Bændablaðið - 20.09.2018, Side 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 20186
Þann 8. september sl. boðaði Viðreisn
til blaðamannafundar undir slagorðinu
„Ódýrara Ísland“. Þar voru kynnt
áherslumál flokksins á komandi vetri.
Formaður og varaformaður flokksins
kynntu m.a. leiðir til að lækka vaxtakostnað
og matvælaverð heimilanna. Hvorutveggja
mjög brýn hagsmunamál fyrir neytendur
og þörf umræða.
Það rifjaðist upp fyrir mér við lestur
þessarar fréttatilkynningar að ég hafði setið
fund í landbúnaðarráðuneytinu fyrir ári
síðan nánast upp á dag. Á þeim fundi var
m.a. þáverandi landbúnaðarráðherra sem
er einmitt Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
núverandi formaður Viðreisnar. Einsog alltaf
á fundum mínum í ráðuneytinu skildi ég eftir
minnisblað sem ég afhenti ráðherra og kynnti
jafnframt á fundinum. Meðfylgjandi línurit
var á minnisblaðinu, ég hef reyndar uppfært
það til dagsins í dag.
Á línurritinu má sjá að almennt verðlag
hefur hækkað um 10% á síðustu 5 árum. Á
sama tíma hefur verð til svínabænda lækkað
um 13%. Vísitala neysluverðs er samansett af
talsverðum fjölda undirvísitalna. Ein af þeim
er „kjöt unnið reykt og saltað“.
Svínakjöt er uppistaðan í þeirri vísitölu og
sýnir því best hvernig verðþróun á svínakjöti
hefur verið til neytenda á umræddu tímabili.
Sú vísitala hefur hækkað um 12%. Eða m.ö.o.
á meðan bændur fá sífellt minna í sinn hlut
þurfa neytendur að borga hærra verð fyrir
kjötið.
Ef ég reyni nú að umorða þetta einu sinni
enn, millilliðirnir eru að taka sífellt meira til
sín. Svínabændur gera engar athugasemdir við
að verð hafi lækkað til þeirra á þessu tímabili
en okkur þykir sárt að sjá að ávinningurinn
skili sér ekki til neytenda.
Hefur eitthvað fleira verið að gerast
á þessum árum sem hér eru skoðuð?
Já, innflutningur á svínakjöti hefur
margfaldast að magni – að stærstu leyti á
opnum útboðstollkvótum – og er innflutt
svínakjöt nú komið með upp undir þriðjungs
markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Félag
svínabænda hefur í mörg ár vakið athygli á
þessari þróun en talað fyrir daufum eyrum
svo ekki sé fastar að orði kveðið. Af hverju
hafði þáverandi landbúnaðarráðherra ekki
áhuga á að ræða þessa þróun? Af hverju hafa
Neytendasamtökin ekki áhuga á þessu? Hvað
með ASÍ og Samkeppniseftirlitið? Hvað með
fjölmiðla?
Tollverndin
Á vegum landbúnaðarráðherra starfar nú
nefnd undir forystu Óla Björns Kárasonar
– þingmanns Sjálfstæðisflokksins – sem er
falið það verkefni að endurskoða núverandi
fyrirkomulag við útboð á tollkvótum á
landbúnaðarvörum. Innflytjendur eru ítrekað
búnir að leggja stjórnvöld fyrir dómstólum
í því máli og hafa fengið um 3 milljarða
endurgreidda frá ríkinu. Enn sækja þessir
aðilar rétt sinn fyrir dómstólum og hafa nú
höfðað dómsmál og telja sig eiga inni allt að
4 milljarða í fomri ólögmætrar innheimtu á
útboðsgjaldi tollkvóta. Þetta er umhverfið sem
íslenskir bændur búa við í dag ásamt nýjum
tollasamningi við ESB auk nýfallins EFTA
dóms í hráakjöts málinu svokallaða. Er til of
mikils ætlast að krefjast þess að stjórnvöld
gyrði sig í brók og reyni að minnka óvissu í
þessum málaflokki? Ætla stjórnvöld að halda
áfram að láta hrekja sig úr einu horninu í
annað eða á að móta einhverja heildarstefnu
fyrir landbúnað þar sem skýrar línur verða
lagðar í tollverndinni?
En aðeins aftur að Ódýrara Íslandi. Okkur
bændum hættir til að fara í varnarstellingar
þegar núverandi umgjörð landbúnaðarins er
gagnrýnd. Þannig tel ég að það sé eitt og annað
í tillögum Viðreisnar sem bændur eiga að taka
til skoðunar.
Er skynsamlegt að hafa þannig umgjörð
um landbúnaðinn að „kerfið“ stýri bændum
í ákveðnar búgreinar án tillits til framboðs
og eftirspurnar?
Nýtist opinbert fé e.t.v. betur ef
einstaklingnum er treyst fyrir því að ákveða
hvað hann vill taka sér fyrir hendur í sveitum
landsins?
Fjórða iðnbyltingin er handan við hornið
og þá verðum við að muna að landbúnaður er
svo miklu meira en bara ær og kýr. Er líklegt
að núverandi umgjörð sem við höfum um
íslenskan landbúnað hjálpi okkur best að
takast á við þær miklu breytingar sem fram
undan eru?
Já, ég á mér draum. Að fyrr en síðar verði
öllum gert jafnhátt undir höfði hvar sem
þeir eru í sveit settir. Ég veit, þetta er pínu
barnalegt en hvað með það.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.500 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.250 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Í Norðvestur-Evrópu hafa menn
nú upplifað eitthvert heitasta og
þurrasta sumar síðan mælingar
hófust. Afleiðingarnar fyrir bændur
og matvælamarkaðinn kunna að verða
verulegar í vetur og á komandi misserum.
Hvað kemur það okkur Íslendingum
við kann einhver að spyrja, enda upplifðu
íbúar á sunnan og vestanverðu landinu eitt
blautasta sumar síðan mælingar hófust.
Gallinn er bara að það hefur líka haft
neikvæð áhrif á uppskeru, bæði á fóðri og
matjurtum.
Í Evrópu hafa kartöflubændur mátt þola
20 til 30% minni uppskeru en í meðalári og
svipaða sögu er að segja af hveiti-, korn- og
repjuuppskerunni. Það gildir allavega um
Bretland, Belgíu, Holland, Þýskaland og
Pólland. Í Danmörku, Noregi, Finnlandi
og Svíþjóð var ástandið engu skárra.
Allir vita nú um ásókn norskra bænda
í hey á Íslandi í viðleitni til að koma í veg
fyrir stórfelldan niðurskurð á nautgripum
og öðru búfé. Bændur víða um Evrópu
hafa óskað eftir aðstoð yfirvalda til að
mæta þeim skaða sem þeir hafa orðið og
verða fyrirsjáanlega fyrir. Þannig óskuðu
þýskir bændur eftir einum milljarði evra í
aðstoð fyrir skömmu, eða sem svarar um
128 milljörðum íslenskra króna. Danskur
landbúnaður sér fram á 75 milljarða króna
tjón vegna þurrka.
Áhrifin á matvælamarkaðinn geta
orðið geigvænleg. Vegna uppskerubrests
á dýrafóðri, þá er líklegt að mun meira
verði skorið niður af bústofni bænda en
ella. Það getur þýtt tímabundið offramboð
af vissum kjöttegundum með tilheyrandi
lækkun á verði. Það ætti að öllu eðlilegu
að vera góð tíðindi fyrir neytendur, en það
veldur því miður aðeins skammtímagleði.
Á sama tíma er talið að lítið framboð af
hveiti, korni, grænmeti og ýmsu öðru muni
valda hækkandi verði á mörkuðum. Þar
geta menn ekki svo auðveldlega brugðist
við með innflutningi frá Bandaríkjunum,
Kanada og Suður-Ameríku, því þar hafa
menn líka víða verið að glíma við þurrka,
óvenju mikinn hita og uppskerubrest.
Í ljósi þessa þá segja eflaust einhverjir
að matvælamarkaðurinn fleyti sér bara á
ódýru kjöti sem væntanlega verði nóg af,
alla vega næstu vikur og jafnvel mánuði.
Gallinn er bara að þar mun ástandið að
öllum líkindum snúast upp í andhverfu sína
á næstu misserum. Minni ásetning gripa
vegna fóðurskorts í vetur getur leitt til þess
að t.d. í nautgripaeldi muni myndast stórt
gap í framleiðsluna um nokkurra missera
skeið. Í kjölfar offramboðs er því hætt
við umtalsverðum skorti á nautakjöti á
markaðnum.
Ofan á allt þetta berast svo tíðindi af
hraðri útbreiðslu á svínapest í Evrópu. Á
síðasta ári þurftu Rússar og sumar Austur-
Evrópuþjóðir að glíma við þessa pest og
kostaði það slátrun og urðun á gripum í
hundruð þúsunda vís. Óttinn við svipaðar
afleiðingar í vestanverðri Evrópu er nú mjög
mikill.
Allt þetta leiðir hugann að því hversu
viðkvæmt fæðuöryggiskerfi þjóðanna í
kringum okkur er. Svo ekki sé talað um
Ísland. Hér hafa ákveðinn öfl barist fyrir
því með kjafti og klóm að markaðsöflin
fái alfarið að sjá um okkar matvælamarkað
og helst með algjöru tollfrelsi. Þó frelsi
sé yfirleitt talið til hins góða, þá er það
augljóslega glapræði ef menn samfara því
heykjast á að tryggja kerfi sem getur haldið
uppi fæðuöryggi þjóðarinnar. Spurningin
er hvort það kvikni einhver vitglóra í kolli
slíkra snillinga þegar þeir uppgötva að grasið
er skrælnað hinum megin við lækinn og
þaðan ekki kartöflukvikindi að fá. – Jafnvel
þótt veifað sé þykkum seðlabúntum. /HKr.
Ódýrara Ísland!
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – augl@bondi.is Vefur blaðsins:
www.bbl.is bbl@bondi.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Ingvi Stefánsson
formaður Félags svínabænda
ingvist@simnet.is
Mynd / Hörður Kristjánsson
– Í síðasta blaði láðist að lagfæra texta undir mynd á bls. 6 fyrir prentun. Var hún að sjálfsögðu tekin af Klettshálsi í Austur-Barðastrandasýslu en ekki af Ódrjúgshálsi.
Fæðuöryggi