Bændablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 6. apríl 2017
Snemma árs 2016 setti atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytið í samstarfi
við sjálfstætt starfandi dýralækni
af stað verkefni sem miðaði að því
að kanna virkni tilraunabóluefnis
gegn kregðu.
Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum (Keldur) og
Landbúnaðarháskóli Íslands (Lbhí)
voru síðan fengin til samstarfs í
þetta verkefni. Í apríl 2016 var
svo farið af stað með tilraun þar
sem notað var bóluefni framleitt í
Þýskalandi. Í bóluefninu var blanda
af kregðusýkilsstofnum sem ræktast
höfðu úr kregðusmituðum hrúti frá
búi á Norðurlandi.
Ákveðið var að bólusetningar-
tilraunin færi fram á sama búi og
kregðusmitaði hrúturinn kom frá, svo
fengist sem gleggst mynd af virkni
bóluefnisins á upprunahjörðina.
Viðkomandi bú kallast hér eftir
tilraunabú.
Um kregðu
Kregða er sjúkdómur í sauðfé af
völdum bakteríunnar Mycoplasma
ovipneumoniae (M. ovipneumoniae;
Sheehan M et al., 2007; Friss NF
et al., 1976). Þó kregða sé þekkt
í sauðfé hérlendis og erlendis er
ýmislegt í eðli sjúkdómsins sem
er óþekkt. Til dæmis er ekki vitað
hvernig ónæmiskerfi sauðfjár bregst
við sýkingunni, en sú þekking er
nauðsynleg til þess að geta viðhaft
fyrirbyggjandi aðgerðir gegn
sjúkdómnum.
Sjúkdómurinn hefur verið
þekktur í áratugi á Norðausturlandi
en hefur á seinni árum náð fótfestu
víða um land (Friss NF et al., 1976;
Þórarinsdóttir, 2014). Í rannsókn
Guðríðar Þórarinsdóttur dýralæknis
árið 2014 á algengi og útbreiðslu
sjúkdómsins í sláturlömbum frá
Suðvestur-, Suður- og Suðausturlandi
kom í ljós að kregða fannst á öllum
þessum svæðum (í 10 varnarhólfum).
Sjúkdómurinn fannst í 60% af 232
búum.
Tíðni kregðu á þessum bæjum var
ekki há, hún fannst eingöngu í 4%
af þeim 24.772 lungum sem skoðuð
voru. Það var hins vegar nokkur
breytileiki í tíðni sjúkdómsins á
milli bæja, frá 0-21.4%. Einnig var
breytileiki á milli varnarhólfa. Í 65%
lungna með kregðu var um væga
sýkingu að ræða, 25% jákvæðra
lungna voru með miðlungs sýkingu,
en 10% voru metin með alvarlega
sýkingu (Þórarinsdóttir, 2014).
Mycoplasma ovipneumoniae
sýking herjar einkum á lömb og
getur valdið lungnabólgu. Eina
áreiðanlega aðferðin til greiningar
á kregðu er að skoða lungu og taka
sýni úr lungnavef, en við haustslátrun
sjást oft einkennandi bólgubreytingar
í framblöðum lungna.
Ásetningslömb með hósta
geta haldið áfram að hósta fram
eftir vetri. Kregða er aftur á móti
sjaldnast talin draga fé til dauða þó
talið sé að sýkingin veikli lungun og
geri þau móttækilegri fyrir öðrum
bakteríusýkingum, sem þá geta fylgt
í kjölfarið og jafnvel dregið dýrin
til dauða.
Bóluefni
Ekkert bóluefni er fáanlegt á
almennum markaði gegn kregðu
í sauðfé. Helsta hindrunin í þróun
kregðubóluefnis er hversu erfitt er
að rækta bakteríuna, auk þess sem
mikill breytileiki er talinn vera á
stofnasamsetningu milli bæja og ára.
Erlendis eru nokkur fyrirtæki sem
taka að sér framleiðslu sérsniðinna
bóluefna gegn kregðu.
Árið 2014 var gerð tilraun í
Bandaríkjunum með sérsniðið
bóluefni gegn kregðu (Ziegler et
al., 2014). Þar kom í ljós að nota
þurfti stóran skammt af bakteríum
og bólusetja tvisvar til að fá fram
mótefnasvörun. Í tilrauninni var
aftur á móti ekki kannað hvort
bólusetningin veitti dýrunum vörn
gegn sjúkdómnum.
Niðurstöður bandarísku
tilraunarinnar voru hafðar til
hliðsjónar við skipulagningu
íslensku bólusetningartilraunarinnar.
Notað var sama magn af bakteríum í
tilraunabóluefninu en eingöngu var
ákveðið að bólusetja lambfullar ær
einu sinni þar sem stutt var í burð
á tilraunabúinu þegar tilraunin
hófst. Út frá upplýsingum um
viðkomandi hjörð var talið líklegt
að tilraunakindurnar hefðu sýkst af
kregðu fyrr á ævinni. Því var talið
að með bólusetningunni væri verið
að endurræsa fyrra ónæmissvar gegn
kregðu.
Lömb með kregðu geta sýnt
sjúkdómseinkenni fljótlega eftir
burð sem bendir til þess að sú
mótefnavörn sem þau fá með
broddmjólkinni sé ekki nægjanleg í
mörgum tilfellum (Gaylor, 2007). Af
þeim sökum var ákveðið að bólusetja
lömb undan óbólusettum ám u.þ.b.
1 viku eftir burð og endurbólusetja
síðan 3 vikum seinna.
Bólusetningartilraunin
Áður en tilraunin hófst var bóluefnið
prófað í 5 ám og 4 lömbum til að
kanna hvort það hefði í för með
sér óæskilegar aukaverkanir.
Bólusetning með bóluefninu virtist
ekki hafa nein áhrif á almenna líðan
áa og lamba.
Til að fá sem mestar upplýsingar
úr bólusetningatilrauninni voru
skilgreindir fjórir tilraunahópar
sem fengu mismunandi meðhöndlun
(Tafla 1). Þeim var svo fylgt eftir með
blóðtökum og skoðun í sláturhúsi að
hausti.
Hópur 1.
Óbólusett lömb undan ám sem
voru bólusettar rétt fyrir burð.
Hópur 2.
Bólusettir tvílembingar (annar
af pari, tvílembingur 1) -
undan óbólusettum ám.
Hópur 3.
Óbólusettir tvílembingar
(annar af pari, tvílembingur 2)
- undan óbólusettum ám.
Hópur 4.
Óbólusett lömb undan
óbólusettum ám.
Skoðun í sláturhúsi að hausti
og mat á lungum
Lömbum frá tilraunabúinu var
slátrað á tímabilinu 30. september
til 31. október 2016 (í fjórum
sláturhópum). Þrjá af sláturdögunum
fór starfsfólk Keldna í sláturhús SAH
á Blönduósi þar sem safnað var
saman lungum með aðstoð ábúenda
tilraunabúsins og sjálfstætt starfandi
dýralæknis, en síðasta sláturdag sáu
ábúendur og dýralæknir um að skoða
lungu og safna sýnum. Lungun voru
skoðuð og metin eftir eftir skalanum
0-5 sem notaður er til að ákvarða
kregðubreytingar. Einnig voru aðrar
breytingar á lungum, s.s. breytingar
af völdum lungnaorma metnar og
skráðar. Alls voru skoðuð 694 lungu
og tafla 1 sýnir niðurstöður eftir
tilraunahópum.
Niðurstöður
Kregðubreytingar fundust í 13 %
lungna (88 af 694) frá tilraunabúinu
þetta haustið. Niðurstöður sýndu
einnig að í 95% lungna með
kregðubreytingar (84 af 88)
reyndust breytingarnar vera mjög
vægar til vægar (stig 1-3; myndir
2 og 3). Miðlungs útbreiddar
kregðubreytingar í lungum fundust
í 3 lömbum og og eingungis eitt lamb
var með útbreiddar kregðubreytingar
í lungum. Þessi fjögur lömb voru öll
í viðmiðunarhópnum (hópi 4).
Tölfræðilegar prófanir á sambandi
bólusetningar lambs eða ær og
kregðu í viðkomandi lambi sýndu
að ekki væri marktækt samband milli
bólusetningar og kregðubreytinga í
þessari tilraun.
Það kom nokkuð á óvart að
við skoðun á lungum fundust
merki um lungnaormasýkingar
í nær 100% lambanna (sjá
myndir 1 og 2), og einnig fundust
lungnapestarbreytingar í hluta
lambanna.
Samantekt
Niðurstaða bólusetningar tilraunar-
innar var sú að kregða virtist ekki
vera vandamál í fé á tilraunabúinu
þetta árið. Einungis í örfáum tilfellum
hefði mátt búast við að kregðusýking
gæti valdið sjúkdómseinkennum í
gripunum.
Ekki var hægt að sýna fram á
virkni sérsniðna bóluefnisins gegn
kregðusmiti.
Sláandi var hversu útbreiddar
breytingar af völdum lungnaorma
voru, og verður að hafa í huga
hugsanlegan þátt ormasýkinga og
annarra bakteríusýkinga í þeim
einkennum sem bændur verða varir
við í sínum hjörðum.
Bólusetningartilraun þessi hefur
varpað ljósi á þörfina fyrir úttekt á
orsökum öndunarfærasjúkdóma, þar
á meðal tíðni og meingerð kregðu,
í íslensku sauðfé. Líklegt má teljast
að ytri aðstæður, svo sem veðurfar,
aðbúnaður og aðrar sýkingar, séu
mikilvægur þáttur í því hvort og
hversu mikil sjúkdómseinkenni sjást
af völdum kregðusýkilsins.
Í þessari rannsókn voru kregðu-
breytingar í flestum tilfellum svo
vægar að ólíklegt verður að teljast að
þær hafi valdið klínískum ein kennum.
Einungis í 4,5% kregðutilfella af, þ.e.
0,6% af öllum sláturlömbum, voru
breytingarnar það alvarlegar að þær
gætu hugsanlega haft áhrif á almennt
heilsufar dýranna (kregðustig 4 og 5).
Árferði var gott sumarið 2016
og getur það hugsanlega skýrt
það hversu lítið var um alvarlegar
Tilraun á bóluefni gegn kregðu 2016
Mynd 1. Lungu skoðuð í sláturhúsi og breytingar kvarðaðar og skráðar.
Lungun voru merk með raðnúmeri (rauðu miðarnir). Á myndinni sjást bólgu-
breytingar eftir lungnaorma, rauðir hnúðar (hvítar örvar benda á nokkra slíka).
Mynd 2. Lunga með mjög væga kregðu (stig 1). Í einu framblaði er línulaga
dökkt svæði með vægri bólgu og samföllnum lungnavef (lungnahrun; svört
píla). Hvítar pílur benda á bólguhnúða eftir lungnaorma.
Mynd 3. Lungu með kregðustig 3: Dökkrauð bólgusvæði yst í framblöðum.
Dreifðir bólguhnúðar (litlir rauðir dílar) eftir lungnaorma í afturblöðum.
Á FAGLEGUM NÓTUM TILRAUNASTÖÐ HÁSKÓLA ÍSLANDS Í MEINAFRÆÐUM AÐ KELDUMLANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.