Bændablaðið - 20.09.2018, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201824
LÍF&STARF
Á fundi stjórnar Auðhumlu 30.
ágúst 2018 lét Egill Sigurðsson
frá Berustöðum í Ásahreppi af
störfum sem formaður stjórnar
Auðhumlu eftir að hafa gegnt
því starfi í liðlega áratug. Nýr
stjórnarformaður var kjörinn
Ágúst Guðjónsson, bóndi á Læk
í Flóahreppi.
„Mitt markmið er að reyna að
snúa rekstri Auðhumlu og MS
í þann farveg að þessi fyrirtæki
geti skilað viðunandi afkomu til
að renna styrkari stoðum undir
mjólkurframleiðslu í landinu,“ segir
Ágúst
Ágúst er búfræðingur
að mennt frá Hvanneyri og
iðnaðartæknifræðingur frá
Tækniskóla Íslands. Áður en hann
gerðist bóndi var hann deildarstjóri
framleiðsludeildar SS í 15 ár.
Bændablaðið heimsótti Ágúst
til að fá nánari deili á honum og
fjölskyldu hans.
Af Brúnastaðakyni
„Ég er fæddur og uppalinn á
Selfossi. Foreldrar mínir eru Guðjón
Axelsson frá Stóru-Hildisey í
Landeyjum og Ásdís Ágústsdóttir
frá Brúnastöðum í Flóa.
Ég á fjórar systur en það eru
þær Ingveldur, Sigríður Anna,
Jóhanna og Sólveig. Ég er kvæntur
Margréti Drífu Guðmundsdóttur
frá Hafnarfirði og eigum við fimm
börn.
Ég varð búfræðingur frá
Hvanneyri árið 1994. Lauk
raungreinadeildarprófi frá
Tækniskóla Íslands 1997, í
framhaldi af því lauk ég B.S. gráðu
í iðnaðartæknifræði árið 2001 frá
Tækniskóla Íslands,“ segir Ágúst.
Hann vann til sveita í 10 sumur
sem barn og unglingur en hefur
síðan aðallega unnið hjá Sláturfélagi
Suðurlands, bæði í sumarstörfum
og var síðan ráðinn deildarstjóri
framleiðsludeildar að loknu námi
árið 2001 og sinnti því starfi í 15 ár.
Skyndihugdetta að sækja um
Læk
Lækur er ríkisjörð sem var auglýst
til ábúðar vorið 2014.
„Það var síðan skyndihugdetta að
henda inn umsókn á síðustu stundu
sem leiddi til þess að við Margrét
vorum valin úr talsvert stórum hóp
umsækjenda. Við slógum til þar
sem við höfum brennandi áhuga
á búskap og gaman að breyta til,“
segir Ágúst og bætir því að jörðin
sé um 220 hektara mýrlend jörð en
mjög grasgefin. Á bænum eru um
50 kýr og aðeins nautauppeldi, auk
14 hesta sem eru hluti af áhugamáli
fjölskyldunnar.
Líkar vel í sveitinni
Ágúst segir að fjölskyldunni líði
vel á Læk og var fljót að venjast
nýjum aðstæðum. Hann sinnir
búskapnum eingöngu en Margrét
vinnur í 40% starfi sem kennari
í Sunnulækjarskóla á Selfossi en
er þess á milli í búskapnum með
honum. Börnin létta síðan undir
eftir því sem tími gefst.
Þungur rekstur Auðhumlu
Það vekur nokkra athygli að á sama
tíma og Ágúst er nýorðinn kúabóndi
þá er hann strax orðinn formaður
stjórnar Auðhumlu.
„Rekstur Auðhumlu og MS
[dótturfélag Auðhumlu] hefur
verið þungur síðustu misseri og
því vildi ég leggja fram krafta
mína þar sem ég taldi að sumt
væri hægt að gera betur í rekstri
þessara fyrirtækja. Ég bauð mig
því fram í stjórn vorið 2017 og fékk
þá sæti í varastjórn en var kosinn í
aðalstjórn vorið 2018. Tók síðan
við stjórnarformennsku 30. ágúst
síðastliðinn.
Mitt markmið er að reyna að
snúa rekstri Auðhumlu og MS í
þann farveg að þessi fyrirtæki
geti skilað viðunandi afkomu til
að renna styrkari stoðum undir
mjólkurframleiðslu í landinu.“
Fyrir þá sem ekki vita þá er
Auðhumla svf. samvinnufélag í
eigu bænda og til þess að öðlast
félagsaðild þurfa bændur að
leggja inn mjólk að staðaldri inn
hjá félaginu. Tilgangur félagsins
er að taka á móti mjólk frá
félagsmönnum, breyta henni í
söluhæfa vöru, dreifa henni og
selja fyrir sem best verð.
Kúabændur fá of lágt verð
– Eins og kunnugt er þá er mikil
mjólkurframleiðsla í landinu en á
sama tíma eru bændur að fá greitt
fyrir alla umframmjólk. Hvernig
fer það saman?
„Bændur fá reyndar bara
greitt 33,4 krónur á lítra fyrir
umframmjólk frá afurðastöð
núna en fullt verð er 90,49 kr á
lítra. En það er ljóst að það gengur
ekki upp að greiða meira fyrir
umframmjólk en vörurnar skila
á erlendum mörkuðum. Miðað
við verðlagsgrundvöll kúabúa
þá erum við að fá of lágt verð en
hann er tæpar 11 milljónir í mínus
miðað við nýjustu útreikninga.
Þessar forsendur varðandi
grundvallarbúið eru reyndar í
endurskoðun og verður fróðlegt að
sjá hvað kemur út úr því. Aukinn
innflutningur er síðan byrjaður að
mynda verðþrýsting á ákveðna
vöruflokka sem verður krefjandi
að glíma við,“ segir Ágúst.
Ísey skyr í 15 löndum
Nýr stjórnarformaður Auðhumlu
fagnar því hvað gengur vel með
sölu á íslenskum mjólkurvörum á
erlendum mörkuðum.
„Já, það eru klárlega tækifæri
með þessum leyfissamningum í
tengslum við Ísey skyr en eins og
staðan er í dag eru seldar vörur í 15
Ágúst Guðjónsson, kjörinn nýr formaður stjórnar Auðhumlu:
Íslenskir kúabændur verði samstiga við
endurskoðun á búvörusamningunum
Lækur í Flóahreppi er ríkisjörð sem er um 220 hektarar að stærð með 50 kýr, nautauppeldi og nokkra hesta.
Ágúst stefnir að því, sem nýr stjórnarformaður hjá Auðhumlu, að snúa rekstrinum við sem hefur verið nokkuð
þungur upp á síðkastið. Hann segir líka að það verði ærið verkefni að glíma við áhrifin af tollasamningi EB.
Myndir / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Ágúst og Margrét stödd í útlöndum með börnin sín fimm. Frá vinstri: Ásdís, 19 ára, Katrín, 13 ára, Helena, 15 ára,
Benóný, 10 ára og Brynhildur, 17 ára. Myndir / Úr einkasafni