Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201824
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
Íslyft sækir í sig veðrið í þjónustu við landbúnaðinn:
Tóku við umboði fyrir John Deere 2017 og
eru líka komnir með Avant liðléttingana
Íslyft ehf. í Kópavogi tók
við umboði fyrir John Deere
dráttarvélar 2017 en þar er um að
ræða einn þekktasta framleiðanda
dráttarvéla í heiminum sem á að
baki um 180 ára sögu.
Íslyft var með stóran bás
á landbúnaðarsýningunni í
Laugardalshöll í október og
kynnti þar m.a. það nýjasta í
landbúnaðartækjunum frá John
Deere.
„Við áttum von á að þetta yrði
góð sýning, en hún var eiginlega
betri en við vonuðumst til,“ sagði
Pétur Svavarsson hjá Íslyft. Hann
sagði að svona landbúnaðarsýning
ætti hiklaust rétt á sér á þriggja ára
fresti.
Vel tekið í landbúnaðargeiranum
„Þó við séum með 50 ára gamalt
fyrirtæki, þá erum við nýir inni
í landbúnaðargeiranum. Það er
mjög góð tilfinning að koma inn
á þetta svið þar sem við erum
með úrvalsmerki. Þá höfum við
fengið mjög góðar viðtökur,
enda með mjög góðan grunn
í tækjaþjónustu.“
Með mikla
reynslu í lyfturum
Íslyft er einkum
þekkt fyrir góða
þjónustu við
s j á v a r ú t v e g s -
fyrirtæki og sölu
á lyfturum frá
Linde og Merlo
skotbómulyftara.
Fyrirtækið býður
líka upp á ódýrari
línu af stöflurum og
keyrslutjökkum. Segir Pétur a ð
þeir haldi sínu striki varðandi góða
þjónustu og það sama eigi við
varðandi dráttarvélarnar. Reyndar
hefur Íslyft líka verið að hasla sér
völl með rafknúna litla vinnubíla frá
Goupil. Þar nýtist þeim vel reynslan
af rafknúnum lyfturum.
Með John Deere og Avant
„Ég held að John Deere sé hæst
skrifaða dráttarvélamerkið í
heiminum svo við erum stolt að
vera komin með það merki. Svo
erum við líka komin með Avant
liðléttinga, en við tókum við því
umboði í byrjun október. Avant er
frumkvöðullinn í liðléttingunum og
eru mikið notaðir í landbúnaði. Þetta
umboð gerir okkur bara enn öflugri
á landbúnaðarsviðinu.“
John Deere er sannkallað
risafyrirtæki á heimsvísu
Bandaríska fyrirtækið John Deere
var stofnað árið 1837. Á síðasta
ári velti það 29.738 milljörðum
dollara en tekjur af starfseminni
voru 4.053 milljarðar dollara. Það
er númer 102 á lista Fortune yfir
500 stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna
2018 og er númer 394 á heimsvísu.
Þá eru starfsmenn samsteypunnar
nú nálægt 60.500.
Aðalverksmiðjurnar fyrir Evrópu
eru í Mannheim í Þýskalandi. Hjá
Íslyft er hægt að fá bæði nýjar
og notaðar John Deere vélar og
byggður hefur verður upp góður
varahlutalager. Þá var samið við
þjónustuaðila sem hafa mikla
reynslu í viðgerðum á John Deere
vélum hér á landi. Þess má geta
að Íslyft hefur það að markmiði
að handbækur og upplýsingar um
vélarnar séu á íslensku.
John Deere framleiðir
dráttarvélar í ölum stærðarflokkum.
Stærsta vélin er liðskipt
fjórhjóladrifin John Deere 9620RX.
Hún er með 620 hestafla Cummins
QSX 15 lítra mótor og er á beltum.
Ólíklegt hlýtur að teljast að slíkur
gripur sjáist á íslenskum túnum á
næstunni. /HKr.
Pétur Svavarsson hjá Íslyft við John Deere 6155R dráttarvél á landbúnaðarsýningunni
í Laugardalshöll í október. Mynd / HKr.
Fjölmenni var jafnan á bás Íslyft á landbúnaðarsýningunni og fönguðu þessi risavöxnu gljáfægðu grænu tæki líka
athygli smáfólksins. Mynd / HKr.
Öflugasta dráttarvélin frá John Deere er þessi 620 hestafla 9620RX beltavél.
Mynd / HKr.