Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201834
Sveitaball, það jafnast ekkert á
við sveitaball. Almennileg íslensk
sveitaböll eru á undanhaldi og
þar með talið hljómsveitirnar sem
þar héldu uppi stuðinu helgi eftir
helgi. Í Öxarfirði er þó ein slík en
það eru drengirnir í hljómsveitinni
Legó. Þeir hafa spilað saman
frá því upp úr aldamótum
og skemmt á þorrablótum,
brúðkaupum, ættarmótum og
öðrum viðburðum.
Það var létt yfir þeim félögum
þegar blaðamaður Bændablaðsins
hitti þá fyrir í félagsheimilinu
Þórsveri á Þórshöfn á haustdögum.
Þar var verið að stilla upp fyrir
dansleik um kvöldið, stilla
hljóðfæri, míkrófóna og hljóðkerfi.
Þessu fylgja ótal snúrur og dót, sem
allt þarf að vera á sínum stað en þeir
sjá sjálfir um hljóð og ljós.
Í dag skipa sveitina Tryggvi,
Hafsteinn, Sigurður, Jóhannes
(Jonni) og Friðrik. Hafsteinn og
Tryggvi hafa spilað saman frá því
um tvítugt þegar hljómsveitin varð
til en þeir búa báðir í Öxarfirði.
Þegar þeir byrjuðu árið 2001
voru Sigurður Tryggvason, faðir
Tryggva, og Valþór, frændi þeirra,
með í sveitinni og spilaði Siggi
Tryggva með þeim lengst af þótt
hann sé núna hættur að þenja
harmonikkuna með þeim á böllum.
Fyrsta „giggið“ þeirra saman
var fyrir þorrablót á Kópaskeri, að
sögn Tryggva var það eiginlega bara
þannig að sá gamli spilaði á nikkuna
lög sem hann kunni og þeir fylgdu
á eftir. En hvaðan skyldi nafnið
koma?
„Þegar við byrjuðum sem
hljómsveit þá var það eiginlega bara
svoleiðis að það var búið að ráða
okkur á ball og þurfti að auglýsa,
en við vorum ekki með neitt nafn.
Við vorum heima í stofu hjá mér og
á textavarpinu var frétt um Legó-
framleiðendur, það var nú ekki
flóknara en það.“ segir Hafsteinn
og Tryggvi bætir við að þeim hefði
líka fundist þetta vera smá tilvísun í
Egó, hljómsveit sem er Íslendingum
að góðu kunn.
Þeir segja að það sé kannski óhætt
að segja frá því núna en í upphafi var
Valþór of ungur til að mega vera á
böllunum þannig að þeir voru að
smygla honum inn, sem eftir á sé
frekar fyndið að hugsa til.
Laumufarþegi í
hljómsveitarkerrunni
Það er ákveðinn sjarmi yfir
sveitaböllunum en hvað með
svokallaðar grúppíur, skyldu þeir
hafa lent í vandræðum með þær?
„Nei … eða jú, þessi þýska sem
var svo hrifin af Jonna,“ segir einn
og allir skella upp úr, nema Jonni
sem segir þetta ekkert eiga erindi í
Bændablaðið. Smá eftirgrennslan
leiddi þó í ljós að eftir eitt spilerí
í Skagafirði var ein þýsk dama
svo ákveðin í að komast með
þeim að hún reyndi að fela sig í
hljómsveitarkerrunni.
Tryggvi sagði að Hafsteinn væri
samt mesti skandallinn hvað þetta
varðaði, hann átti að vera segullinn
en svo væri hann bara kominn með
bumbu, alveg ótækt. Hafsteinn
sagði það vera samantekin ráð hjá
konunni sinni, að fita hann svo
hann kæmi alltaf heim aftur. Já,
það er greinilega ekki leiðinlegt
hjá þessum drengjum þegar þeir
koma saman.
Breitt lagaval
Að spila fyrir breiðan aldurshóp
getur verið snúið. Jonni segir að
markmiðið sé að skemmta fólki frá
16–96 ára sem sé ákveðin kúnst, í
raun sé mun auðveldara að finna
lög sem tæma húsið heldur en þau
sem henta öllum. Það sé afar erfitt
að ætla að spila lagið sem allir vilji
heyra. Hafsteinn bætir við að þó séu
lög sem virki bara alltaf, eins og
Lóa litla á Brú, það sé eitthvað við
það lag sem fái alla út á gólfið. Þeir
segja að prógrammið sé ansi breitt
hjá þeim og þeir hafi aldrei ætlað
að vera neitt gömlu dansa-band
þótt þeir kunni þau lög alveg og
taki inn á milli.
Sum lög hafi þeir prófað áður
og hent út, sem núna ganga upp
eftir að Friðrik byrjaði með þeim
á gítar þannig að þetta er svolítið
rúllandi. Hljómsveitin spilar
nokkrum sinnum á ári, mest
að gera á þorrablótum en alltaf
eitthvað að sumri, brúðkaup,
afmæli eða ættarmót.
Tryggvi segir að þeir hafi
aldrei farið í að markaðssetja
sig heldur taki bara það sem
dettur inn, hann bætir sposkur
við að kannski verði brjáluð
eftirspurn núna eftir þetta
viðtal og þá sé auðvelt að finna
þá bara í símaskránni, þeir
eigi nóg af lausum helgum.
Þeir hafa þó spilað víða og segja
að oft sé skemmtilegast að spila
á litlum stöðum þar sem sé góð
aðstaða og persónuleg stemning.
Nefna þar Láruna á Seyðisfirði þar
sem þeir spiluðu í sumar. Eins sé
alltaf gaman að spila í Þórsveri á
Þórshöfn, enda hafa þeir ósjaldan
troðið upp þar. Þeir segja helsta
gallann hvað það sé langt á milli
þeirra, enda búa þeir ekki allir
í Öxarfirði. Þetta sé líka meira
hobbí, enda allir í annarri vinnu
og Hafsteinn líka í sauðfjárbúskap.
Besta tónlistarmyndband Íslands
Auk þess að spila á böllum hafa
þeir spilað undir leiksýningar hjá
barnaskólanum í Öxarfirði sem
þeir segja mjög gaman, þá nefna
þeir einnig sýningu sem sett var
LÍF& STARF
Strákarnir í Legó í góðum fíling.
Hér spilar Legó undir hjá Leikfélagi
Þórshafnar árið 2011 lagið Gaggó
vest en á sviðinu er það Kristín
Heimisdóttir sem syngur.
Hljómsveitin Legó, Hafsteinn Hjálmarsson, Tryggvi Sigurðsson, Sigurður Jóhannes Jónsson og Friðrik Jónsson.
Hljómsveitin Legó í Öxarfirði heldur uppi stuðinu: