Bændablaðið - 20.09.2018, Blaðsíða 13
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 13
Eldstæðið er samstarfsvettvangur fyrri nýtt tilraunaeldhús:
Matarfrumkvöðlar sameinast
Nýverið var Facebook-hópurinn
Eldstæðið stofnaður sem er hugsaður
fyrir matarfrumkvöðla sem hafa
áhuga á að deila tilraunaeldhúsi og
nýta þannig eldmóð hver annars í
þróunarferlinu.
Matarfrumkvöðlum á Íslandi
virðist fara fjölgandi samfara
auknum áhuga á grunngerð
matvælaframleiðslu og matreiðslu;
meðal annars hráefnum og uppruna
þeirra. Meira sést nú af íslensku
matarhandverki og smáframleiðslu
matvæla. Áhuginn virðist fara vaxandi
bæði meðal neytenda og þeirra sem
vilja hasla sér völl í slíkri framleiðslu
og sölu.
Matís styður við frumkvöðla sem
þurfa að prófa sína framleiðslu
og gera tilraunir og býr yfir
tilraunaeldhúsi sem fólki stendur
til boða að nýta, en þar er einungis
rými fyrir einn í einu.
„Forsaga málsins er sú að ég er
sjálf matvælafrumkvöðull og hef
verið að gera kökur og konfekt í
nokkurn tíma með starfsleyfi og
aðstöðu í tilraunaeldhúsi Matís í
Grafarholti,“ segir Eva Michelsen,
sem stofnaði Facebook-hópinn.
„Hjá Matís getur einungis einn
frumkvöðull unnið í eldhúsinu
hverju sinni og ekki mikil aðstaða
til að geyma matvæli eða annað milli
þess sem unnið er – sérstaklega ef
líður langt á milli. Markmiðið er að
finna húsnæði sem matarfrumkvöðlar
hópsins geta sameinast um.“
Kynntist slíkri starfsemi
í Washington
„Haustið 2017, nánar tiltekið í
september, varð ég þess heiðurs
aðnjótandi að fara út til Bandaríkjanna
á vegum verkefnis sem nefnist YTILI
(Young Transatlantic Innovative
Leadership Initiative). Verkefnið
gengur út á að styrkja tengsl milli
ungra frumkvöðla í Evrópu og
viðskiptalífsins í Bandaríkjunum
(e. strenghten the North Atlantic).
Ég var í Washington DC í tæpar
þrjár vikur og kynntist þar, meðal
annarra, Ryan Hansan, stofnanda
og eiganda TasteLab, sem er
vinnslueldhús fyrir frumkvöðla.
Þar sá ég ýmis tækifæri sem væri
jafnvel hægt að heimfæra yfir á
Ísland. Ég kom því á fót verkefninu
„Eldstæðið“, þar sem ég hafði heyrt
af fleiri frumkvöðlum í mínum
sporum; með litla framleiðslu en
væru að fóta sig áfram og vantaði
eldhúsaðstöðu sem kostaði ekki
morðfjár þar sem væri hægt að
vera með hluta af hráefnalager líka;
þurrlager, kæli og frysti,“ segir Eva.
Styrkur til að koma á fót
tilraunaeldhúsi
„Í vor fékk ég svo styrk upp á 30.000
evrur frá Rising North, en það er hluti
af skandinavísku samstarfsverkefni
með Svíþjóð og Finnlandi; þar sem
við munum prófa smækkaða útgáfu
af þess konar eldhúsi sem ég við sáum
í Washington.
Í þessu prufuverkefni býðst
nokkrum matvælafrumkvöðlum að
taka þátt í vinnuhelgi með okkur í
vinnslueldhúsi, prófa sínar hugmyndir,
fá ráðleggingar um viðskiptahliðina
og eitthvað fleira,“ segir Eva.
Nánari upplýsingar um aðstöðu,
fyrirkomulag og dagsetningar verða,
að sögn Evu, aðgengilegar innan
skamms ásamt því að opnað verði
fyrir umsóknir fyrir áhugasama.
Gert er ráð fyrir því að þessar
vinnuhelgar muni verða í seinni
hluta október og fyrri hluta nóvember.
/smh
Frá vinnslueldhúsi sem Eva Michelsen fékk að skoða í Washington og nefnist
Union Kitchen. Mynd / Eva Michelsen
Mikilvægt er að hægt sé að geyma matvæli í tilraunaeldhúsum á milli þess sem unnið er, með þurrlager, kæli og frysti.
Frá Union Kitchen í Washington. Mynd / Eva Michelsen
Eva Michelsen, sem stofnaði
Facebook-hópinn Eldstæðið.