Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201838
gaman að mála það. Myndir / Úr einkasafni Sigríðar Huldar Ingvarsdóttur
„Íslenska sveitin hefur undanfarin
ár veitt mér mikinn innblástur í
listinni. Náttúran er engu lík,
íslenski hesturinn hefur ævinlega
verið mér ofarlega í huga en
nú í ár hef ég í æ meira mæli
unnið verk sem tengjast íslensku
sauðkindinni,“ segir Sigríður Huld
Ingvarsdóttir listamaður, sem býr
í Uppsala í Svíþjóð en ólst upp í
Hlíðskógum í Bárðardal. Hún
segist vera heppin að geta haft
listina að aðalstarfi, en meðal þess
sem hún leggur fyrir sig er að mála
myndir af dýrum fyrir fólk.
Foreldrar Sigríðar Huldar
ráku sauðfjárbú að Hlíðskógum í
Bárðardal, þau áttu einnig nokkra
hesta og örfáar kýr þegar hún var
mjög ung að árum.
„Ég er algjört náttúrubarn og
það má líka skilgreina mig sem
dýrasjúka, mér leið alltaf best
þegar ég var hlaupandi um berfætt
í sveitinni að bralla eitthvað með
hundinum eða á hestbaki og að
teikna. Það voru mínar bestu
stundir,“ segir hún. Og bætir við að
hún hafi frá unga aldri stefnt að því
að verða listamaður, bóndi eða starfa
við eitthvað sem tengist dýrum.
„Mamma er mjög listræn og
afasystir mín, Ragna Hermannsdóttir,
var listamaður sem ég leit upp til,“
segir Sigríður Huld.
Þokki átti erfitt uppdráttar
í bænum
Að loknu grunnskólanámi hóf
hún nám á listanámsbraut Verk-
menntaskólans á Akureyri. Umskipti
urðu í lífi fjölskyldunnar á þeim
tímapunkti, en foreldrar hennar seldu
jörð sína að Hlíðskógum og fluttu til
Akureyrar.
„Þar með fauk eiginlega
bóndadraumurinn út um gluggann,“
segir hún en mjög erfitt hafi verið
að flytja búferlum af æskuslóðum
og setjast að á mölinni þó vissulega
hafi munað um að geta áfram
búið í foreldrahúsum meðan á
framhaldsskólanámi stóð og fyrir
það sé hún þakklát. „Við tókum
nokkra hesta með okkur í bæinn og
það auðveldaði mér flutninginn,“
segir hún en í hópnum var hestur
hennar, Þokki.
„Hann átti frekar erfitt uppdráttar
í bænum, bar enga virðingu fyrir
girðingum, hliðum og lokuðum
hurðum þannig að lögregla þurfti á
stundum að hafa af honum afskipti.
Úr varð að betur færi á að flytja hann
aftur í Bárðardal og vinkona mín,
Anna Guðný Baldursdóttir, sem
nú er bóndi á Eyjardalsá, tók hann
í fóstur. Ég hef því tækifæri til að
heimsækja hann á sumrin og bregða
mér á hestbak.“
Fyrsta einkasýningin í gömlu
heimasveitinni
Eftir stúdentspróf frá VMA
stundaði Sigríður Huld nám við
Myndlistaskólann á Akureyri.
Sumarið eftir útskrift úr skólanum
bauðst hanni að hengja upp nokkur
verk í Kiðagili í Bárðardal þar sem
rekin er ferðaþjónusta.
„Það má eiginlega segja að ég
hafi haldið mína fyrstu einkasýningu
í gömlu sveitinni minni,“ segir hún
en sama sumar kynntist hún manni
sínum, Kára Sveinbjörnssyni,
sem var þá um haustið að flytja
til Svíþjóðar til að stunda þar
meistaranám við Uppsala-háskóla.
Sjálf vann hún í verslun á Akureyri
þann vetur og stundaði list sína
með til hliðar. Annað kom svo
ekki til greina en elta ástina út til
Svíþjóðar og sótti hún um nám við
The Swedish Academy of Realist
Art í Stokkhólmi.
„Þetta er einkaskóli, skólagjöldin
há, þannig að ég seldi nánast allan
fataskápinn minn og bætti við mig
vinnu,“ segir hún og var himinsæl
með að komast inn í skólann.
„Það var spennandi fyrir mig að
flytja til útlanda en jafnframt svolítið
stressandi líka. Kári var þegar
kominn út og ég hafði heimsótt hann
nokkrum sinnum, svo ég var ekki
alveg ein og ókunnug í nýju landi,“
segir Sigríður Huld sem kunni
strax vel við sig hjá frændum okkar
Svíum. Námið var eins og draumur
segir hún, en í skólanum var verið að
kenna tæknina á bak við það að mála
og teikna raunsætt, líkt og gömlu
meistararnir gerðu.
„Þetta er strangt nám og mikið
handverk, það var bannað að notast
við ljósmyndir, heldur átti að vinna
allt út frá raunveruleikanum, en
markmiðið var að kenna nemum að
mála hlutina eins og maður sér þá.“
Kenndi hér og þar í tvö ár
Fljótlega eftir útskrift úr skólanum
var starfsemi hans flutt til suðurhluta
Svíþjóðar, Simrishamn á Skáni.
Þannig háttaði til að einn nemandinn
hafði ekki tök á að flytja með, svo
sá hinn sami réð Sigríði Huld sem
sinn einkakennara. Næstu tvö ár eftir
brautskráningu sinnti hún kennslu
og fór á nánast hverjum degi á milli
Uppsala og Stokkhólms, sem er
um eins og hálfs tíma ferð en gat
einnig unnið að sínum eigin verkum
samhliða. Einnig fór hún suður á
Skán og kenndi við skólann sem og
Sigríður Huld Ingvarsdóttir ólst upp í Bárðardal og býr í Uppsala í Svíþjóð:
Íslenska sveitin veitir mér
innblástur í listsköpuninni
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
„Íslenska sveitin hefur undanfarin ár veitt mér mikinn innblástur í listinni.
Náttúran er engu lík, íslenski hesturinn hefur ævinlega verið mér ofarlega
í huga en nú í ár hef ég í æ meira mæli unnið verk sem tengjast íslensku
sauðkindinni,“ segir Sigríður Huld Ingvarsdóttir listamaður sem býr í Uppsala
í Svíþjóð en ólst upp í Hlíðskógum í Bárðardal.