Bændablaðið - 29.11.2018, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. nóvember 2018 37
Ferskjur bárust til Grikklands um
300 fyrir Krist eftir að Alexander
mikli lagði undir sig Persíu.
Rómverjar voru farnir að rækta
ferskjur í Bologna-héraði hundrað
árum eftir Krist og það má sjá
myndir af þeim á veggjum í Pompei
sem eldgosið í Vesúvíus lagði í eyði
79 eftir Krist.
Spænskir landkönnuðir báru
með sér ferskjur yfir Atlantshafsála
til Mið- og Suður-Ameríku á 16.
öld. Um öld seinna berast þær til
Frakklands, Bretlands og norður
eftir Evrópu. Talið er að breski
garðyrkjumaðurinn George Minifie
hafi fyrstur manna haft með sér
ferskjur til Norður-Ameríku á 17. öld
og ræktað á landareign í Virginíuríki.
Thomas Jefferson, þriðji forseti
Bandaríkjanna, ræktaði ferskjutré
á búgarði sínum Monticello í sama
ríki. Sagt er að Cherokke-indíánar
hafi snemma lært að rækta ferskjur
af evrópsku landnemunum.
Almenn ræktun á ferskjum í
Norður-Ameríku hófst þó ekki fyrr
en á nítjándu öld. Í dag er ræktun
á þeim í Bandaríkjunum mest í
Kaliforníu.
Ræktun og ólík yrki
Ferskjur og nektarínur kjósa mikla
sól og fremur þurran og niturríkan
jarðveg en þola illa að þorna um of.
Þær dafna best þar sem greinileg
skil eru milli árstíða. Æskilegur
sumarhiti er milli 20° og 30° á
Celsíus. Plantan þarf hvíldartíma
þar sem hitinn fer niður fyrir 10°
á Celsíus í að minnsta mánuð á ári.
Ferskjutré þola allt að mínus 30°
á Celsíus en blómvísar drepast við
mínus 15° á Celsíus.
Við góðar aðstæður mynda
ferskju- og nektarínutré aldin á
þriðja ári og trén í ræktun í sjö til
fimmtán ár eftir afbrigðum áður en
þeim er skipt úr fyrir ný. Líkt og
flest ávaxtatré af ættkvíslinni Prunus
þola ferskjutré vel klippingu og því
auðvelt að móta trén að vild.
Mismunandi er milli afbrigða
ferskja og nektaría hvort aldinið
losnar auðveldlega frá fræhulstrinu
eða ekki og eru þau fyrrnefndu
vinsælli til átu fersk en þau
fastheldnu meira notuð í vinnslu á
safa og til niðursuðu.
Ræktendur kjósa helst afbrigði
ferskja og nektarína sem eru fastar
í sér, rauðleitar og með mjúkri
flauelshúð þar sem slík aldin þola
betur flutning, hafa lengri hillutíma
í verslunum og seljast almennt
betur. Þetta val hefur dregið úr
bragðgæðum aldinanna þar sem
mjúk aldin eru sætari á bragðið en
stinn.
Dæmi um ferskjuafbrigði sem
þykja skara fram úr eru meðal
annarra 'Duke of York', 'Peregrine',
'Rochester' og 'Lord Napier' sem er
nektarína. Til er afbrigði af ferskjum
sem kallast 'pan-tao ', kleinuhringja-
eða Satúrnusarferskjur, Prunus
persica var. platycarpa, og eru þær
flatari í lögun en venjulegar ferskjur
og þær hafa fengist í verslunum hér
á landi.
Eins og með aðrar plöntur í
ræktun sækja margvíslegar óværur
á ferskjur og nektarínur og er margs
konar eiturefnum beitt til að draga úr
skaða þeirra. Reyndar eru ferskjur og
nektarínur í hópi með plöntum sem
kallast „Dirty dozen“ og er hópur
þeirra tólf plantna sem mest er notað
af eiturefnum við ræktun á.
Nektarínur
Ekki er vitað fyrir víst hvenær
nektarínur komu fyrst fram á
sjónarsviðið en þeirra er fyrst getið
í enskum ritheimildum árið 1616
en talið er víst að þær hafi verið í
ræktun í Asíu mun lengur og jafnvel
álíka lengi og ferskjur.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku
er getið um ræktun á nektarínum
í dagblaði í New York árið 1768
og sagt að þær séu ræktaðar við
útjaðra borgarinnar. Plöntusafnarinn
David Fairchild flutti einnig fjölda
yrkja til Bandaríkjanna í kjölfar
söfnunarferða sinna um heiminn í
upphafi tuttugustu aldarinnar.
Ferskjur og menning
Ferskjur koma víða fram sem tákn,
í trúarbrögum, listum og alþýðutrú.
Í kristni voru ferskjualdin tengd
þrenningunni, faðir, sonur og
heilagur andi, vegna þess að aldinið
skiptist í aldinkjöt, fræhulstur og fræ.
Sum málverk endurreisnartímans,
sem sýna Maríu og Jesúbarnið,
heldur Jesú á ferskju sem tákn um
fyrirgefningu.
Dæmi um evrópska málara sem haft
hafa ferskjur eða ferskjutré sem mótíf
við ólíkar aðstæður eru Caravaggio,
Renoir, Monet, Manet, Rubens og
Van Gogh. Samkvæmt því sem
listvitringar segja geta ferskjualdin
í evrópskum málverkum staðið sem
tákn fyrir hjartað og sé laufblað
tengt aldininu táknar það tunguna.
Saman tákna aldinið og laufið að
sannleikurinn sé sagður frá hjartanu.
Þroskað aldin er sagt merki um
góða heilsu en skemmt eða ormétið
krankleika.
Í kínverskri alþýðutrú eru ferskjur
tákn um langlífi og í þarlendum
goðsögnum er talað um ferskjur
ódauðleikans sem hafa þann
eiginleika að yngja alla þá upp sem
þær borða.
Samkvæmt kínverskri sögn
tryggðu Jaðe keisarinn og eiginkona
hans drottingarmóður Vestursins
guðlegum verum eilíft líf með því
að bjóða þeim til veislu þar sem boðið
var upp á ferskjur ódauðleikans. Sagt
er að guðaverurnar hafi beðið í sex
þúsund ár eftir veislunni þar sem
ferskjutré ódauðleikans laufgast á
þúsund ára fresti og að minnsta kosti
þrjú þúsund ár til viðbótar þarf til að
afbrigðið þroski aldin.
Kínverski heimspekingurinn Han
Fei, sem uppi var á þriðju öld fyrir
upphaf okkar tímatals, notar ferskjur
sem samheiti yfir samkynhneigð í riti.
Í japönskum þjóðsögum segir að
hetjan Monotaro hafi fæðst af stórri
ferskju sem flaut með straumnum
í ónefndri á, Ferskjudrengurinn,
eins og Monotaro er stundum
nefndur. Eftir fæðingu
barðist ferskjupilturinn
gegn hinu illa í heiminum.
Kóreubúar segja
ferskjur vera aldin
hamingju, ríkidæmis,
heiðurs og langlífis. Beri
aldin tvö fræ er það sagt
vera fyrirboði um mildan
vetur.
Nytjar
Yfirleitt er ferskja og nektarína
neytt ferskra en þær eru líka
góðar niðursoðnar eða pressaðar
í safa. Þær eru einnig notaðar
í bakstur og sem eftirréttur og
með ís og í ávaxtasalat.
Hurðir smíðaðar úr ferskjuvið
eru sagðar góð vörn gegn illum
öndum og að skjóta örvum úr
ferskjuviði úr boga úr sama viði
góð leið til að hrekja burt illa
vætti og anda. Vendir og nisti úr
ferskjuvið eru verndargripir gegn
illu. Fræhulstur ferskjualdins er
notað í kínverskum lækningum gegn
blóðsjúkdómum, þembu og til að
draga úr ofnæmiseinkennum.
Ferskjur og nektarínur á Íslandi
Í Lesbók Morgunblaðsins október
1926 er að finna orðasafn sem
Orðanefnd Verkfræðingafélagsins
tók saman að ráðum og atbeina
verslunarmanna í Reykjavík. Í safninu
er að finna tillögur að íslenskun á
fjölda erlendra orða Eitt þessara orða
er danska heitið fersken og lagt til að
það verði eftirleiðis ferskja. Það er
einnig lagt til að kryddið allehanden
sé kallað kryddblendingur, apríkósa
eiraldin og saffran safur og beygist
eins og hafur.
Samkvæmt því sem segir í
Heimilisritinu frá 1951 boðar það
góða heilsu og áhyggjuleysi að
dreyma ferskju og í Tímanum um
svipað leyti þar sem vitnað er í bréf
Klöru Patecci undir fyrirsögninni
Ástarævintýri Mussolini: „Manstu
þegar þú sagðir við mig: Munnur þinn
er eins og ferskja, sem mig langar til
að gæða mér á.“
Upp úr 1970 fer að bera á
ferskjum og nektarínum á matseðlum
veitingahúsa og í auglýsingum
og í dag þykja þær sjálfsagðar í
ávaxtadeildum matvöruverslana.
Ferskjur eru sætir ávextir ferskjutrjáa, Prunus persica. Ferskjutré eru lauffellandi og ná hæglega tíu metra hæð í náttúrulegum heimkynnum sínum í Asíu.
Framleiðsla á ferskjum og nektarínum hefur aukist hratt undanfarin
ár og áætluð heimsframleiðsla á ferskjum og nektarínum árið 2016
er rúm 25 milljón tonn.
Ferskjutréð Vincent Willem van Gogh. Málað 1888.