Bændablaðið - 06.04.2017, Síða 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Inni á miðri Sikiley er lítill ólífu-
búgarður sem lætur ekki mikið
yfir sér en þar er aðaláherslan á
sjálfbæra og lífræna ræktun.
Vincenza Ferrara á búgarðinn,
Azienda Agricola DORA, hún er
einungis 36 ára en hefur nú feng-
ið verðlaun sem annar besti ólífu-
bóndinn á Ítalíu. Olían er sérstaklega
bragðgóð og selst uppskeran upp á
örskömmum tíma.
Í byrjun mars fór hópur
Norðlendinga til Sikileyjar í vinnu-
lotu um sjálfbæra þróun. Námslotan
er partur af Evrópuverkefninu Cristal
en þetta voru kennarar úr Norðurþingi,
starfsmenn frá Þekkingarneti
Þingeyinga, Háskólanum á Akureyri
og Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem
stýrir verkefninu. Verkefnið snýst
um að koma sjálfbærni, frumkvöðla-
mennt og tæknimennt betur inn í
kennslu á mismunandi skólastig-
um. Auk þessara aðila er Vincenza
Ferrara samstarfsaðili í verkefninu
ásamt sænsku tæknifyrirtæki.
Frumkvöðull með hugsjónir
Það má með sanni segja að Vincenza
sé frumkvöðull og syndi á móti
straumnum. Mikið atvinnuleysi er
meðal ungs fólks í héraðinu þar sem
búgarðurinn hennar er og fólksflótti
úr nærliggjandi bæ, Villarosa, þar
sem fjöldi íbúa hefur farið úr 10–15
þúsund í 3 þúsund á örfáum árum.
Það hefur ekki áhrif á þessa ungu
konu en árið 2012 fékk hún Erasmus-
styrk til að koma sér upp lítilli ólífu-
vinnslu. Á meðal þess sem í því fólst
var að koma upp stórri sólarsellu sem
sér vinnslunni fyrir rafmagni.
Afi hennar átti húsið og
landskikann upphaflega og foreldrar
hennar búa þar núna með henni. Eins
og hjá flestum Ítölum voru nokkur
ólífutré nærri íbúðarhúsinu, en þau
voru ekki nýtt nema til heimavinnslu
þangað til ólífuvinnslunni DORA
var komið á fót. Vincenza hafði þá
sótt sér háskólamenntun og unnið
nokkur ár í Palermo. Hugurinn sótti
þó heim og í að nýta náttúruauð-
lindina sem var til staðar. Eftir að
hafa kynnt sér sögu ólífutrjáa kom í
ljós að elstu trén sem eru á búgarðin-
um eru áætluð vera á milli 900–1000
ára gömul. Mörg trjánna eru þó nýrri
en hún segir að eldri trén skili alveg
jafn góðum ólífum og þau nýrri. Þau
hafa nú plantað fleiri trjám til að
auka við vinnsluna en með því að
nota engan áburð tekur um 15 ár
fyrir trén að verða tilbúin til að skila
hæfum ólífum, að öðrum kosti tæki
það um 8 ár. Síðastliðið haust var
fjórða haustið sem þau framleiddu
olíu og hefur ferlið allt verið mjög
lærdómsríkt.
Kaldpressuð og bragðmikil
Þar sem ræktunin er lífræn þá er
enginn áburður notaður í jarðveginn
eða á trén. Allur gróður og illgresi
gefa bragð, að sögn Vincenzu, og í
Íslenski hópurinn ásamt Vincenzu og Johan frá Svíþjóð við elsta ólífutréð á búgarðinum. Myndir / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
Vincenza Ferrara ólífubóndi inni í vinnslurýminu þar sem unnið er úr ólífunum.