Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 35
Við fjölskyldan á Stangarlæk 1
sendum hrossaræktendum og öðrum hugheilar
jóla- og nýárskveðjur um leið og við þökkum
fyrir viðburðaríkt ár.
Ragna, Kristín Lilja,
Sigurbjörn Leó og Birgir Leó.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 17. janúar
upp með Leikfélagi Þórshafnar
fyrir nokkrum árum þar sem þeir
spiluðu undir.
Nokkrum sinnum hafa aðrir
tónlistarmenn slæðst með þeim
fyrir tilviljun og ekki, s.s. Andrea
Gylfa, Stebbi Jak og Hera Björk.
Jonni segir að þeir hafi eitt sinn
verið að spila á Fjallakaffi í
Möðrudal, þar hafi Andrea Gylfa
verið, hann réttir henni hljóðnema
og hún fer að radda. Svipurinn á
Hafsteini hafi verið óborganlegur
þegar hann leit til hliðar og sá hver
var þar að syngja.
Hljómsveitarmeðlimir eiga sér
allir sterkar rætur í tónlist en eru
að mestu sjálfmenntaðir, Tryggvi
segist hafa farið í nám í klassískum
gítar og hann muni þann dag,
eintala, mjög vel. Það hafi nú verið
öll formlega menntunin. Mest spila
þeir eftir eyranu.
Það er ekki annað hægt en
spyrja þá úti tónlistamyndband
sem vakti mikla lukku á þorrablóti
á Kópaskeri fyrir nokkrum árum.
Það árið var eitthvað dauft yfir
skemmtanahöldum og drifu þeir sig
í að halda sjálfir þorrablót. Þá þarf
að sjálfsögu að hafa skemmtiatriði
en einnig var Pétur Jóhann grínisti
þar veislustjóri.
„Plottið í myndband inu var að
Miley Cyrus hefði stolið laginu
okkar og var spunnið út frá því.
Við vorum búnir að taka eitthvert
efni sjálfir og Ottó Gunnarsson
(kvikmyndagerðarmaður og
brottfluttur Kópaskersbúi) ætlaði
að klippa, hann ákvað svo að koma
bara sjálfur og taka efnið og úr varð
stórgott myndband, held þetta sé
bara besta tónlistarmyndband sem
hefur verið gert,“ segir Hafsteinn
og bætir við að hann hafi hreinlega
aldrei í lífinu hlegið svona mikið
eins og þessar vikur þar sem þetta
var í vinnslu.
Lagið sem um ræðir er „Wrecking
ball“ og í tónlistarmyndbandinu
er söngkonan lítið klædd og svo
nakin, að sveifla sér á járnkúlu.
Þetta víluðu þeir ekki fyrir sér,
– „þetta var bara ógleymanlegt,
þegar pabbi var í tökum þá var 15
stiga frost og kuldinn í hlöðunni
eftir því, hann sleikti sleggjuna og
fraus fastur,“ segir Tryggvi og hlær.
Hann segist aldrei hafa heyrt svona
hláturöskur eins og á þorrablótinu
þar sem þetta var sýnt og þegar
sá gamli sveiflaðist nakinn um á
kúlunni hafi Pétur Jóhann stunið
upp milli hláturrokanna; – „hvaða
maður er þetta eiginlega?“ Það er
óhætt að segja að myndbandið sé
gott skemmtiefni, en það má finna
á youtube og heitir Bobbingurinn.
Ýmis skrautleg atvik
Félagarnir gefa nú ekki mikið
uppi um stök atriði í tengslum við
sveitaböllin en segja að það hafi þó
vissulega ýmislegt gerst sem ekki
sé allt prenthæft. Einu sinni hafi
Siggi Tryggva þurft að ná einum
áköfum ballgesti niður af sviðinu
en sá hafi eiginlega bara fengið
sólafar í andlitið. Þá segja þeir að
þeir hafi orðið vitni að því þegar
bóndi einn hafi rotað vinnumann
sem lét heldur ófriðlega og lét
sér ekki segjast, bóndi hélt áfram
að skemmta
sér og náði
svo bara í
kappann að
balli loknu.
Eitt sinn
enduðu þeir
ball á Þórshöfn
á laginu Smells
like a teen
spirit og fengu
h á l f g e r ð a r
skammir fyrir,
hópslagsmál
brutust út þá og
var gantast með
það að þeir hefðu
betur tekið rólegt vangalag í lokin
svo ófriðar seggirnir hefðu fundið
frið í kvenmanns faðmi frekar en
standa í þessu veseni. Þá hafa þeir
lent í ýmsum vandræðum er varða
veður og færð, enda oft að spila á
þorranum.
Þeir félagarnir hafa aðeins verið
að semja tónlist sjálfir en segja
það ekkert sem þeir hafi spilað
opinberlega. Eftir spjallstund við
Bændablaðið var slegið í og dunaði
dansinn fram á nótt. Góður rómur
var gerður að meðal ballgesta
sem skemmtu sér prýðisvel við
undirleik Legó.
/Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
Skjáskot úr myndbandinu Bobbingurinn sem vakti mikla kátínu á porrablóti
á Kópaskeri.
Bústólpi ehf • fóður og áburður • Oddeyrartanga • 600 Akureyri
bustolpi@bustolpi.is • Sími 460 3350 • www.bustolpi.is
Okkar bestu óskir um
gleðileg jól og
farsælt komandi ár,
með þökk fyrir viðskiptin á árinu.
Gleðileg jól
Búnaðarstofa Matvælastofnunar þakkar framleiðendum í landbúnaði samskiptin
á árinu og óskar þeim gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári.