Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201840
LÍF&STARF
Árleg hrútasýning fjárræktar-
félaganna í Lundarreykjadal,
Reykholtsdal, Hálsasveit og
Andakíl var haldin að Hesti í
Andakíl fimmtudagskvöldið
18. október síðastliðinn. Sýndir
voru 26 lambhrútar í flokkum
hyrndra, kollóttra og mislitra
og komu 8 veturgamlir hrútar
til dóms.
Dómarar kvöldsins voru þeir
Lárus Birgisson og Árni Bragason.
Sýningin tókst vel og var boðið upp
á kræsingar, kaffi og öl.
Besti hyrndi lambhrútur
Borgarfjarðardala er frá
Oddsstöðum
Flokkur hyrndra lambhrúta var afar
öflugur þetta haustið en eftir mikið
þukl og heilabrot dómaranna varð
niðurstaðan kunngjörð.
Í fyrsta sæti var Bjartssonur
nr. 6 undan Kveiksdóttur frá
Oddsstöðum í Lundarreykjadal,
úr ræktun Guðbjargar Ólafsdóttur
og Sigurðar Odds Ragnarssonar.
Hrúturinn hlaut 89,5 stig, þar af 19
fyrir læri.
Annað sætið kom í hlut
sonarsonar sæðingahrútsins
Guðna nr. 46 frá Kjalvararstöðum
í Reykholtsdal en hann hlaut einnig
89,5 stig og þar af 19,5 fyrir læri.
Í þriðja sæti var hrútur frá
Hægindi í Reykholtsdal nr. 227,
sonarsonur Svima, og hlaut hann
88 stig, þar af 19 í læri.
Þrír bestu kollóttu lambhrútarnir
eru allir frá Hægindi
Sigvaldi Jónsson, Björg María
Þórisdóttir og sonur þeirra, Ólafur
Auðunn Sigvaldason í Hægindi,
komu sáu og sigruðu í flokki kollóttra
lambhrúta og áttu þar þrjá efstu. Allir
hrútarnir eru synir sæðingahrúta.
Í fyrsta sæti var Kollssonur nr. 77
með 88 stig, þar af hlaut hann 9,5
fyrir bringu- og útlögur.
Í öðru sæti var Serkssonur nr. 90
en hann hlaut einnig 88 stig, þar af
18,5 fyrir læri.
Þriðja sætið kom svo í hlut hrúts
nr. 78 en hann hlaut 89 stig, þar af
9,5 fyrir malir og 18,5 fyrir læri.
Þess má geta að hrútar nr. 77 og 78
eru albræður undan Amelíu 16-647
sem er komin út af sæðingahrútnum
Sprota.
Baldur Árni Björnsson í Múlakoti
átti besta mislita lambhrútinn
Í keppni um bestu mislitu lambhrútana
hlaut Baldur Árni Björnsson í
Múlakoti í Lundarreykjadal fyrstu
verðlaun fyrir golsubotnóttan hrút
nr. 82 en hann hlaut 87 stig og þar
af 18,5 fyrir læri. Faðir hans er
sæðingahrúturinn Drangi en móðirin
er útaf sæðingahrútunum Kalda og
Þorsta.
Í öðru sæti var móbaugóttur
Bjartssonur nr. 5 frá Kjalvararstöðum
sem hlaut 87,5 stig, þar af 9,5 fyrir
bak og 19 í læri.
Þriðja sætið hlaut svartur
Tinnasonur nr. 93 frá Hægindi en
hann stigaðist uppá 87,5 stig þar af
9,5 fyrir bringu- og útlögur sem og
malir.
Besti veturgamli hrúturinn kom
frá Kjalvararstöðum
Í keppni um besta veturgamla
hrútinn hlaut Ármann Bjarnason
á Kjalvararstöðum fyrstu verðlaun
fyrir Burknasoninn Börk 17-022 en
móðurfaðir hans er sæðingahrúturinn
Saumur. Börkur hefur komið sterkur
út sem lambafaðir á Kjalvararstöðum
í haust þar sem niðurstöður fyrir
26 dilka gáfu að meðaltali 12,6 í
einkunn fyrir gerð, það verður því
gaman að fylgjast með framvindu
Barkar á komandi árum.
Annað sætið kom í hlut Trausts
17-788 frá Hesti sem er kominn út
af sæðingahrútunum Krafti, Hroka
og Bursta.
Í þriðja sæti var Bjarmi 17-112 frá
Hægindi en hann er undan Bjarti og
á ættir að rekja til sæðingahrútsins
Hriflons. /SHS
Hrútasýning Borgarfjarðardala 2018:
Besti hyrndi lambhrútur var frá Oddsstöðum og
allir þrír efstu kollóttu hrútarnir komu frá Hægindi
– Besti misliti lambhrúturinn kom frá Múlakoti og besti veturgamli hrúturinn kom frá Kjalvararstöðum
Myndir / Sigurborg Hanna