Bændablaðið - 20.09.2018, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201810
FRÉTTIR
Í byrjun september skrifuðu
mark að s stofan Icelandic lamb og
Kjarna fæði undir samninga um
mark aðs setningu og sölu á íslensku
lambakjöti í Þýskalandi við þýska
fyrirtækið RW-Warenhandelsges
MBH.
Undirbúningur hefur staðið í
um það bil tvö ár. Fulltrúar þýska
fyrirtækisins hafa komið hingað
til lands og fulltrúar íslensku
fyrirtækjanna farið utan.
„Við erum afar bjartsýn á þetta
verkefni,“ segir Svavar Halldórsson,
framkvæmdastjóri Icelandic lamb,
„enda mjög faglega að öllu staðið hjá
Þjóðverjunum og undirbúningurinn
verið til fyrirmyndar.“ Allt í allt koma
sex fyrirtæki að þessum samningum.
Þýskaland er
vænlegur markaður
Samkvæmt samningunum hefur
þýski samstarfsaðilinn einkaleyfi á að
nota merki Icelandic lamb – Roaming
Free Since 874. Íslenska lambið
verður selt bæði til veitingastaða og
verslana. Þjóðverjarnir hafa mikla
reynslu af sölu á matvælum í Evrópu
en RW-Warenhandelsges MBH er
dótturfyrirtæki Witra, eins af stærri
matvælasölufyrirtækjum Þýskalands.
Íslenska lambið verður selt bæði til
veitingastaða og verslana.
„Það er alveg ljóst að Þýskalands-
markaður getur orðið einn af mikil-
vægustu mörkuðum okkar fyrir
íslenskt lambakjöt, en við reynum
hins vegar að halda væntingum
niðri á jörðinni og hugsa frekar
um að byggja þessi viðskipti upp á
skynsaman og arðvænlegan hátt,“
segir Hlynur Ársælsson, fulltrúi
RW-Warenhandels á Íslandi.
Sérstakt vörumerki fyrir
íslenskt lambakjöt
RW-Warenhandels hafa meðal annars
gengið frá sérstökum samningum við
fjölskyldufyrirtækið Albert Rauch
GmbH sem hefur útbúið sitt eigið
vörumerki fyrir íslenskt lambakjöt í
smásölu í Þýskalandi.
„Þetta sýnir okkur að menn
hafa augljóslega trú á verkefninu
og lambinu,“ segir Svavar, „enda
búið að leggja gríðarmikla vinnu og
peninga í undirbúninginn af hálfu
Þjóðverjanna.“
Íslenskt lambakjöt verður selt
undir vörumerkinu Vikingyr bæði í
smásölu og eins á veitingastöðum.
Albert Rauch GmbH flytur nú þegar
inn til Þýskalands fjölmargar gerðir
af kjötvörum frá Spáni, Ítalíu og víðar
og selur að stórum hluta undir eigin
vörumerkjum.
Allt kjötið skorið ytra
Allt íslenska lamba-
kjötið verður flutt utan
í heilum skrokkum og
unnið hjá rótgrónu
fjölskyldufyrirtæki í
Frakklandi. Fyrirtækið
hefur verið í eigu sömu
fjölskyldu í sex ættliði.
„Þetta hjálpar okkur að
ná niður kostnaði og mæta
betur óskum kaupenda hvað
endanlega vöru og pakkningar
varðar,“ segir Andrés Vilhjálmsson,
sölustjóri hjá Kjarnafæði.
„Yfir 200 manns vinna hjá þessu
franska fyrirtæki og kjötvinnslan,
sem er mjög tæknivædd, vinnur yfir
milljón lambaskrokka á ári og er
einnig leiðandi í sölu á lambakjöti á
sínum markaði.“
Horft til Frakklands
Þegar kjötið hefur náð fótfestu í
Þýskalandi stendur til að kynna
það fyrir völdum kúnnum í
Frakklandi í samstarfi við franska
kjötvinnslufyrirtækið. „Það eru
spennandi tímar fram undan og ég
finn fyrir gríðarlegum metnaði hjá
öllum sem að verkefninu standa,“
segir Svavar að lokum.
Íslenskt lambakjöt á leið inn á Þýskalandsmarkað
– Icelandic lamb og Kjarnafæði gera samning við RW-Warenhandelsges MBH og fjölskyldufyrirtækið Albert Rauch
„Þetta er leiðindamál, Vegagerðin
er að okkar áliti að reyna að
koma sér undan verkefni sem
við teljum að eigi að vera hennar.
Þar á bæ hefur verið kvartað
undan fjárskorti árum saman og
ein leiðin virðist vera að koma
verkefnum yfir á aðra, m.a. með
því að fella niður stofnvegi,“ segir
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri
í Hörgársveit.
Vegagerðin hefur sent sveitar-
félaginu bréf þar sem kynnt eru
áform um að fella nokkra vegi í
Hörgársveit út af vegaskrá, m.a.
hluta Hjalteyrarvegar. Í vegalögum
segir m.a. að heimilt sé að láta
stofnveg ná til hafnar sem mikilvæg
er fyrir ferðaþjónustu og flutninga.
„Sveitarfélagið telur að þetta eigi
hiklaust við Hjalteyri og því eigi
Hjalteyrarvegur að teljast stofnvegur
alveg að Hjalteyrarhöfn,“ segir
Snorri.
Vaxandi athafnalíf allt árið
Alvarlegar athugasemdir eru af
hálfu sveitarfélagsins gerð við
fyrirhuguð áform Vegagerðarinnar,
en því var gefinn kostur á að gera
athugasemdir við þau. Bent er á að
á Hjalteyri og við Hjalteyrarhöfn sé
rekin umfangsmikil ferðaþjónusta
og hafnsækin starfsemi sem henni
tengist.
„Ferðaþjónustu hefur vaxið fiskur
um hrygg hér í sveitarfélaginu líkt og
víða annars staðar, en m.a. er gerð út
hvalaskoðun frá Hjalteyri. Mest er
umleikis frá vori og fram eftir hausti,
en athafnalíf á heilsársgrundvelli fer
þó vaxandi á Hjalteyri, þar sem er
einnig öflug menningarstarfsemi
og starfsemi sem er mikilvæg
fyrir atvinnulífið í sveitarfélaginu
og snýst um heilsársuppbyggingu
ferðaþjónustu í Eyjafirði,“ segir
Snorri.
Spara sér viðhaldið
Hann segir að Vegagerðinni beri
að halda Hjalteyrarvegi við, en
greinilegt sé að með því að taka hann
af vegaskrá spari hún sér fé og velti
viðhaldi vegarins, snjómokstri og
öðru yfir á sveitarfélagið.
Kaldar kveðjur
„Hjalteyri sem áfangastaður hefur
ekki í langan tíma verið vinsælli en
um þessar mundir, en það má rekja
til uppbyggingar dugmikilla aðila
þar og í sveitarfélaginu. Okkur
þykir þetta ansi kaldar kveðjur og í
mótsögn við það að ríkið ætli sér að
koma að eflingu ferðamannastaða
á lands byggðinni,“ segir Snorri.
/MÞÞ
Vegagerðin áformar að taka hluta
Hjalteyrarvegar út af vegaskrá
– Verið að reyna að koma kostnaði yfir á sveitarfélagið, segir sveitarstjórinn
Hjalteyri. Mynd / HKr.
Kynning á nýrri vörulínu úr íslensku lambakjöti í sýningarrými Albert Rauch GmbH.
Við undirritun samninga. Talið frá vinstri; Svavar Halldórsson framkvæmda-
stjóri Icelandic lamb, Hlynur Ársælsson, fulltrúi RW-Warenhandels á Íslandi,
Wolfgang Bauer og Andrés Vilhjálmsson, sölustjóri hjá Kjarnafæði.
Þarna er vandað til verka í kjötskurði,
umbúðum og öllum merkingum
vörunnar.
Viðurkenningar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru:
Sveinn Runólfsson hlaut
Náttúruverndarviðurkenninguna
Sveinn Runólfsson, fyrrverandi
landgræðslustjóri, hlaut Náttúru-
verndar viðurkenningu Sigríðar
í Brattholti og þeim Tómasi
Guðbjartssyni og Ólafi Má
Björnssyni var veitt fjölmiðla-
verðlaun umhverfis- og auðlindar-
áðuneytisins á viðburði í tengslum
við Dag íslenskrar náttúru
sem haldinn var hátíðlegur 16.
september.
Dagur íslenskrar náttúru er
afmælisdagur Ómars Ragnars-
sonar, fjölmiðlamanns og náttúru-
verndarsinna, sem ríkisstjórn Íslands
ákvað að heiðra með þessum hætti
árið 2010 og undirstrika um leið
mikilvægi náttúruverndar Íslands.
Sjálfbær nýting lands
Hlýtur Sveinn Náttúruverndar-
viðurkenninguna fyrir að hafa um
áratuga skeið staðið í framvarðarsveit
í baráttunni fyrir vernd og endurreisn
vistkerfa landsins. Í rökstuðningi
ráðherra fyrir viðurkenningunni
segir að Sveinn hafi helgað líf
sitt þeirri hugsjón sinni að græða
landið og tryggja sjálfbæra nýtingu
þess. „Ævistarf Sveins við vernd
landkosta er afar fjölbreytt. Þegar
það hófst var uppblástur og ofbeit
í algleymingi og lítill skilningur á
áhrifum beitar. Uppgræðslustarfið
var erfitt á foksvæðunum og öllu
fagnað sem gróið gat. Sveinn
hefur verið óþreytandi í boðskap
sínum, fræðslu og hvatningu, jafnt
til stjórnvalda sem almennings.
Hann hefur stuðlað að rannsóknum,
fræðslu, stofnun landgræðslufélaga
og fjölbreyttum samstarfsverkefnum
með þátttöku bænda og almennings
sem aukið hefur bæði landlæsi og
afköst í landgræðslustarfinu,“ segir
í rökstuðningi ráðherra.
Fossaröð á svæði Hvalárvirkjunar
Í rökstuðningi dómnefndarinnar
vegna fjölmiðlaverðlaunanna
segir að þeir félagar hafi heimsótt
fjölmarga staði og sótt þangað nýtt
efni, bæði ljósmyndir og myndskeið
og nýtt sér samfélagsmiðla og aðra
fjölmiðla til að koma þessu efni á
framfæri. „Tómas og Ólafur Már
hafa verið óþreytandi við að halda
íslenskri náttúru á lofti í fjölmiðlum,
hefðbundnum sem óhefðbundnum,
á síðastliðnu ári og er það samdóma
álit dómnefndar að með því hafi
þeir haft bein áhrif á að lítt þekktar
náttúruperlur, svo sem fossaröð á
fyrirhuguðu framkvæmdasvæði
Hvalárvirkjunar, hafa komist í
almenna umræðu. Umfjöllun
þeirra er enn fremur lýsandi fyrir
þær breytingar sem orðið hafa á
umhverfi fjölmiðla, þar sem efni
kemur í auknum mæli frá almenningi
fremur en sérhæfðu fréttafólki eða
ljósmyndurum,“ segir í rökstuðningi
dómnefndarinnar. Í henni sátu
Ragna Sara Jónsdóttir, Jón Kaldal
og Valgerður Anna Jóhannsdóttir.
/smh