Bændablaðið - 13.12.2018, Side 1
84
24. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 13. desember ▯ Blað nr. 529 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Losun á metangasi frá búfé er ekki
eins mikill áhrifavaldur á hlýnun
loftslags eins og haldið hefur verið
fram. Endurskoðun vísindamanna
í Oxford á aðferðarfræði við
útreikninga á áhrifum metangass
sem gróðurhúsalofttegundar
benda til að útreikningar til
þessa kunni að hafa afvegaleitt
umræðuna.
Þetta kom m.a. fram í
samantekt sem kynnt var í júlí
á þessu ári hjá Oxford Martin
School-rannsóknamiðstöðinni við
Háskólann í Oxford.
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (WHO) hefur
sagt að landbúnaður sé valdur að
18% losun gróðurhúsalofttegunda
á heimsvísu. Þar sé nautgriparækt
aðalsökudólgurinn og mest vegna
losunar á metangasi úr meltingarvegi
dýranna. Það samsvari losun á tveim
milljörðum tonna af koltvísýringi
á ári.
Í þessum tölum WHO og flestra
annarra sem um gróðurhúsaáhrif
hafa fjallað á umliðnum árum
er ekki minnst á að metangas
eyðist í andrúmsloftinu um 10% á
hverjum 30 árum, eða um -0,3%
á ári. Þá helmingast það á um
200 árum og veldur því engum
viðbótaráhrifum til hlýnunar með
uppsöfnun í lofthjúpnum, samkvæmt
niðurstöðum vísindamanna í Oxford.
Margfeldisáhrif metans sagt allt
frá 21 upp í 84
Oft er talað um að margfeldisáhrif
metans í samanburði við koltvísýring
sé 21-falt. Umhverfisstofnun
á Íslandi hefur t.d. sagt að
margfeldisáhrifin séu 25-föld á við
CO2.
Í samantekt Oxford-háskóla
kemur fram að losun metans
(CH4) komi sem hliðarafurð af
meltingu og gerjun og úr mykju.
Hvert mólikúl metans hafi
vissulega meiri hlýnunaráhrif en
koltvísýringsmólikúl CO2, en líftími
þessara lofttegunda sé mjög ólíkur.
Áhrif metans og blöndun þess í
lofthjúpnum sé gjörólíkt því sem
gerist varðandi koltvísýring.
Í úttektinni segir að oft sé
miðað við að eitt tonn af metani
samsvari 28 tonnum af CO2 miðað
við upphitunarstuðul og100 ára
mögulega loftslagshlýnun (the 100-
year Global Warming Potential -
GWP100). Þá sé líka stundum notað
viðmiðið GWP20, en þar samsvarar
eitt tonn af metangasi 84 tonnum
af CO2. Það er því engin furða að
tölur séu mjög á reiki og misvísandi
í umræðunni um hlýnun loftslags.
Ekki gert ráð fyrir ólíkum
eiginleikum metans og
koltvísýrings
Vísindamennirnir í Oxford segja
að viðtekin framsetning á GWP
upphitunarstuðlinum sé röng. Hún
geri ekki ráð fyrir að samdráttur í
losun á metani geti lækkað hitastig
á heimsvísu. Segja þeir að hvorki
GWP100 viðmiðuninni né GWP20
geri ráð fyrir mjög mismunandi
hegðun metans og koltvísýrings í
lofthjúpnum.
Þeir benda á að þegar tillit er
tekið til samspils útstreymis metans
og skammlífis þeirrar lofttegundar í
andrúmsloftinu, endurspegli það mun
nákvæmari niðurstöður en áður hefur
verið gengið út frá. Í niðurstöðum
úttektarinnar í Oxford segir:
• „Hefðbundin skilgreining á
mögulegri loftslagshlýnun
(Global Warming Potential –
GWP) getur verið villandi þegar
kemur að losun á metangasi.
Endurbætt skilgreining á
GWP mæligildum hefur verið
túlkuð á nýjan hátt og gefur nú
nákvæmari vísbendingar um
áhrif skammlífra lofttegunda
á hitastigið á jörðinni. Þetta
er sérstaklega mikilvægt fyrir
búfjárrækt
• Losun á metani út í
andrúmsloftið í fortíðinni
hafði hlýnunaráhrif meðan
metanið var til staðar. Stöðug
metanlosun hefur hins vegar lítil
áhrif í átt til aukinnar hlýnunar.
Hvert tonn af koltvísýringi CO2
sem losað er hefur aftur á móti
áhrif til hlýnunar í samræmi við
það magn CO2 sem losað er.
• Metangas eyðist í andrúms-
loftinu um 10% á hverjum
30 árum og helmingast á um
200 árum og veldur þá engum
viðbótaráhrifum til hlýnunar.
• Hraðari losun metans leiðir
hins vegar til kælingar á lofthita
og gefur landbúnaði tækifæri
til að hægja á áhrifum CO2
mengunar. Samfara því er samt
mikilvægt að koma nettó losun
CO2 og nituroxíðs í jafnvægi á
heimsvísu til lengri tíma litið.“
• Aukin metanlosun veldur mjög
mikilli hlýnun og jafngildir
mjög mikilli losun koltvísýrings
– en aðeins þegar þessi aukning
er að eiga sér stað.“
Samkvæmt niðurstöðum vísinda-
mannanna hafa fullyrðingar um
margföld áhrif metans á myndun
gróðurhúsaloftslags ekki tekið tillit
til skammlífis þessarar lofttegundar
í andrúmsloftinu. Það getur valdið
mikilli skekkju í öllum niðurstöðum.
Samkvæmt því standast væntanlega
ekki heldur alhæfingar um svo og
svo mikla skaðsemi búfjárræktar
fyrir loftslagið á jörðinni til lengri
tíma litið. /HKr.
Vísindamenn í Oxford segja ranga framsetningu á viðmiðunarstuðlum hafa afvegaleitt loftslagsumræðuna:
Búfjárrækt er ekki eins stórskaðleg fyrir
hlýnun jarðar og fullyrt hefur verið
Íslensk nautgriparækt verði
kolefnisjöfnuð á 10 árum
Merkingum á 152
miltisbrandsgröfum er lokið
44–45
Stjórnvöld og bændur í
samstarf um náttúruvernd