Bændablaðið - 13.12.2018, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201842
FÓLK&FYRIRTÆKI
Arnar Ólafsson er framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins South Door
sem rekur hótel- og veitingastaði á
Hellu og á Skógum. Hann segir að
smám saman sé verið að útvíkka
starfsemina en mikil áhersla sé
lögð á samfélagslega ábyrgð
starfseminnar og að hótelin og
starfsmenn þeirra borgi gjöld til
sveitarfélaganna sem þau starfa í.
Hótelin sem Arnar á og rekur
eru Árhús á Hellu, sem er með
35 smáhýsi og veitingasal, Hótel
Hella, sem er með 43 herbergi og
Hótel Skógar undir Eyjafjöllum sem
er með 12 herbergjum og góðum
veitingastað og býður auk þess
upp á sauna og heitan pott. Einnig
er rekin Veitingasala í Fossbúð í
Skógum. Hann segist hafa tekið
við rekstrinum á þessum stöðum
sem ekki hafi verið í sérlega góðri
stöðu, en verkefnið hafi snúist um að
yfirtaka reksturinn og koma honum
á betri veg.
Auk Arnars og konu hans,
Helgu Kristínu Böðvarsdóttur, sem
eru aðaleigendur, þá standa Einar
Sigurðsson og Ármann Einarsson
frá Þorlákshöfn líka á bak við
reksturinn.
Býst við samþjöppun á hótel- og
veitingamarkaðinum
„Þessi þrjú hótel mynda nú
samstæðu sem heitir South Door og
eru allar einingarnar reknar undir
þeim merkjum. Við höfum nú komist
úr því að vera með fyrirtæki í frekar
erfiðum rekstri í að vera með nokkuð
blómleg hótel.
Við sjáum fram á samþjöppun
á markaðinum og horfum því fram
á útvíkkun á okkar hugmynd. Það
er gríðarmikið af stökum einingum
í hótelrekstri í dag og má segja
að umhverfið sé svipað og var í
sjávarútveginum 1984. Af því að ég
er sjálfur alinn upp í Þorlákshöfn,
þá man ég vel eftir hvað þá voru
margir bátar í höfninni. Síðan hefur
orðið mikil þróun í þeirri grein og
hagræðing.“
Ekki gott að reka gistiþjónustu á
rómantískum forsendum
Arnar segir að viss rómantík hafi ríkt
í kringum sjávarútveginn fyrir 1984
og svipað hafi verið upp á teningnum
þegar margir sáu tækifæri í því að
fara í hótelrekstur fyrir nokkrum
árum. Fólk hafi séð fyrir sér að
eldri hjón sem jafnvel væru hætt á
almennum vinnumarkaði gætu sett
upp lítið sætt gistiheimili úti á landi
og haft í því notalegan rekstur. Þá án
þess að ætla sér kannski að græða á
því mikla peninga. Fólk áttaði sig
bara ekkert á hvað þetta útheimtir
mikla vinnu.
Arnar segist hafa það á
tilfinningunni að gistirekstur sem
hafinn var á rómantískum forsendum
sé miklu algengari en sá sem byggður
var á raunhæfum rekstraráætlunum.
Þess vegna sigli menn í strand og
því verði grisjun á þessum markaði.
Hann segist sjálfur ekki tilbúinn til
að taka að sér rekstur á mjög litlum
hótelum.
Lágmarksstærð 40 herbergi
„Ég held að lágmarkshótel sé 40
herbergi. Það er sú eining sem ætti
að geta staðið undir sér. Það þarf að
geta tekið hóp úr rúmlega einni stórri
rútu. Þá vill maður vera með nokkur
herbergi fyrir utan það forseld í það
sem maður kallar „self-drive“. Slíkt
væri mjög heppileg samsetning þar
sem ákveðinn kjarni gesta stendur
undir hluta af þjónustunni sem er
þá á öðrum álagstíma en gestirnir
úr rútunni.“
Samfélagsleg ábyrgð einn af
grunnþáttum í starfseminni
Arnar er menntaður fjármálafræðingur
og segir að samfélagsleg ábyrgð
sé mjög mikilvæg hvar sem menn
ákveða að stunda sinn rekstur.
Þátttaka í samfélaginu, sér í lagi á
litlum stöðum úti á landsbyggðinni,
sé mjög mikilvæg og bæði til góðs
fyrir viðkomandi sveitarfélag og
starfsemina sjálfa. Þetta hafi hann
m.a. lært í hagfræðihlutanum af sínu
námi í Bandaríkjunum.
Það er enginn hagvöxtur í Harlem
„Kennarinn okkar spurði okkur
nemendurna hvort við vissum af
hverju það hafi enginn hagvöxtur
verið í Harlem í yfir 100 ár. Það gat
enginn svarað þeirri spurningu í 100
manna bekk. Þetta er samt bæjarhluti
sem telur sjálfsagt um eina milljón
manna. Kennarinn útskýrði þetta fyrir
okkur og sagði ástæðuna vera að öll
viðskiptin sem fram færu í hverfinu
væri við félög sem væru í eigu manna
sem bjuggu ekki í Harlem og flyttu
því alla framlegðina af starfseminni
út í þessum bæjarhluta. Framlegðin
af viðskiptunum, sem er annað nafn
yfir hagvöxt, varð því eftir í öðrum
bæjarhlutum en Harlem.“
Áhersla á að nýta hráefni frá
bændum og útgerðarmönnum
í nærsamfélaginu
„Við leggjum áherslu á að nýta
hráefni úr héraði sem til fellur í
okkar nærsamfélagi. Það er kjöt og
grænmeti frá bændum og fiskur frá
útgerðarmönnum á svæðinu.
Það hefur því verið okkar
útgangspunktur í starfseminni að
horfa til þess af hverju það var
enginn hagvöxtur í Harlem og vinna
gegn því að sú saga endurspeglist á
okkar starfssvæði.“
Allir starfsmenn greiða til
sveitarfélaga á starfssvæði sínu
„Alveg frá því við stofnuðum
fyrirtækið South Door hefur það
verið okkar grundvallarsjónarmið
að halda hverri einustu krónu, sem
mögulegt er, úr rekstrinum inni á
viðkomandi svæði. Það er nefnilega
þannig að því oftar sem hver króna
skiptir um hendur inni á svæðinu
því mun meiri hagvöxt skapar hún
á staðnum.
Þess vegna höfum við skráð allt
starfsfólkið okkar með heimilisfesti á
Suðurlandi og helst í því sveitarfélagi
þar sem starfsemin er. Sjálfur bý
ég á Eyrarbakka, eins og ég hef
gert frá árinu 2001, og bókarinn er
með heimilisfesti á Selfossi. Aðrir
starfsmenn eru annaðhvort skráðir í
Rangárþingi ytra eða í Rangárþingi
eystra.
Þeir borga sitt útsvar til þessara
Arnar Ólafsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins South Door, fyrir framan
veitingastaðinn Árhús sem er samnýttur af gestum 35 smáhýsa og Hótels
Hellu.
Hluti af 35 smáhýsum Hótels Árhúsa á Hellu.
Hótel Skógar.
Fossbúð á Skógum.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Fyrirtækið South Door er með þrjú hótel í rekstri á Suðurlandi sem leggja metnað í nýtingu hráefnis úr sínu héraði:
Áhersla lögð á samfélagslega ábyrgð og að
skapa hagvöxt á starfssvæði hótelanna
– Framkvæmdastjórinn Arnar Ólafsson reiknar með samþjöppun á markaðinum á næstu misserum
Hótel Hella.