Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 1

Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 1
84 24. tölublað 2018 ▯ Fimmtudagur 13. desember ▯ Blað nr. 529 ▯ 24. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Losun á metangasi frá búfé er ekki eins mikill áhrifavaldur á hlýnun loftslags eins og haldið hefur verið fram. Endurskoðun vísindamanna í Oxford á aðferðarfræði við útreikninga á áhrifum metangass sem gróðurhúsalofttegundar benda til að útreikningar til þessa kunni að hafa afvegaleitt umræðuna. Þetta kom m.a. fram í samantekt sem kynnt var í júlí á þessu ári hjá Oxford Martin School-rannsóknamiðstöðinni við Háskólann í Oxford. Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO) hefur sagt að landbúnaður sé valdur að 18% losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þar sé nautgriparækt aðalsökudólgurinn og mest vegna losunar á metangasi úr meltingarvegi dýranna. Það samsvari losun á tveim milljörðum tonna af koltvísýringi á ári. Í þessum tölum WHO og flestra annarra sem um gróðurhúsaáhrif hafa fjallað á umliðnum árum er ekki minnst á að metangas eyðist í andrúmsloftinu um 10% á hverjum 30 árum, eða um -0,3% á ári. Þá helmingast það á um 200 árum og veldur því engum viðbótaráhrifum til hlýnunar með uppsöfnun í lofthjúpnum, samkvæmt niðurstöðum vísindamanna í Oxford. Margfeldisáhrif metans sagt allt frá 21 upp í 84 Oft er talað um að margfeldisáhrif metans í samanburði við koltvísýring sé 21-falt. Umhverfisstofnun á Íslandi hefur t.d. sagt að margfeldisáhrifin séu 25-föld á við CO2. Í samantekt Oxford-háskóla kemur fram að losun metans (CH4) komi sem hliðarafurð af meltingu og gerjun og úr mykju. Hvert mólikúl metans hafi vissulega meiri hlýnunaráhrif en koltvísýringsmólikúl CO2, en líftími þessara lofttegunda sé mjög ólíkur. Áhrif metans og blöndun þess í lofthjúpnum sé gjörólíkt því sem gerist varðandi koltvísýring. Í úttektinni segir að oft sé miðað við að eitt tonn af metani samsvari 28 tonnum af CO2 miðað við upphitunarstuðul og100 ára mögulega loftslagshlýnun (the 100- year Global Warming Potential - GWP100). Þá sé líka stundum notað viðmiðið GWP20, en þar samsvarar eitt tonn af metangasi 84 tonnum af CO2. Það er því engin furða að tölur séu mjög á reiki og misvísandi í umræðunni um hlýnun loftslags. Ekki gert ráð fyrir ólíkum eiginleikum metans og koltvísýrings Vísindamennirnir í Oxford segja að viðtekin framsetning á GWP upphitunarstuðlinum sé röng. Hún geri ekki ráð fyrir að samdráttur í losun á metani geti lækkað hitastig á heimsvísu. Segja þeir að hvorki GWP100 viðmiðuninni né GWP20 geri ráð fyrir mjög mismunandi hegðun metans og koltvísýrings í lofthjúpnum. Þeir benda á að þegar tillit er tekið til samspils útstreymis metans og skammlífis þeirrar lofttegundar í andrúmsloftinu, endurspegli það mun nákvæmari niðurstöður en áður hefur verið gengið út frá. Í niðurstöðum úttektarinnar í Oxford segir: • „Hefðbundin skilgreining á mögulegri loftslagshlýnun (Global Warming Potential – GWP) getur verið villandi þegar kemur að losun á metangasi. Endurbætt skilgreining á GWP mæligildum hefur verið túlkuð á nýjan hátt og gefur nú nákvæmari vísbendingar um áhrif skammlífra lofttegunda á hitastigið á jörðinni. Þetta er sérstaklega mikilvægt fyrir búfjárrækt • Losun á metani út í andrúmsloftið í fortíðinni hafði hlýnunaráhrif meðan metanið var til staðar. Stöðug metanlosun hefur hins vegar lítil áhrif í átt til aukinnar hlýnunar. Hvert tonn af koltvísýringi CO2 sem losað er hefur aftur á móti áhrif til hlýnunar í samræmi við það magn CO2 sem losað er. • Metangas eyðist í andrúms- loftinu um 10% á hverjum 30 árum og helmingast á um 200 árum og veldur þá engum viðbótaráhrifum til hlýnunar. • Hraðari losun metans leiðir hins vegar til kælingar á lofthita og gefur landbúnaði tækifæri til að hægja á áhrifum CO2 mengunar. Samfara því er samt mikilvægt að koma nettó losun CO2 og nituroxíðs í jafnvægi á heimsvísu til lengri tíma litið.“ • Aukin metanlosun veldur mjög mikilli hlýnun og jafngildir mjög mikilli losun koltvísýrings – en aðeins þegar þessi aukning er að eiga sér stað.“ Samkvæmt niðurstöðum vísinda- mannanna hafa fullyrðingar um margföld áhrif metans á myndun gróðurhúsaloftslags ekki tekið tillit til skammlífis þessarar lofttegundar í andrúmsloftinu. Það getur valdið mikilli skekkju í öllum niðurstöðum. Samkvæmt því standast væntanlega ekki heldur alhæfingar um svo og svo mikla skaðsemi búfjárræktar fyrir loftslagið á jörðinni til lengri tíma litið. /HKr. Vísindamenn í Oxford segja ranga framsetningu á viðmiðunarstuðlum hafa afvegaleitt loftslagsumræðuna: Búfjárrækt er ekki eins stórskaðleg fyrir hlýnun jarðar og fullyrt hefur verið Íslensk nautgriparækt verði kolefnisjöfnuð á 10 árum Merkingum á 152 miltisbrandsgröfum er lokið 44–45 Stjórnvöld og bændur í samstarf um náttúruvernd
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.