Bændablaðið - 20.09.2018, Page 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 2018 25
Hafðu samband við sölumann í síma 590 5116 eða sendu línu á iab@klettur.is og kynntu þér þína möguleika.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Nú bjóðum við MultiOne 6.3 SD vélar á enn betra verði en áður og
með fleiri aukahluti innifalda. Um er að ræða frábærar fjölnotavélar
með 1200 kg lyftigetu.
Á MultiOne 6.3 SD situr stjórnandi í aftari hluta þessara lipru og
sveigjanlegu véla. Vélarnar afhendast með skóflu, aukaballest
að aftan og taðgreip.
Ný sending af MultiOne
6.3 SD fjölnotavélum
Oft veltir lítil vél þungu hlassi
„Mjaltir með Margréti“ klikka ekki, segir Ágúst hlæjandi en þau eiga oft
skemmtilegar stundir í mjaltabásnum við að mjólka þær 50 kýr sem eru á
bænum kvölds og morgna. Hjónin segja engar stórframkvæmdir fram undan
á Læk en hugsanlega verði mjólkurframleiðslan aukin um 10% miðað við
núverandi húsakost. Mynd / MHH
löndum undir þessu vörumerki og
stefnt á talsverðan vöxt.“
Íslendingar standa sig vel
Ágúst er ekki síður ánægður með
Íslendinga sem standa sig vel í
neyslu á mjólkurafurðum.
„Neysla á drykkjarmjólk er nú
alltaf að dragast saman en í staðinn
hefur neyslan aukist í skyri, ostum,
viðbiti og rjóma. Íslendingar
standa sig býsna vel í neyslu á
mjólkurvörum, því verður ekki
neitað.“
Endurskoðun
búvörusamningsins
Þegar Ágúst var spurður í lokin
hvað brynni helst á honum var
hann fljótur að svara.
„Það mikilvægasta fram undan
er að íslenskir kúabændur verði
samstiga við endurskoðun á
búvörusamningunum.“
/MHH
Ágúst er mikill sveitamaður og elskar að vera bóndi. Hann er léttur og hress og hefur gaman af lífinu. Mynd / MHH
BÆNDUR ATHUGIÐ!
Framleiðnisjóður landbúnaðarins kallar eftir umsóknum (B-flokkur)
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi
Sími 430-4300 Netfang: fl@fl.is
Framleiðnisjóður landbúnaðarins er leiðandi stuðningsaðili við þróunar- og nýsköpunarstarf
landbúnaðarins og kallar nú eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði nýsköpunar og
þróunar á bújörðum á vegum bænda (B flokkur). Forgangs njóta þau verkefni sem fela í sér
verulega nýbreytni og sem líkleg eru til að leiða af sér umtalsverða atvinnusköpun.
Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu
sjóðsins, www.fl.is.
Mikilvægt er að vanda til gerðar umsókna og gera grein fyrir öllum efnisatriðum sem
farið er fram á í umsóknareyðublöðunum.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnesi.
Umsóknarfrestur er til 10. október 2018 - póststimpill gildir.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sjóðsins í síma 430 4300 og á netfangið fl@fl.is.
dæB an