Bændablaðið - 06.04.2017, Page 40

Bændablaðið - 06.04.2017, Page 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017 Jakuxar eru líklega ein furðu- legustu nytjadýr í heimi. Heimkynni þeirra eru á harð- býlum og víðfeðmum hásléttum Himalajafjalla sem stundum eru kallaðar þak heimsins. Þar er loftið þunnt og frost fer niður í -40° á Celsíus. Jakuxar þrífast við aðstæður sem engin önnur húsdýr þola og eru nýtir sem burðardýr, kýrnar eru mjólkaðar og kjöt og innyfli nýtt til matar. Ullin er ofin og húðir sniðn- ar í tjöld, klæði og nytjahluti. Úr hornunum eru smíðuð hljóðfæri og listmunir auk þess sem mykjan er brennd sem eldiviður. Án jakuxa er ólíklegt að fólk gæti þrifist á háslétt- um Himalajafjalla. Áætlaður fjöldi jakuxa í heim- inum er um 15 milljón og 90% af þeim fjölda er að finna í Kína, Himalajafjöllum, hásléttum Tíbet, Nepal, Mið-Asíu og norður til Mongólíu og Síberíu. Langflestir jakuxar eru húsdýr þrátt fyrir að enn sé að finna litlar hjarðir villtra jakuxa, sem eru í útrýmingarhættu, á afmörkuðum verndarsvæðum. Erfitt er að henda reiður á fjölda jakuxa í hverju landi en langflest- ir, um 13 milljón, munu þeir vera í Kína og ríflega 600 þúsund í Mongólíu. Auk þess sem nokkur hundruð innflutta jakuxa er að finna í Bandríkjum Norður-Ameríku og stöku dýragarði. Talið er að villtir jakuxar í heim- inum séu innan við 15 þúsund og að þeir séu afkomendur taminna dýra sem hafa sloppið og aðlagast lífinu í náttúrunni. Skyldir nautgripum Jakuxar eru af sömu ættkvísl og nautgripir, Bos. Latneskt heiti villtra jakuxa er Bos mutus en taminna B. grunniens. Þeir sem láta sig flokk- unarfræði jakuxa varða eru ekki á einu máli um hvort flokka eigi villta jakuxa sem sérstaka tegund eða undirtegund B. grunniens. Talið er að hjarðir B. baikalensis, sem er útdauð tegund, hafi í eina tíð ráfað um sléttur Síberíu og jafnvel farið yfir Beringssund til Norður- Ameríku. Ólík öðrum nautgripum baula jakuxar ekki heldur gefa frá sér nokkurs konar urr eða rophljóð og mun tegundarheitið grunniens vera dregið af því. Íslenska heitið jakuxi líkist enska heitinu yak sem mun upprunalega vera komið frá Tíbet þar sem það er samheiti yfir nautin. Mutus á latínu þýðir aftur á móti þögull eða hljóð- laus. Ásýnd og líkamsstarfsemi Í samanburði við íslenska nautgripi eru jakuxar stór dýr. Fullorðið villt naut getur náð tæpum tveimur metr- um við herðakamb og um tveimur metrum frá haus og aftur á hala. Kýrnar eru smávaxnari. Skrokkurinn er belgmikill og fæturnir stuttir og sterkir og með stórum hringlaga klaufum sem varna því að dýrin sökkvi í mýrlendi. Undir þykkri húðinni sem er án svitahola er lík- aminn þakinn þykku og einangrandi fitulagi. Jakuxar virðast rytjulegir að sjá vegna þess hversu langhærðir þeir eru og lafir hárið langt niður fyrir belginn á þeim. Hárið, eða jakuxaull eins og það er kallað, er þétt og einangrandi og ver dýrin fyrir kulda. Hali jakuxa líkist fremur tagli á hesti en hala naut- gripa. Villtir jakuxar eru yfirleit dekkri en tamdir, brúnleitir eða svartir en tamdir eru til í fjölda litum og litaafbrigðum, hvítir, dökkir eða tvílitir. Hálsinn er stuttur en hausinn stór og breiður og aftan við hausinn er hnúður. Munnurinn er stór en augun og eyrun lítil. Hornin yfirleitt löng, 30 til 100 sentímetrar eftir kyni. Kollóttir jakuxar eru yfirleitt tamdir. Villtir jakuxar eru stærri en tamd- ir. Jakuxakýr vega frá 200 og upp í 250 kíló en nautin eru talsvert þyngri, 350 til 600 kíló. Dæmi eru um að villt jakuxanaut hafi náð rúmu tonni að þyngd. Jakuxar eru vel aðalagaðir að kulda og lífi hátt til fjalla. Lungun og hjarta eru stór og nýta súrefni vel. Frost allt að -40° á Celsíus hefur lítil áhrif á lífstarfsemi þeirra og reyndar er ekki vitað hversu mikið frost þeir þola. Í vondum veðrum hópa dýrin sig saman og mynda þéttan vegg umhverfis kálfana og halda þannig á þeim hita. Þeir sýna sömu hegðun stafi hætta að hópnum og mynda varnarvegg umhverfis ungviðið til að vernda það. Reyndar eru jakuxar það vel aðlag- aðir háfjallalofti að þeir þrífast illa á láglendi og þola varla við fari hiti yfir 15° á Celsíus. Jakuxar eru jórturdýr með óvenju stórt vinstur sem gerir þeim kleift að melta mikið magn af trefjaríkri en næringarsnauðri fæðu eins og sölnuðu grasi, mosa og fléttum. Að meðaltali innbyrða jakuxar um 1% af líkams- þyngd sinni af fæðu á dag. Dýrin eru HELSTU NYTJADÝR HEIMSINS Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Jakuxamjólk þykir góð út í te og til smjör- og ostagerðar. Í Tíbet eru búnir til skúlptúrar í jakuxasmjöri guðunum til heiðurs á trúarhátíðum. Uppruni jakuxa er ofan við vaxtarmörk trjáa í 2.000 til 7.000 metra hæð á hásléttum Himalajafjalla. Í Tíbet og Pakistan er jakuxapóló íþrótt sem aðallega er stunduð ferðamönnum til skemmtunar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.