Bændablaðið - 20.09.2018, Page 12

Bændablaðið - 20.09.2018, Page 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201812 FRÉTTIR Dræmt sveppasumar: Sveppamý gerir usla nálægt Akureyri Nú líður að lokum sveppatínslu- tímabilsins. Veðurfar var misgott eftir landshlutum en hvernig skyldi sveppaáhugafólki hafa reitt af við söfnun á þessum vetrarforða? Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur segir að svo virðist sem sumarið hafi verið fremur dræmt hvað sprettu ýmissa sveppa varðar. „Það hefur sennilega tekið fleiri ferðir en oft áður að útvega vetrarforða af matsveppum. En útsjónarsamir sveppatínslumenn finna samt sveppi. Hér á Norðurlandi hefur sveppasprettan verið fremur jöfn, ekki mikil en svolítið af sveppum frá því í júlí og fram á haust. Mér var sagt að eftir heitt og þurrt vor og fyrri hluta sumars á Austurlandi hefðu sveppir sprottið fremur seint og ekki verið mikið af þeim síðsumars. Á Suður- og Vesturlandi, eftir sólarlítið rigningarsumar, sé einnig dræm spretta helstu matsveppa, svolítið hafi komið upp af þeim en mun minna en oft áður,“ segir Guðríður Gyða. Fyrri ár skipta máli „Reikna má með að hjá þeim sveppum sem mynda svepprót með trjám, geti fyrra ár haft nokkur áhrif á afkomu sveppanna. Svo er oft meira um sveppi í tiltölulega ungum skógi þar sem sól nær að skína á jörð milli trjánna, en í eldri skógum. Maður sér líka að í rjóðrum í skógum þar sem gróður er lágur finnur maður gjarnan sveppaldin; meðan mun færri aldin sjást inni í skóginum – hinum megin á rótarkerfi sama trés.“ Sveppelskandi fluga Að sögn Guðríðar sást í fyrrasumar í fyrsta sinn skemmdir á lerkisveppum í skógum í nágrenni Akureyrar af völdum flugulirfu sem reyndist vera sveppamý. „Flugan ræðst til inngöngu í aldinin strax og göt koma á himnuna, sem hylur pípulag ungra aldina, og voru milli 20 og 30 flugur í einu inni undir hatti þessara ungu sveppa. Flugurnar verptu eggjum í pípulagið sem varð rauðleitt eftir innrás þeirra. Ég náði þremur aldinum sem voru troðfull af flugu þessari og sendi nokkrar til greiningar hjá Erling Ólafssyni, skordýrafræðingi á Náttúrufræðistofnun, og hann greindi fluguna sem sveppamýið Mycetophila fungorum – sveppelskandi flugu með nokkuð langar lappir. Þessi fluga fannst fyrir fáeinum árum sunnanlands og er nú komin til Norðurlands og ætlar greinilega að lifa hér góðu lífi því mikið var af henni í lerkiskógum í sumar. Almennt má segja að þegar sveppir frjósa sé ekki lengur hægt að tína þá. Guðríður segir þó að ef næturfrosti fylgir hlýtt og gott veður þá geti ný aldin komið upp. /smh Framlögum til nýliðunar í landbún aði var úthlutað í fyrsta sinn í fyrra – Framlögum til nýbýlinga var hins vegar úthlutað í síðasta sinn Nýliðunarstuðningur var veittur í fyrsta skipti á árinu 2017, sbr. IV. kafla reglugerðar nr. 1240/2016 um almennan stuðning við landbúnað. Nýliðunarstuðningur er veittur til fjárfestinga í búrekstri. Framlögum til frumbýlinga var úthlutað á árinu 2017 í samræmi við bráðabirgðaákvæði í reglugerð nr. 1151/2016 um stuðning við sauðfjárrækt. Samþykktar umsóknir voru 47 talsins alls að upphæð 22.199.922 kr. og var þetta í síðasta skipti sem framlaginu var úthlutað þar sem ákvæðið er fallið úr gildi. Í nýjum búvörusamningum taka við framlög til nýliðunar í landbúnaði óháð búgrein. Markmið stuðningsins er að aðstoða nýliða við að hefja búskap og auðvelda ættliðaskipti í landbúnaði. Heildarfjárhæð nýliðunar stuðnings skv. fjárlögum 2017 var 129.731.765. 40 umsóknir bárust og fengu 24 aðilar úthlutun skv. vinnureglum sem Matvælastofnun setti sér um forgangsröðun í samræmi við ákvæði reglugerðar. Fjórum umsóknum var hafnað. /HKr. „Ég er mjög sáttur við útkomuna, þetta gekk allt saman ljómandi vel og við fengum góð tilboð frá öllum fyrirtækjum sem eru í rafmagnssölu,“ segir Sigurgeir B. Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, BSE. Sambandið hafði forgöngu um það á liðnu sumri að bjóða út sölu á rafmagni til bænda. Tæplega 70 bændur óskuðu eftir að vera með, samtals í kaup á 6 gígavattstundum af rafmagni. Bændum í Eyjafirði sem áhuga hafa á að ganga inn í tilboðið gefst kostur á því og telur Sigurgeir að þegar upp verður staðið muni á bilinu 80 til 90 bændur vera með. Krónutölur ekki gefnar upp Alls fengu fimm fyrirtæki sem selja raforku gögn og bauðst að vera með í útboðinu, þ.e. Fallorka ehf., HS Orka, Orka náttúrunnar, Orkubú Vestfjarða og Orkusalan ehf., en hið síðast talda bauð lægst og var tilboði frá því tekið. Samningur milli Orkusölunnar og Búnaðarsambands Eyjafjarðar var undirritaður á dögunum. Sigurgeir segir að meirihluti tilboðsgjafa hafi óskað eftir því að upphæð tilboðs yrði trúnaðarmál og vildi því ekki gefa upp krónutölu tilboðsins, „en það er ljóst að um umtalsverða lækkun á kaupum á rafmagni er að ræða,“ segir Sigurgeir og telur lækkun eftir útboð og sameiginleg kaup bænda á rafmagni nema á bilinu 10 til 12 milljónir króna á ári. Olíuvörur næst? Sigurgeir segir mikla vinnu liggja að baki svo stóru og sameiginlegu útboði, en greinilegt að það muni skila bændum töluverðum ávinningi í lægra verði. Taldi hann ekki útilokað að bændur myndu sameinast um fleiri útboð og þá jafnvel strax á næsta ári. „Við erum að skoða ákveðna hluti í þeim efnum og líklegt að næst munum við óska tilboða í olíuvörur, þær eru stór útgjaldaliður hjá bænum og stórt sameiginlegt útboð gæti haft í för með sér hagstæðara verð fyrir bændur en þeim býðst nú,“ segir hann. /MÞÞ Samingur milli Orkusölunnar og Búnaðarsambands Eyjafjarðar var undirritaður á dögunum, en það gerðu Friðrik V. Árnason hjá Orkusölunni og Sigurgeir B. Hreinsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Samningurinn skilar bændum ávinningi í lægra verði. BSE semur við Orkusöluna um rafmagnskaup: Rafmagnið lækkar um 10 til 12 milljónir í kjölfar útboðs seldi veitingar við réttina í sínum réttarskúr og hefur gert um áraraðir. Leitar- og réttarveður var með ágætum og Róbert Gunnarsson með dróna. Mynd / Sigurður Arnarsson Umferð um Hringveg jókst um 3,8% í ágústmánuði og stefnir allt í að umferð muni aukast um tæp 4% þegar horft er til ársins í heild. Það er svipað og meðaltalsaukning á hverju heilu ári frá árinu 2005, en langt frá þeirri aukningu í umferð sem var á liðnu ári, 2017, þegar aukningin nam tæpum 11%. Útlit er því fyrir að verulega dragi úr umferðaraukningu í ár. Rúmlega 14% aukning umferðar um Mývatnsheiði Umferðin í nýliðnum ágústmánuði, um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, jókst um 3,8% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Umferð jókst á öllum svæðum nema á Suðurlandi en mældan samdrátt á því svæði má líkast til skrifa á viðgerðir á Ölfusárbrú og malbikunarframkvæmdir á Hellisheiði. Mest jókst umferð um Norðurland, eða um 6,6%. Mesta aukning á einstaka stöðum var um Mývatnsheiði, eða aukning um 14,4%. Það sem af er ári hefur umferðin nú vaxið um 4,1% miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest hefur umferðin aukist um Suðurland, eða um 7,9% en minnst um Vesturland, eða um 2,5%. Nú stefnir í að umferðin geti aukist um tæp 4% miðað við árið 2017. Búist er við því að aukningin verði mest á Austurlandi, eða um 6% en minnstri aukningu er spáð á Norðurlandi, eða um 2%, að því er fram kemur í frétt á vef Vegagerðarinnar. /MÞÞ Umferðin á Hringvegi jókst um tæp 4% í ágúst

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.