Bændablaðið - 20.09.2018, Side 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 20. september 201850
Eftirspurnin eftir mjólkurvörum
kemur til með að halda áfram að
aukast næstu áratugina, umgjörð
framleiðslunnar mun breytast
verulega og kúabúskapur í
Evrópu mun skipta auknu máli
í framtíðinni samkvæmt spá
nokkurra sérfræðinga í mjólkur-
framleiðslu.
Þeir birtu afar góða og ítarlega
grein í tímaritinu Journal of Dairy
Science um þetta efni og er hún
grunnur þessara skrifa hér um
mjólkurframleiðsluna í heiminum
eftir 50 ár.
Aukin eftirspurn
Á komandi árum mun eftirspurnin
eftir mjólkurvörum aukast verulega
af tveimur ástæðum að mati
greinarhöfunda:
Í fyrsta lagi munu meðaltekjur
á hvern íbúa heimsins aukast á
komandi árum og áratugum og
mun það auka eftirspurn eftir
mjólkurvörum og matvælum frá
búfjárrækt, sérstaklega í þeim
löndum sem við köllum þróunarlönd
í dag.
Í öðru lagi þá innihalda mjólkur-
vörur mikið af næringarefnum sem
henta fyrir mannkynið og þess
utan er framleiðsla á mjólk og
mjólkurpróteinum mun nýtnari á
land en önnur próteinframleiðsla. Í
búfjárrækt, þ.e. til að framleiða hvert
gramm af nýtanlegu próteini þarf
minna landsvæði til framleiðslunnar
sé próteinið framleitt með
mjólkurframleiðslu en með annarri
búfjárframleiðslu.
Þá leiðir neysla mjólkurafurða
til hámörkunar á nýtingu lands sem
aðrir fæðuflokkar ná enganvegin
að gera og gildir það bæði um
framleiðslu á grænmeti og afurða
frá annarri búfjárrækt.
Úr 87 kg í 119 kg
Í dag nemur umreiknuð mjólkur-
neysla 87 kg á hvert mannsbarn,
þ.e. sé heildarneysla mjólkurvara
umreiknuð í magn þeirrar mjólkur
sem býr að baki framleiðslunni þá
nemur hún 87 kílóum.
Á bak við þessa tölu er reyndar
ekki gert ráð fyrir smjörneyslu en
í tölum hjá FAO, Matvælastofnun
Sameinuðu þjóðanna, er mjólkurfitan
flokkuð utan við aðrar mjólkurafurðir.
Til þess að setja þessi 87 kíló í
samhengi má geta þess að um-reiknuð
meðalneysla á mjólkurvörum í
þróuðum löndum er í dag 225 kg á
hvern einstakling og er því mikill
munur á milli landa. Talið er að
meðaltal allra landa verði komið í 119
kíló eftir 50 ár og að viðbættri þeirri
mjólk sem fer til framleiðslu á smjöri
auk áætlaðrar fólksfjölgunar hafa
greinarhöfundar reiknað út að árið
2067 muni vanta um 600 milljarða
lítra af mjólk til viðbótar því magni
sem framleitt er í dag!
Í dag kemur 82,4% af mjólkinni
frá mjólkurkúm, 13,6% frá
buffalóum, 2,3% frá geitum, 1,3%
frá ám og 0,4% frá úlföldum og eigi
mjólkurkýr að ná að sinna þessari
auknu framleiðslu þurfa meðalafurðir
þeirra að tvöfaldast á næstu 50 árum
eða úr 2.405 kg í 4.531 kg. Þetta
telja greinarhöfundar ógerlegt vegna
þess að þar sem meðalafurðirnar eru
hvað lægstar í heiminum í dag, eru
lang flestar kýr nú þegar. Líklegri
er því sú spá að kúm muni fjölga en
meðalafurðir munu auðvitað hækka
einnig eitthvað.
Stuðla ber að jafnvægi
Greinarhöfundar benda á að svo unnt
verði að sinna hinni auknu eftirspurn
sé mikilvægt að hvert markaðssvæði
geti sinnt mikið til eftirspurninni með
framleiðslu á eigin markaðssvæði
og að jafnvægi þurfi að vera á
heimaframleiðslu og innflutningi.
Verði þetta gert mun framleiðslan
aukast verulega í þróunarlöndunum
en þar sem fyrirséð er að eftirspurnin
muni vaxa umfram getu kúabænda
viðkomandi landa og landsvæða þá
muni verða markaður fyrir útfluttar
mjólkurvörur.
Mikil fólksfjölgun fram undan
Sameinuðu þjóðirnar (SÞ) telja að
íbúum heimsins muni fjölga úr þeim
7,6 milljörðum, sem talið var að væru
á jörðinni um síðustu áramót, í 10,5
milljarða árið 2067. Þessari spá fylgja
þó rífleg öryggismörk og gæti því
fólksfjöldinn verið einhversstaðar á
bilinu 8,6-12,6 milljarðar.
Að mati SÞ mun 93% af
aukningunni næstu 50 árin verða í Asíu
og Afríku en að mannfjöldinn í Evrópu
muni dragast saman. Á öðrum svæðum
í heiminum mun fólki hins vegar fjölga
hóflega. Að 50 árum liðnum er talið
að helmingur íbúa heimsins muni búa
í einungis 10 löndum: Indlandi, Kína,
Nígeríu, Bandaríkjunum, Pakistan,
Indónesíu, Kongó, Eþíópíu, Brasilíu
og Bangladesh!
Vegna þessara fyrirséðu breyt-
inga, þar sem markaðurinn í Evrópu
er talinn muni dragast saman, er ljóst
að eigi kúabúskapur í Evrópu að halda
áfram að vaxa og/eða standa í stað
þarf að huga að enn frekari útflutningi
mjólkurvara en nú er gert.
Hækkandi hitastig
Síðustu fimm áratugi hefur hitastig
jarðar hækkað og er því spáð að sú
þróun muni halda áfram næstu fimm
áratugi. Það er þó sérstaklega þróun
veðurfars á norðurhveli jarðar sem
Á FAGLEGUM NÓTUMUTAN ÚR HEIMI
Snorri Sigurðsson
snsig@arlafoods.com
Eftirspurnin fer vaxandi
eftir mjólkurvörum
– Sérfræðingar telja að kúabúskapur í Evrópu muni skipta auknu máli í framtíðinni
Íbúfjárrækt, þ.e. til að framleiða hvert gramm af nýtanlegu próteini þarf minna landsvæði til framleiðslunnar sé próteinið framleitt með
mjólkurframleiðslu en með annarri búfjárframleiðslu.
N
ýleg rannsókn frá Írlandi bendir til þess að þau
bú sem hafa mestar meðalafurðir á hverja kú og
mesta mjólkurframleiðslu af hverjum hektara skili
mestum hagnaði auk þess sem kolefnisfótspor þessara
búa er minna en annarra.
Matvælaverð:
Hveiti hækkar í verði um 30%
Spár gera ráð fyrir að verð á
hveiti muni hækka um allt að
30% vegna þurrka á líðandi
sumri og samdráttar í uppskeru
af þeirra völdum.
Verð á hveitibirgðum er þegar
farið að hækka á hveitimörkuðum
og talið að það eigi eftir að
hækka enn meira þegar fer að
ganga á birgðirnar. Samdráttur í
uppskeru vegna viðvarandi þurrka
á hveitiræktarsvæðum heims mun
einnig hafa áhrif og þrýsta verðinu
upp.
Á Bretlandi einu er talið að
uppskeran í ár verði þremur
milljónum tonnum minni en á
síðasta ári og hefur brauð þar
í landi þegar hækkað um 8% í
kjölfar þess. /VH
Nýr sjálfvirkur fóðurrennari:
Sparar bændum margar
vinnustundir
DeLaval kynnti á dögunum
nýjan sjálfvirkan fóðurrennara
sem einnig blandar saman
fóðrinu, DeLaval OptiDuo™.
Þegar rennarinn hefur blandað
fóðrinu kemur hann því inn
að fóðurganginum í hæfilegri
fjarlægð fyrir búfénaðinn.
Mun vélin auka fóðurupptöku,
minnka sóun á fóðri og leiða til
tímasparnaðar hjá bændum.
Nýja fóðurrennarann er hægt að
stilla þannig að hann er virkur allan
sólarhringinn og hefur aukavirkni
með því að hann blandar og flytur
fóðrið fyrir framan dýrin þannig
að þau hafa alltaf aðgang að fersku
fóðri. DeLaval OptiDuo hefur einnig
þann eiginleika að geta meðhöndlað
mikið magn fóðurs hvort sem það er
ferskt gras, vothey eða hey. Vélin
hefur einnig keyrsluvirkni með
leiðsögukerfi sem aðlagar sig að því
að renna, blanda og deila út fóðrinu
eftir magni þess hverju sinni.
„Kosturinn við vélina er einnig
sú að hún heldur fóðurganginum
hreinum og fínum og passar upp á að
fóðrinu sé dreift jafnt og fínt þannig
að alltaf sé fóður á öllum básum.
Þetta leiðir til þess að dýrin sem eru
latari að koma sér til fóðrunar hafa
líka aðgang að fersku fóðri því þau
eru ekki pressuð á staði þar sem önnur
dýr hafa étið upp fóðrið. OptiDuo
sparar mikla vinnu og miðað við
okkar prófanir þá getur vélin sparað
bændum með 60 kýr, þar sem vélin
er keyrð tíu sinnum á sólarhring, um
25 vinnudaga á ári,“ segir Martin
Evensen, þjónustusölustjóri DeLaval
í Noregi. /ehg
Fellibylurinn í Norður-Karólínu:
Milljónir tonna af hlandi
og búfjárskít
Fyrir tveimur árum gekk álíka
stór fellibylur yfir Norður-
Karólínu og gekk yfir ríkið fyrir
stuttu. Fyrir utan mannfall urðu
þúsundir búfjár fellibylnum að
bráð. Auk þess sem fellibylurinn
þá og núna dreifði milljónum
tonna af búfjárskít og hlandi yfir
stór svæði.
Víða í Bandaríkjunum eru stór
opin lón við verksmiðjubú sem eru
full af skít og þvagi úr búfé og eru
lónin eins konar opin haughús eða
opnar hauggryfjur. Mörg þessara
lóna eru á stærð við stöðuvötn og
nú er svo komið að fjöldi þeirra
eru orðin barmafull og hætt við að
úr þeim flæði og afrennslið mengi
grunnvatn á stórum svæðum.
Áætlað magn lífræns úrgangs sem
rennur í slíkt lón frá framleiðendum
svína- og alifuglakjöts í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum er
talið í lítrum á við vatnið í 15.000
ólympískum sundlaugum sem hver
um sig tekur 2,5 milljón lítra af
vatni.
Talið er að fellibylurinn sem
á dögunum gekk yfir Norður-
Karólínu hafi feykt miklu af
innihaldi lónanna langar leiðir með
þeim afleiðingum að skíturinn og
hlandið hafi borist langar leiðir
með tilheyrandi óþrifnaði og
sýkingarhættu. Ekki er nóg með
að úrgangurinn geti borist langar
leiðir með vindi heldur er hætta
á að E. coli bakteríur geti borist
í drykkjarvatn og á akra víða um
ríki. Auk þess sem flóð sem iðulega
fylgja stórviðrum á þessu svæði
skola með sér innihaldi lónanna út
í nærliggjandi ár og vötn. /VH
Flóð sem iðulega fylgja stórviðrum
skola með sér innihaldi lónanna út í
nærliggjandi ár og vötn.
Verð á brauði fylgir verði á hveiti.