Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 20188 FRÉTTIR Jólamarkaður í Hörpu um helgina Karl Jeppesen FORNAR HAFNIR Ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Ferðalagið hefst á Horni og síðan liggur leiðin allt í kring- um landið. Áningar staðirnir eiga það allir sameiginlegt að þaðan reru forfeður okkar í landinu til fiskjar. Eymundur Magnússon og vörurnar frá Vallanesi verða á sínum stað. Mynd / smh Hinn árlegi jólamatarmarkaður í Hörpu verður um næstu helgi, 15.–16. desember. Opið verður frá 11 til 17 báða daga. Jólamarkaðurinn hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum, enda skapast þar einstök stemning. Þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, því á markaðnum verða flestir af helstu smáframleiðendum íslenskra matvæla. Þar geta gestir keypt í jólamatinn, allt frá aðventunasli til eftirrétta, en einnig matarhandverk í jólapakkana. /smh Kombucha Iceland drykkir. Gerjað te sem inniheldur fjölbreytt úrval af heilsubætandi efnasamböndum. Drykkurinn er náttúrulega kolsýrður og er með bæði sætt og súrt bragð. Landssamband kúabænda hefur nú gefið út stefnumótun í nautgripa rækt til næstu tíu ára. Var ákveðið að skipta stefnumótunarvinnunni í tvennt, annars vegar mjólkur framleiðslu og hins vegar nautakjöts- framleiðslu. Vinnuhópar skiluðu af sér drögum til aðalfundar samtakanna sem haldinn var á Selfossi í apríl og voru drögin samþykkt þar athugasemdalaust. Í kjölfarið ákvað stjórn LK að kynna drögin á haustfundum samtakanna og gefa bændum kost á spurningum og tillögum að breytingum og nú hefur afraksturinn verið birtur á heimasíðu LK, naut.is. Bændur mjög samstíga „Vinnan gekk vel og ljóst að bændur eru mjög samstiga um hvert skuli stefna með greinina í stórum dráttum. Það er nokkuð mikið um nýjungar í stefnumótun nautakjötsframleiðslunnar og það er eðlilegt í ljósi þeirrar auknu áherslu sem við höfum verið að sjá á þá framleiðslu. Með tilkomu nýs kjötmats, sérstakra greiðslna í gegnum búvörusamninga og nýju erfðaefni af holdanautakyni, má segja að við séum að upplifa nýja dögun í íslenskri nautakjötsframleiðslu. Á sama tíma eru ákveðnar áskoranir sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að framleiðslukostnaði og samkeppni frá innfluttum matvælum en það er ljóst að við getum gert betur á mörgum sviðum í okkar framleiðslu,“ segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri LK. Horft til umhverfis- og neytendamála Umhverfismál vega sífellt þyngra í samfélagsumræðunni og eru bændur og landbúnaður þar síst undanskilinn. Í stefnumótununum er lögð áhersla á að íslensk nautgriparækt verði kolefnisjöfnuð á næstu 10 árum, dregið verði úr þörf á jarðefnaeldsneyti, þátttaka bænda í umhverfisvernd verði aukinn og áhersla verði lögð á notkun innlendra aðfanga, svo eitthvað sé nefnt. Eins hafa neytendamál verið bændum afar hugleikin, þá sérstaklega þegar kemur að upprunamerkingum matvæla, hvort sem er í matvöruverslunum, veitingastöðum eða mötuneytum. „Neytendur eiga alltaf að geta fengið upplýsingar um hvaðan matvælin þeirra koma. Það verður sífellt mikilvægara, sérstaklega með meiri vitund neytenda á umhverfisfótspori sem hlýst af flutningum um langan veg, sem og sýklalyfjanotkun í landbúnaði, en hvergi í Evrópu er notað eins lítið af sýklalyfjum í landbúnaði og á Íslandi og í Noregi,“ segir Margrét. Aukið virði nautgripaafurða Í stefnumótununum er horft til þess að auka virði nautgripaafurða eftir fremsta megni. Þar er meðal annars horft til vöruþróunar og bætts framleiðsluferlis nautakjöts til að tryggja að allur skrokkurinn, hvort sem er fínni vöðvar, hakkefni eða hliðarafurðir nýtist sem best skyldi. Einnig vilja samtökin sjá að regluverk og leyfisveitingar fyrir heimavinnslu verði gerð aðgengilegri. „Nú þegar stefnumótanirnar hafa verið samþykktar og gefnar opinberlega út verður hafist handa við að vinna að þeim góðu verkefnum sem þar eru lögð til. Einhver eru nú þegar hafin í góðu samstarfi við aðra aðila á borð við RML og Bændasamtökin. Þau eru mikil og metnaðarfull markmiðin sem sett eru þarna fram en ég hef fulla trú á því að með skipulagi og góðri samvinnu sjáum við greininni farnast vel í framtíðinni,“ segir Margrét að lokum. Landssamband kúabænda gefur út stefnumótun í nautgripa rækt: Íslensk nautgriparækt verði kolefnisjöfnuð á 10 árum – Virði nautgripaafurða verði aukið eftir fremsta megni Forstjóra Matís sagt upp störfum Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, hefur látið af störfum eftir átta ára starf. Þetta var tilkynnt á vef fyrirtækisins í síðustu viku með stuttri fréttatilkynningu frá stjórn. Samkvæmt heimildum Bændablaðsins var Sveini sagt upp störfum með tölvupósti og gert að hætta strax. Ástæðan er sögð trúnaðarbrestur á milli stjórnar og forstjóra sem megi rekja til lélegrar upplýsingagjafar. Sveinn hafnar því í pistli á Facebook-síðu sinni að upplýsingagjöf til stjórnar Matís hafi verið léleg af hans hálfu. Hann segir hins vegar að ákvörðunin sé tekin og skynsamlegast að horfa til framtíðar. Í tilkynningu frá stjórn, sem birt er á vef Matís, er Sveini þakkað framlag hans til félagsins. Oddur Már Gunnarsson er starfandi forstjóri en hann hefur unnið hjá Matís frá árinu 2008 sem forstöðumaður viðskiptaþróunar. Sjöfn Sigurgísladóttir, sem áður var forstjóri Matís, er núverandi stjórnarformaður. Með henni í stjórn eru Arnar Árnason, Drífa Kristín Sigurðardóttir, Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, Sigmundur Einar Ófeigsson, Sigrún Traustadóttir og Sindri Sigurðsson. Sveinn Margeirsson. Mynd / HKr. Margrét Gísladóttir, framkvæmda- stjóri Landssambands kúabænda. Mynd / HKr. Garnaveiki hefur greinst í sauðfé í Austfjarðahólfi – Ekki hefur verið staðfest garnaveiki í hólfinu í rúm 30 ár Garnaveiki hefur greinst í sauðfé á búinu Þrándarstöðum á Fljótsdalshéraði. Þrándarstaðir eru í Austfjarðahólfi, í hólfinu var garnaveiki á árum áður en ekki hefur verið staðfest garnaveiki í hólfinu í rúm 30 ár. Síðasta staðfesta tilvikið var á Ásgeirsstöðum, Fljótsdalshéraði árið 1986. Samkvæmt Matvælastofnun uppgötvaðist sjúkdómurinn þegar sjö vetra kind drapst skyndilega og bóndinn kallaði til dýralækni. Grunur um sjúkdóminn vaknaði og hafði dýralæknirinn samband við héraðsdýralækni Austurumdæmis. Tekin voru sýni og send til Tilraunastöðvarinnar á Keldum, þar sem sjúkdómurinn var staðfestur. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur sem leggst á öll jórturdýr; sauðfé, geitur, nautgripi og hreindýr. Orsökin er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium avium s.s. paratuberculosis). Hún veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saur og geta lifað mánuðum saman í umhverfinu, s.s. við gripahús og afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast úti um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni. Meðgöngutími í fé er 1–2 ár eða lengri. Hægt er að halda veikinni niðri með bólusetningu lamba á haustin og gefur ein bólusetning ævilangt ónæmi. Ekki er vitað hvernig sjúkdómurinn barst að Þrándar- stöðum en líkur eru á að hann hafi verið nokkur ár að búa um sig þar. Óhjákvæmilegt er að hefja bólusetningu á fé í varnarhólfinu. Unnið er að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um hve víðtæk bólusetningin þarf að vera. Mikilvægt er að bændur í Austfjarðahólfi láti Wija Ariyani héraðsdýralækni vita í síma 530 4800 ef þeir hafa fullorðnar kindur sem hafa verið að dragast upp undanfarin misseri. Matvælastofnun brýnir fyrir bændum í Austfjarðahólfi að auka smitvarnir og að flytja ekki fé á milli bæja, það á einnig við um hrúta. Auknar smitvarnir eru nauðsynlegar á meðan verið er að rannsaka útbreiðslu veikinnar í hólfinu og þar til fullnægjandi vörnum gegn veikinni hefur verið náð með bólusetningum. /VH Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur sem leggst á öll jórturdýr; sauðfé, geitur, nautgripi og hreindýr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.