Bændablaðið - 13.12.2018, Page 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201830
Þór hf. hefur flutt inn land-
búnaðartæki um áratuga skeið.
Það eru þó ekki bara dráttarvélar
og heyvinnutæki og annað sem því
tilheyrir, heldur líka ýmsar gerðir
af snjóblásurum til að takast á við
íslenskan vetur.
Sumir bændur hafa komið sér
upp mjög öflugum dráttarvélum í
því augnamiði að sinna verktöku
við heyvinnu og önnur verk fyrir
kollega sína. Vélarnar nýtast líka
til ýmissa annarra nota eins og í
vegagerð og snjómokstur. Þar koma
menn ekki að tómum kofunum hjá
Þór.
Nýr snjóblásari frá Dalen
Á landbúnaðarsýningunni sem
haldin var í Laugardalshöll í október
síðastliðnum sýndi Þór ýmsan
tækjabúnað á stóru útisvæði. Þar
á meðal vakti athygli blaðamanns
öflugur norskur snjóblásari
sem hægt er að tengja framan á
dráttarvél.
„Við erum að sýna hér Deutz
Fahr og Kubota dráttarvélar og
einnig kynna heyvinnuvélar sem
við verðum með á boðstólum á
næsta ári. Þá erum við að frumsýna
þennan nýja snjóblásara frá Dalen
sem og Schulte blásara sem við
höfum selt mikið af,“ sagði Einar
Oddsson, sölustjóri véladeildar
Þórs.
Eins og menn búist við
snjóþungum vetri
„Það er athyglisvert hvað menn
virðast búast við snjóþungum
vetri. Ég hef aldrei selt jafn marga
snjóblásara í september og október
og núna. Ég veit ekki hvort menn
eru svona vissir um að það muni
snjóa mikið, eða hvort menn eru
bara búnir að læra það af reynslunni
að það er ekki alltaf hægt að ganga
að snjóblásurum vísum á lager þegar
allt er komið á kaf,“ sagði
Einar.
Hönnun Dalen snjó-
blásarans er þannig að hann
nagar sig inn í snjóstálið með
tenntum snigli og ræður því
við harðari snjó en snjóblásarar
sem menn þekkja með tveim
spöðum. Vegna þeirra annmarka
sem spaðablásarar hafa þó þeir
geti verið mjög afkastamiklir, þá
er orðið algengara að hönnuðir nýti
snigla þar sem aðstæður eru mjög
erfiðar. Í afar breytilegu veðurfari
eins og algengt er á Íslandi henta
sniglablásararnir því mjög vel.
Gríðarlega öflugur
Einar segir að við aðstæður eins
og á höfuðborgarsvæðinu, þar
sem saltpækill gerir snjó fljótt
að hörðum klaka, þá geti Dalen
snigilblásari dugað vel til að
brjóta niður harðan snjó.
Snjóblásarinn sem Þórsmenn
kynntu á sýningunni heitir Dalen
2118 og er gríðarlega öflugur og
hægt er að nota hann við allt að
350 hestafla dráttarvélar. Hann er
1.830 kg að þyngd og með 270–280
sentímetra vinnslubreidd. Þá er tennti
brotsnigillinn 95 cm að þvermáli og
útblástursopið er 90 cm. Gírkassinn
vinnur á allt að 1.000 snúningum á
mínútu sem gefur blásaranum mikla
kastlengd samkvæmt upplýsingum á
vefsíðu Dalen í Noregi.
Fleiri gerðir
Schulte snjóblásararnir eru líka
afar vel þekkir hér á landi og fást í
mörgum útfærslum og stærðum. Þór
hefur selt slíka blásara um áratuga
skeið og segir Oddur Einarsson
framkvæmdastjóri að það megi
eiginlega segja að Schulte blásarar
séu orðnir hluti af hefðbundnum
húsbúnaði í sveitum á Íslandi. Slíkir
blásarar eru áfram á boðstólum hjá
Þór þó Dalen, sem hefur reyndar
líka verið hér á markaði í nokkur ár
sé kominn með þennan öfluga nýja
snjóblásara fram á sjónarsviðið.
/HKr.
ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR 2018
Þór býður bændum og verktökum ýmsar lausnir til að takast á við veturinn:
Metsala á snjóblásurum í haust og
greinilega búist við hörðum vetri
–Sölumenn Þórs frumsýndu nýjan og öflugan Dalen-snjóblásara með tenntri tromlu
Einar Oddsson, sölustjóri véladeildar Þórs, og Njáll Haukur Sigurðsson, sölumaður
landbúnaðarvéla á Akureyri. Mynd / HKr.
Mynd / Dalen
snjóblásara í áratugi og
smávélar eða liðléttinga.
Mynd / Schulte