Bændablaðið - 20.09.2018, Síða 13

Bændablaðið - 20.09.2018, Síða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 13 Eldstæðið er samstarfsvettvangur fyrri nýtt tilraunaeldhús: Matarfrumkvöðlar sameinast Nýverið var Facebook-hópurinn Eldstæðið stofnaður sem er hugsaður fyrir matarfrumkvöðla sem hafa áhuga á að deila tilraunaeldhúsi og nýta þannig eldmóð hver annars í þróunarferlinu. Matarfrumkvöðlum á Íslandi virðist fara fjölgandi samfara auknum áhuga á grunngerð matvælaframleiðslu og matreiðslu; meðal annars hráefnum og uppruna þeirra. Meira sést nú af íslensku matarhandverki og smáframleiðslu matvæla. Áhuginn virðist fara vaxandi bæði meðal neytenda og þeirra sem vilja hasla sér völl í slíkri framleiðslu og sölu. Matís styður við frumkvöðla sem þurfa að prófa sína framleiðslu og gera tilraunir og býr yfir tilraunaeldhúsi sem fólki stendur til boða að nýta, en þar er einungis rými fyrir einn í einu. „Forsaga málsins er sú að ég er sjálf matvælafrumkvöðull og hef verið að gera kökur og konfekt í nokkurn tíma með starfsleyfi og aðstöðu í tilraunaeldhúsi Matís í Grafarholti,“ segir Eva Michelsen, sem stofnaði Facebook-hópinn. „Hjá Matís getur einungis einn frumkvöðull unnið í eldhúsinu hverju sinni og ekki mikil aðstaða til að geyma matvæli eða annað milli þess sem unnið er – sérstaklega ef líður langt á milli. Markmiðið er að finna húsnæði sem matarfrumkvöðlar hópsins geta sameinast um.“ Kynntist slíkri starfsemi í Washington „Haustið 2017, nánar tiltekið í september, varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fara út til Bandaríkjanna á vegum verkefnis sem nefnist YTILI (Young Transatlantic Innovative Leadership Initiative). Verkefnið gengur út á að styrkja tengsl milli ungra frumkvöðla í Evrópu og viðskiptalífsins í Bandaríkjunum (e. strenghten the North Atlantic). Ég var í Washington DC í tæpar þrjár vikur og kynntist þar, meðal annarra, Ryan Hansan, stofnanda og eiganda TasteLab, sem er vinnslueldhús fyrir frumkvöðla. Þar sá ég ýmis tækifæri sem væri jafnvel hægt að heimfæra yfir á Ísland. Ég kom því á fót verkefninu „Eldstæðið“, þar sem ég hafði heyrt af fleiri frumkvöðlum í mínum sporum; með litla framleiðslu en væru að fóta sig áfram og vantaði eldhúsaðstöðu sem kostaði ekki morðfjár þar sem væri hægt að vera með hluta af hráefnalager líka; þurrlager, kæli og frysti,“ segir Eva. Styrkur til að koma á fót tilraunaeldhúsi „Í vor fékk ég svo styrk upp á 30.000 evrur frá Rising North, en það er hluti af skandinavísku samstarfsverkefni með Svíþjóð og Finnlandi; þar sem við munum prófa smækkaða útgáfu af þess konar eldhúsi sem ég við sáum í Washington. Í þessu prufuverkefni býðst nokkrum matvælafrumkvöðlum að taka þátt í vinnuhelgi með okkur í vinnslueldhúsi, prófa sínar hugmyndir, fá ráðleggingar um viðskiptahliðina og eitthvað fleira,“ segir Eva. Nánari upplýsingar um aðstöðu, fyrirkomulag og dagsetningar verða, að sögn Evu, aðgengilegar innan skamms ásamt því að opnað verði fyrir umsóknir fyrir áhugasama. Gert er ráð fyrir því að þessar vinnuhelgar muni verða í seinni hluta október og fyrri hluta nóvember. /smh Frá vinnslueldhúsi sem Eva Michelsen fékk að skoða í Washington og nefnist Union Kitchen. Mynd / Eva Michelsen Mikilvægt er að hægt sé að geyma matvæli í tilraunaeldhúsum á milli þess sem unnið er, með þurrlager, kæli og frysti. Frá Union Kitchen í Washington. Mynd / Eva Michelsen Eva Michelsen, sem stofnaði Facebook-hópinn Eldstæðið.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.