Bændablaðið - 29.11.2018, Page 1

Bændablaðið - 29.11.2018, Page 1
32–33 23. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 29. nóvember ▯ Blað nr. 528 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Fuglarnir sem Brynja stoppar upp þykja einstaklega fallegir og vel gerðir hjá henni, enda hefur hún unnið til virtra verðlauna í faginu. Hér er hún t.d. við lóur, keldusvín, auðnutittling stelk, toppskarf og smyril, sem hún hefur stoppað upp en einnig stoppar hún upp spendýr og nú er mikið um að fólk biðji hana um að stoppa upp hausa af hrútum sem það hefur haft miklar mætur á. –Sjá nánar á bls. 33 Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson Innflutningur á fersku ófrosnu kjöti gæti stórskaðað íslenska framleiðslu samkvæmt úttekt Deloitte: Íslenskir kjötframleiðendur gætu tapað hátt í 2.000 milljónum á ári – Þá á eftir að reikna áhættu heilbrigðiskerfisins vegna aukningar sem getur orðið á sýkingum af völdum ofurbaktería Samkvæmt útreikningum Deloitte má búast við að beint tekjutap íslenskra kjötframleiðenda geti numið nær tveimur milljörðum króna á ári ef heimilaður verður frjáls innflutningur á fersku nauta-, svína- og alifuglakjöti sem og eggjum og mjólk. Á meðan framleiðsla á kjötvörum mun verða af allt að 1.750 milljóna króna tekjum, þá mun eggjaframleiðslan skaðast um 50 milljónir en skaði mjólkurframleiðslu mun jafnast út að óbreyttu. Hins vegar er ekki greind hugsanleg afleidd áhrif þess ef leggja þyrfti niður ákveðin bú eða draga verulega úr umsvifum þeirra. Þá eru heldur ekki greind hugsanleg áhrif mögulegs kostnaðar sem gæti komið til vegna dýrasjúkdóma sem kunna að berast til landsins vegna leyfðs innflutnings á fersku kjöti og ógerilsneyddri mjólk og eggjum. Framleiðsluvirði nauta-, svína- og alifuglakjöts á árinu 2016 nam um 9,8 milljörðum króna. Deloitte miðar við tvær sviðsmyndir, þ.e. að Deloitte áætlar að tekjutap íslenskra framleiðenda vegna aukins innflutnings á slíkum kjötafurðum í kjölfar frjáls innflutnings á fersku kjöti geti numið á bilinu 1,4 til 1,8 milljörðum króna á ári, eða 14–18%. Greiningin gerir samt ekki ráð fyrir því að neyslumynstur íslenskra neytenda á matvælaflokkunum breytist ef innflutningur á fersku kjöti verður leyfður. 1.800 milljóna króna tap Miðað er við framleiðslu og neyslu ársins 2016. Þá voru framleiddar nautakjötsafurðir á 822 búum fyrir 3.130 milljónir króna. Áætlað er að í þeirri framleiðslu geti tapið numið 500 til 650 milljónum króna á ári eða 16–21%. Af svínakjöti var framleiðsluvirðið 2.525 milljónir króna. Útreiknað tap vegna innflutnings er þar talið geta numið 300 til 450 milljónum króna, eða 12–18%. Í alifuglarækt voru framleiddar afurðir fyrir 4.152 milljónir króna. Samkvæmt útreikningum Deloitte gæti tap framleiðenda í þeirri grein vegna innflutnings á hráu kjöti numið um 600 til 650 milljónum króna á ári eða 14–16% og 50 milljónum í eggjaframleiðslu. Þannig gæti heimild til innflutnings á fersku kjöti kostað þessar fjórar framleiðslugreinar hátt í tvo milljarða árlega, eða allt að 1.800 milljónum króna. Stóráfall fyrir heilbrigðiskerfið? Í þessum útreikningum Deloitte, sem gerðir voru að beiðni Bændasamtaka Íslands, er ekki tekið tillit til kostnaðar heilbrigðiskerfisins vegna hugsanlegra áfalla af vaxandi gengi sýklalyfjaónæmra baktería í kjölfar innflutnings á hráu, ófrosnu kjöti. Karl G. Kristinsson, prófessor í sýklafræði við HÍ, hefur varað við þessum innflutningi og vísað til þess að búist er við að 10 milljónir manna muni láta lífið á heimsvísu af völdum ólæknandi smits frá sýklalyfjaónæmum bakteríum árið 2050. Dánartíðnin eykst hröðum skrefum víða um lönd. Enn sem komið er hafa Íslendingar sloppið vel vegna einangrunar landsins og þeirra sérstöðu að notkun sýklalyfja í landbúnaði er hvergi minni en hér á landi, nema hugsanlega í Noregi. Mikil notkun sýklalyfja er einmitt höfuðorsökin fyrir því að sýklar mynda ónæmi fyrir þessum lífsnauðsynlegu lyfjum. Baráttan við ofursýkla kostar Stofnun ofnæmis- og smitsjúkdóma í Bandaríkjunum (National Institute of Allergy and Infectious diseases) segir að sýklalyfjaónæmi valdi nú árlega um 90.000 dauðsföllum þar í landi. Kostnaður heilbrigðiskerfisins vegna glímunnar við þessa ofursýkla nemur um 55 milljörðum dollara á ári, eða sem svarar hátt í 6.800 milljörðum íslenskra króna. Það var ekki fyrr en á síðasta ári sem matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hóf að vinna gegn notkun sýklalyfja í landbúnaði þar í landi. Í Evrópu hefur staðan verið litlu betri. Sýklalyfjanotkun í landbúnaði í okkar helstu viðskiptalöndum er gríðarleg og kostar árlega á fjórða tug þúsunda mannslífa. /HKr. – Sjá nánar bls. 2 Markaðssetning Icelandic Lamb gengur vel á Íslandi 18 30–31 Skógarbændur eru að ná frábærum árangri á jörðum sínum Margar ástæður fyrir því að við ættum að borða meira af hrossakjöti Svínakjötsinnflutningur: Grunur um misferli Innflutningsaðilar á svínakjöti eru grunaðir um að fara á svig við kerfið og flytja inn úrbeinaða svínahnakka sem svínasíður. Ingvi Stefánsson, formaður Félaga svínabænda og bóndi í Teigi, segir að búið sé að senda erindi til bæði fjármála- og landbúnaðarráðuneytis þar sem óskað er eftir því að málið sé kannað með tollayfirvöldum. „Við höfum rökstuddan grun um að eitthvert magn af svínakjöti eins, og til dæmis úrbeinaðir svínahnakkar, hafi verið fluttir inn sem svínasíður,“ segir Ingvi í samtali við Bændablaðið. „Okkur í stjórn Félags svínabænda barst til eyrna fyrr á þessu ári að það væru brotalamir í innflutningi svínakjöts og í framhaldi af því fórum við að skoða málið betur. Ég get ekki lagt fram neinar magntölur en miðað við hvað innflutningur á síðum er mikill þá kemur ekki á óvart að annað kjöt fylgi með sem síður. Þrátt fyrir að þessi staða hafi komið upp viljum við trúa því að flestir sem standa í innflutningi á svínasíðum séu sannanlega að flytja þær inn en ekki eitthvað annað,“ segir Ingvi. /VH – Sjá nánar á bls. 8

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.