Bændablaðið - 13.12.2018, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201820
Þeir eru orðnir harla fáir
jarðarbúarnir sem mæla gegn
því að draga þurfi stórlega úr
loftmengun, plastmengun og sóun
auðlinda af öllu tagi ef ekki eigi illa
að fara fyrir okkur. Spurningin er
hins vegar hvaða tölum sé hægt
að treysta í þessari umræðu og
hvernig staðið sé að því að ná
nauðsynlegum markmiðum.
Þar hlýtur að orka tvímælis hvort
rétt sé að beita suma þjóðfélagshópa
refsingum meðan þeir sem menga
mest og hafa mest pólitísk ítök
eru látnir í friði. Þar á meðal
eru stórframleiðendur á raforku,
skipaútgerðir og flugvélarekstur.
Samkvæmt opinberum tölum
koma um 4% allra kolefnismengunar
af mannavöldum frá umferðinni á
Íslandi, en en af samgöngum í heild
7–19%, allt eftir því hver reiknar. Á
heimsvísu eru allir samgönguþættir
og flutningar í heild taldir standa
fyrir um 12–25% af losun á CO2
ígildum.
Hér á landi er iðnaður og þar
með stóriðjan mun áhrifameiri
mengunarvaldur en umferðin. Sem
dæmi má nefna að fyrir hvert tonn
af áli sem framleitt er á Íslandi með
vistvænu rafmagni er brennt um
hálfu tonni af kolum í rafskautum
álveranna. Í kísilmálmverksmiðjum
á Grundartanga og á Bakka við
Húsavík er auk þess brennt miklu
magni af kolum, koksi og timbri. Um
þetta er samt vart talað á sama tíma
og öllu púðrinu er eytt í að agnúast út
í bíleigendur sem stjórnmálamönnum
þykir liggja vel við höggi.
15 stærstu skipin menga meira en
allur bílafloti heimsins
Stór flutninga- og farþegaskip brenna
gjarnan þungri lítt hreinsaðri olíu á
siglingu úti á rúmsjó. Viðurkennt
hefur verið af rekstraraðilum slíkra
skipa að einungis 15 stærstu skip
heimsins losa meira af vetnisoxíði
[nitrogen oxid] og brennisteinsoxíði
[sulfur oxide] út í andrúmsloftið
en allur bílafloti heimsins, sem
telur um 760 milljónir bíla. James
Corbett, prófessor og sérfræðingur
í stefnumörkun í skipaútgerð
við háskólann í Delaware, segir
stóru skipin því vera mikið
heilsufarsvandamál fyrir íbúa
strandhéraða.
Endurnýjun á fiskiskipum með
nýjum og stórbættum vélbúnaði
hefur líkt og endurnýjun bílaflotans
dregið mjög úr olíueyðslu og losun
CO2 á síðustu árum. Hins vegar hefur
flugumferð um íslenska lofthelgi
margfaldast á sama tíma sem og
umferð risastórra skemmtiferðaskipa
með tilheyrandi útblástursaukningu.
Enn sjást samt engin merki þess
að taka eigi á þeim málum og
væntanlega verður hert refsing
bíleigenda bara látin duga.
Raforkuframleiðsla stærsti
mengunarvaldurinn af
mannavöldum
Samkvæmt gögnum World
Resources Innstitue er raforku-
framleiðsla stærsti orsakavaldur
losunar CO2 í nær öllum löndum
heims. Ísland er þar ein af örfáum
undantekningum.
Á árinu 2017 jókst eftirspurn
eftir orku í heiminum um 2,1%
samkvæmt frétt Reuters sem vitnar
í tölur International Energy Agency
(IEA). Orkueftirspurnin í heiminum
2017 samsvaraði orkugildi 14.050
milljóna tonna af olíu. Meira en 70%
af aukinni orkueftirspurn var mætt
með olíu, kolum og gasi, en 30%
með endurnýjanlegum orkugjöfum.
Um 65% af raforku heimsins er
framleidd með jarðefnaeldsneyti
Á árinu 2017 jókst eftirspurn
eftir raforku í heiminum um
3,1% samkvæmt tölum IEA.
Þá voru framleiddar 25.570
Terawattstundir (TWst) af raforku
[25.570.000.000.000 kílówött]. Þar
af var 38% framleitt með kolum,
23% með gasi, 4% með olíu,
10% með kjarnorku og 25% með
endurnýjanlegum orkugjöfum. Það
þýðir að 65% af raforku heimsins
var á síðasta ári framleidd með
jarðefnaeldsneyti sem losar CO2 og
fleiri gastegundir út í andrúmsloftið.
Hafa ber í huga að hluti af grænu
raforkunni svokölluðu, eða sú sem
framleidd er með jarðhita, losar líka
frá sér CO2 auk brennisteinsvetnis.
Umræðan oft byggð á
alhæfingum og jafnvel röngum
upplýsingum
Það eru bæði gömul sannindi
og ný að alltaf eru einhverjir
stjórnmálamenn tilbúnir að slá
um sig með stóryrtum slagorðum
og upphrópunum sem byggja á
fullyrðingum sem síðan reynast
ekki alltaf standast. Þannig hefur
það líka verið á Íslandi. Nær alltaf
vísa menn í skýrslur og rannsóknir,
en því miður þá er æ oftar að koma
í ljós að fjölmargar slíkar skýrslur
og rannsóknir innihalda alhæfingar
sem standast ekki nánari athugun.
Fullyrðingar um
CO2 losun votlendis á Íslandi
standast ekki skoðun
Þannig er það t.d. varðandi
íslensku mýrarnar. Því hefur einnig
verið haldið fram í umræðum og
opinberum gögnum að 72% af losun
gróðurhúsalofttegunda á Íslandi
komi frá framræstu landi, eða
10,3 milljónir tonna. Það þýðir að
heildarlosun gróðurhúsalofttegunda
ætti þá að vera 13.184.000 tonn. Þetta
stemmir hvorki við tölur tveggja af
okkar færustu vísindamönnum á
þessu sviði, né við rannsóknir t.d.
í Ameríku og ekki heldur við tölur
Hagstofu og Umhverfisstofnunar
um heildarlosun CO2. Það er sagt
að heildarlosunin sé 11.402.000
tonn. Miðað við það væri losun
framræstra mýra 8,2 milljónir tonna
sem er samt langt frá niðurstöðum
sumra vísindamanna.
Tölur vísindanefndar um losun
mýra virðast stórlega ýktar
Árið 2013 var losun gróður-
húsalofttegunda úr framræstu
votlendi á Íslandi metin á 11,7
milljónir tonna CO2 ígilda. Þessi tala
byggði á viðmiðum vísindanefndar
loftslagssamningsins (IPCC) um
losun á flatareiningu. Í viðtali
við Bændablaðið í ágúst 2016
sagði fulltrúi Landgræðslunnar að
ávinningur af endurheim votlendis
væri áætlaður 24,5 tonn af CO2
ígildum á hektara á ári. Þá er miðað
við evrópska staðla. Því hefur einnig
verið haldið fram í umræðum um
endurheimt votlendis að búið sé að
þurrka um 4.200 km2 lands með
framræslu og greftri 32.000 km
af skurðum. Það ættu því að vera
um 420.000 hektarar. Það þýðir
samkvæmt þeirri fullyrðingu að
þetta meinta fyrrum votlendi ætti
að vera að losa 10,3 milljónir tonna
af koltvísýringsígildum (CO2).
Til að þessi fullyrðing standist
þarf hver skurður að vera að þurrka
að jafnaði 65 metra af votlendi út frá
sér beggja vegna og hver fermetri
mýrar að losa samsvarandi magn
og miðað er við opinberlega og eiga
væntanlega uppruna í mælingum á
meginlandi Evrópu.
Tveir íslenskir doktorar telja
tölurnar stórlega ofmetnar
Dr. Þorsteinn Guðmundsson,
prófessor í jarðvegsfræði við
Landbúnaðarháskóla Íslands, og
dr. Guðni Þorvaldsson, prófessor í
jarðrækt við LbhÍ, telja að endurheimt
votlendis í stórum stíl kunni að vera
stórlega ofmetna leið til að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda á
Íslandi.
Þeir félagar hafa ítrekað bent á
að efnasamsetning mýra á Íslandi sé
önnur en þeirra mýra á meginlandi
Evrópu sem losunartölur byggjast
á. Mýrar hér innihaldi mun meira af
steinefnum úr eldgosum og geti því
ekki innihaldið sama magn kolefnis
og haldið hefur verið fram.
Ekki hægt að yfirfæra erlenda
losunarstaðla á íslenskar mýrar
Nýlegar rannsóknir sem unnið hefur
verið að við Landbúnaðarháskóla
Íslands, styðja þetta. Í þættinum
Kveik sem Sjónvarpið sýndi
20. nóvember sl. var rætt við
doktorsnemann Susanne Claudia
Möckel sem einmitt er að rannsaka
íslensku mýrarnar með tilliti til
losunar CO2. Þar sagði hún að
líklega væri ekki hægt að yfirfæra
erlendar rannsóknir yfir á íslenskar
mýrar.
„Við höfum eldvirknina
hér og mjög tíð eldgos þannig
að mýrarnar hér á landi eru
steinefnaríkari en í öðrum löndum.
Þær fá mikið af vindbornum
efnum sökum gjóskufalls og
líka frá þessum stóru auðnum í
landinu og það hefur mikil áhrif á
kolefnisbindingu, niðurbrotsferli og
kolefnishringrásina í heild. Þannig
að ég held ekki að þessir staðlar séu
hentugir fyrir íslenskar aðstæður.“ Þá
sagði hún að menn vissu hreinlega
ekki hvað mýrarnar losuðu mikið,
en rannsóknir væru í gangi.
Ekki 4.200 ferkílómetrar
heldur líklega 1.600
Þá benda doktorarnir Þorsteinn og
Guðni á að algengt sé að 50 metrar séu
á milli framræsluskurða hérlendis og
áhrifasvæði þeirra sé því ekki meira
en 25 út frá skurðbarmi en ekki
65 metrar eins og fullyrðingarnar
byggja á. Þannig sé meint framræst
votlendi ekki 4.200 ferkílómetrar
heldur 38% af því, eða nálægt 1.600
ferkílómetrar. Auk þess má benda á
að stór hluti af skurðakerfinu er ekki
í gegnum mýrar, heldur oft í gegnum
malarkamba til að veita affallsvatni
áfram út í ár og flóa.
Misvísandi rannsóknir en á skjön
við íslenskar fullyrðingar
Annars eru tölur um losun mýrlendis
mjög mismunandi og samkvæmt
jarðvegsrannsókn U.S. Geological
Survey frá því sumarið 2008
getur það rokkað frá einu og upp
í 30 tonn á hektara. Þar segist
lífefnafræðingurinn Gail Chmura
hjá McGill háskólanum í Kanada
telja líklegt að norður-amerísku
saltvatnsmýrarnar séu að losa
sem nemur 2,1 tonni á hektara.
Samkvæmt rannsóknum Háskóla
Sameinuðu þjóðanna sem Science
Daily greindi frá 21. júlí 2008,
þá gætu uppþurrkuð fenjasvæði í
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Losun gróðurhúsalofttegunda í heiminum eykst stöðugt þrátt fyrir Parísarsamkomulag:
Fullyrðingar og pólitískur „popúlismi“
afvegaleiðir umhverfisumræðuna
– Oft byggt á gögnum sem standast ekki og þau samt notuð til að réttlæta skattlagningu og ýmsar aðrar aðgerðir stjórnvalda
Landbúnaður
4%
Iðnaður og
efnanotkun
12%
Fólksbílar
4%
Aðrar samgöngur
1%
Sjávarútvegur
3%
Annað
4%
Framræst land
72%
Sigríðar Á. Andersen alþingismanns í október 2015. Þessar tölur hafa verið lífseigar í umræðunni og hafa fjölmargir
doktorsnemann Susanne Claudia Möckel. Sagði hún að líklega væri ekki
Dr. Þorsteinn Guðmundsson. Dr. Guðni Þorvaldsson.