Bændablaðið - 20.09.2018, Page 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201818
Fyrir fimm árum fæddist foli
austur í Landeyjum, sem er nú
ekki frétt nema meira komi til og
það gerir það svo sannarlega.
Folinn ber nefnilega gen fyrir
litmynstri sem ekki hefur verið til
í stofninum fram að þessu. Þetta
litmynstur kallast ýruskjótt og lýsir
sér þannig að í litaða hlutanum,
sem er einkum efri hluti líkamans,
er mjög mikið af hvítum hárum,
misjafnlega þétt settum. Sums
staðar eru allt að því hvítir flekkir
en annars staðar er feldurinn dökkur
en yrjóttur af stökum hvítum hárum.
Þessu yrjótta mynstri fylgir breið
blesa eða hjálmur og hringir eða vögl
í augum og háir sokkar og stundum
hvítt undir kvið. Allt er þetta að því
er virðist dálítið misjafnlega útfært
hjá einstaklingum, þó dæmin séu
ennþá mjög fá.
Bylting í íslenska
hrossastofninum
Það er alveg ljóst að Ellert frá
Baldurshaga er bylting í íslenska
hrossastofninum. Með honum er
komið nýtt litmynstur inn í stofninn,
mynstur sem ekki hefur verið þar
áður svo vitað sé, mynstur sem
við getum nú og verðum að rækta
áfram, skoða fjölbreytileika þess
og möguleg afbrigði. Við getum
leikið okkur með þessar nýju erfðir
á ýmsan hátt í samspili við þá liti
og hin litmynstrin sem fyrir eru í
stofninum.
Litir og mynstur eru nefnilega
ekki bara augnayndi. Í þeim er fólgin
fjölbreytni sem gefur möguleika
í ræktun. Fjölbreytni litanna er
erfðaauður. Viðhald þeirra stuðlar
að virkri erfðabreidd í stofninum og
fjölgun þeirra, eins og nú hefur gerst
með Ellerti, eykur erfðabreiddina
sem stofninn býr yfir.
Orðhákar hafa löngum sagt: „Þú
ríður ekki langt á litnum.“ Með
þessu afgerandi orðalagi hafa þeir
bæði reynt að gera lítið úr þeim
hestamönnum sem hafa ánægju af
litum og leggja sig eftir fágætum
litum og litmynstrum og eins til að
slá á umræðuna um liti, eins og hún
sé einhvers konar óæðri umræða.
Þeir hafa líka sagt að sumir fágætir
litir beri merki um „truntukyn“ sem
er annað orðalag ætlað til þess að slá
umræðu út af laginu.
Þessir fordómar eru þó út í hött
þegar nánar er skoðað. Maður ríður
einmitt á litnum. Knapi sem veit að
hann situr á fögrum hesti, áberandi
og útgeislandi, hann finnur til þess
og er mun montnari og ánægðari
í hnakknum en knapinn sem ríður
við hlið hans á ljótari eða minna
áberandi hesti. Er það ekki eimnmitt
ánægjan sem flestir hestamenn eru
á höttunum eftir?
Truntukyn er kannski alls ekki til
Truntukyn eru, þegar hugsað er út í
það og skoðað í stofnerfðafræðilegu
samhengi, kannski alls ekki til, þetta
eru bara í raun minna ræktaðir eða
ver ræktaðir hópar eða einstaklingar
innan stofnsins. Hópar sem eiga
framtíðina fyrir sér þegar menn snúa
sér að vandaðri ræktun þeirra.
Enginn gat séð Ellert fyrir og
eiginleika hans. Sérkenni hans
hefðu líka getað farið fram hjá
mönnum og ekkert orðið úr honum
og stökkbreytingin sem hann býr
yfir þannig farið forgörðum og aldrei
sest að í stofninum, en sem betur fer
gerðist það ekki og hann er hér með
sérkenni sín og í fullu fjöri. Hann er
fagur og fagurlitaður og gæðingur í
ofanálag, ljúflingur í skapi, algjört
draumahross og af ágætum ættum,
sem fáir myndu kenna við truntur.
Ellert auðgar hrossastofninn og nú
er komið að okkur að taka hann
lengra með ræktun út af honum og
festa þannig þetta litmynstur hans í
stofninum.
Til þess að gera þeim betur
skyljanlegt hvað hér er á ferðinni,
sem eiga bágt með að sjá það fyrir
sér, hversu mikil tíðindi tilkoma
Ellerts er í raun, skulum við hugsa
okkur að upp hefði komið hestur
sem sýndi nýja gangtegund.
Hesturinn hefur fjóra fætur og það
eru fræðilega fjölmargir möguleikar
á kerfisbundinni notkun þeirra, mun
fleiri en þær fimm gangtegundir sem
við þekkjum í íslenska hestinum og
er eitt aðalatrði þegar við mærum
hann. Ég hef lagt það sem þraut
fyrir stærðfræðinga og hestamenn,
að leysa út því hversu mörgum
gangtegundum hesturinn gæti búið
yfir, fræðilega séð. Þeir hafa allir
gefið dæmið frá sér og ekki treyst
sér til að leysa það. Það er því alls
ekki fáránleg hugmynd til útskýringa
og áréttinga á sérstöðu Ellerts að
ímynda sér til samanburðar nýja
gangtegund. Fengjum við allt í einu
hest sem sýndi nýja gangtegund,
myndum við ekki kalla það byltingu
fyrir stofninn?
Þannig bylting er Ellert. Hann býr
yfir nýjung, eiginleika sem ekki var
fyrir hendi áður. Þetta er nýjung sem
kemur til nota í stofninum og sem
auðgar stofninn að erfðafjölbreytni.
Þessari nýjung eigum við að spila
úr á næstu árum og áratugum, ef
íslenski hrossastofninn heldur velli,
heilsu og vinsældum. Við verðum
að gæta þess að þessi stökkbreyting
glatist ekki og áhrifin af henni nái
að breiðast út um stofninn og komi
sér þar fyrir til frambúðar. Enn
sem komið er búa ekki fleiri hross
en Ellert og fjögur afkvæmi hans
yfir eiginleikanum og það er því
auðvelt að glata honum. Hér er um
metnaðarmál og stofnverndarmál
að ræða og allir verða að leggjast
á árarnar til að viðhalda þessum
eiginleika í stofninum í landinu,
ekki bara eigandi Ellerts og stjórn
Stofnverndarsjóðs. Ekki er að efa
að útlendingar munu sækjast eftir
afkomendum Ellerts og við verðum á
meðan eiginleikinn er svona fágætur
að hafa það í huga að viðhalda og
efla hann hér heima. Koma honum
þannig fyrir í stofninum hér að hann
nýtist vel og verði þar fastur í sessi.
Þeir sem eiga úrvalsgóðar hryssur,
hátt dæmdar og hæfileikaríkar,
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 184.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
e
hf
.
Aðventublær í Bamberg
Aðventan í Þýskalandi er heillandi og mikil jólastemning
er í borgum og bæjum. Ferðin hefst í borginni Bamberg,
komið verður til Nürnberg, þar sem finna má elsta
jólamarkað landsins og til borgarinnar Würzburg sem er
töfrandi á aðventunni og státar af líflegum jólamarkaði.
30. nóvember - 7. desember
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Ellert frá Baldurshaga:
Fyrsti ýruskjótti hesturinn í íslenska hrossastofninum
Hér er Ellert í viðtali og upptöku með knapa sínum, Rósu Birnu Þorvaldsdóttur,
á Landsmótinu og kann greinilega að svara spurningunum með réttum
áherslum.
athygli hryssnanna og folaldanna, sem eru afkvæmi Ellerts.
Hryssurnar og folöldin hans Ellerts eru ekki mannhrædd og folöldin full af
forvitni um mannskepnuna.
Hryssurnar og folöldin hans Ellerts
eru ekki mannhrædd og folöldin full
af forvitni um mannskepnuna.
HROSS&HESTAMENNSKA
Hér er Ellert í Víðidalnum á Landsmóti nú í sumar. Með honum er ein af
Einstök.