenær sem tækifæri gæfist og lama þannig verk- efni sambandsins í stórum stíl. Pólverjar tortryggnir út í ESB „Það kom í ljós að stefna Evrópu- sambandsins byggir á tvöfeldni. Við verðum að vera viðbúin því að stöð- ugt sé verið að blekkja okkur,“ sagði pólski utanríkisráðherrann. „Við verðum að breyta okkar stefnu og okkar framkomu gagn- vart ESB. Í öllu falli mun traust okkar á ESB minnka.“ Sagði hann að Pólverjar yrðu nú að fylgja nei- kvæðri stefnu gagnvart Brussel og sagði hann það fela í sér að koma í veg fyrir framgöngu áætlana ESBN í framtíðinni. /HKr. Pólitískur glundroði í Evrópuráðinu eftir endurkjör Donalds Tusk: Pólverjar ævareiðir og hóta að beita neitunarvaldi og lama sambandið – Saka meirihlutann um baktjaldamakk og rýtingsstungur UTAN ÚR HEIMI - -

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.