Bændablaðið - 13.12.2018, Blaðsíða 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 43
sveitarfélaga. Þetta er yfirleitt ungt og
barnlaust fólk. Það er því afskaplega
hagkvæmt fyrir sveitarfélögin þar
sem það þarf ekki aukaþjónustu eins
og leikskóla eða annað.
Það er hins vegar lítið talað um
hvað þetta fólk er okkur dýrmætt og
er að skapa okkur mikinn hagvöxt í
gegnum skatta og útsvar sem það
greiðir til samfélagsins. Það kaupir
hér líka mat og aðra þjónustu og
borgar af því staðgreiðsluskatta.“
Líka greitt í lífeyrissjóð og
verkalýðsfélag á svæðinu
„Við höfum tekið þetta dæmi aðeins
lengra. Allir okkar starfsmenn
borga í lífeyrissjóð Rangæinga,
sem er eini lífeyrissjóðurinn sem
er með starfsemi á okkar svæði.
Allir starfsmennirnir og ég þar
meðtalinn, borgum félagsgjöld til
Verkalýðsfélags Suðurlands sem er
með starfsemi á Hellu. Þetta eru um
500 þúsund krónur á mánuði.
Þótt sumir myndu segja að ég
sé með þessu að styrkja mótherja
minn í launabaráttunni, þá lít ég ekki
svo á. Þegar ég þarf að fá túlkun á
samningum eða einhverjum reglum,
þá fer ég bara upp í verkalýðsfélag.
Ég sest bara niður með
framkvæmdastjóra eða formanni
félagsins og fæ þær leiðbeiningar
sem ég þarf á að halda, eða aðstoð
ef ég þarf að leysa einhver mál
gagnvart starfsmönnum. Ég lít svo
á að báðir aðilar hafi hag af þessu
fyrirkomulagi.“
Keyptu Hótel Skóga 2011
„Við keyptum Hótel Skóga 2011 og
var þetta þá í raun bara sumarhótel
sem lokað var í um 8 mánuði yfir
vetrartímann. Fyrsta rekstrarárið var
2012 og þá byrjuðum við strax á að
hafa hótelið opið allan ársins hring.
Þá var líka komið að viðhaldi og
byrjuðum við á ýmsum lagfæringum.
Við leigðum til okkar Fossbúð sem
er eiginlega félagsheimilið í Skógum
sem var liður í að búa til úr þessu
heilsárs rekstrargrundvöll.“
Hótel Árhús keypt 2013
og Hótel Hella 2014
„Árið 2013 sannfærðumst við um
að kaupa líka Hótel Árhús á Hellu
sem var komið á mjög erfiðan stað
í rekstri. Þar hafði verið skipt um
eigendur 2012. Það var greinilegt
að menn höfðu farið þar dálítið
fram úr sér og var staðan orðin mjög
erfið þegar við komum að málum
og stefndi í gjaldþrot. Við vorum
þá fengnir að borðinu og ákváðum
að taka slaginn. Fórum við strax í
að taka til í rekstrinum og reyna að
auka tekjur.
Í kjölfarið á þessu, eða árið 2014,
kaupum við Hótel Hellu sem þá var
líka í erfiðum rekstri. Við tókum við
hótelinu í apríl sama ár og þá voru
litlar sem engar bókanir komnar
fyrir sumarið. Mig minnir að fyrsta
rekstrarárið hafi verið í kringum
16% nýting á hótelinu og tekjurnar
eftir árið ansi rýrar.“
Úr 16% í 65% nýtingu á
skömmum tíma
Arnar segir að 16% nýting sé alls
ekki ásættanleg í svona rekstri því
til að teljast gott þurfi nýtingin
að vera í kringum 65%. Hann
segir að slíkt nýtingarhlutfall geti
alveg gengið ef ekki er á bak við
gríðarmikil þjónusta. Í svona rekstri
snúist þetta allt um hvernig menn
skilgreini hlutina. Fjögurra og
fimm stjörnu hótel kalli t.d. á það
að barþjónn sé allaf tiltækur sem
þýði vaktavinnu. Morgunverður á
slíku hóteli kalli líka á vaktavinnu
sem og móttaka sem þurfi að vera
til taks allan sólarhringinn. Þá kalli
þrif á fjögurra stjörnu hóteli líka á
vaktavinnu og hraðari endurnýjun
á öllum rúmfötum og öðru. Þegar
hótel er skilgreint sem þriggja eða
jafnvel tveggja stjörnu, þá horfi
málið svolítið öðruvísi við.
Mikil samlegðaráhrif
– Eru mikil samlegðaráhrif á þjón-
ustunni í hótelrekstrinum á Hellu?
„Já, samnýtingin er gríðarmikil,
en þarna erum við með 200 rúm í
43 herbergjum á Hótel Hellu og í
35 bústöðum í Árhúsum. Bústaðirnir
eru með frá tveimur rúmum upp í
sex.
Á Hellu er sameiginlegt þvottahús
sem þvær 300 kg af þvotti á dag þegar
hótelin eru fullnýtt. Sama er með
þrifin. Þá erum við með sameiginlegt
„prep“, eða forvinnslueldhús.
Það er því mikil samnýting á
kokkum, matreiðslufólki og öðrum
starfsmönnum. Þá er sami maður
sem sér um sölu á gistingu til
ferðaskrifstofa og á netinu.“
Náðu stöðugleika og tvöfölduðu
veltu á fjórum árum
– Ykkur hefur tekist að koma
rekstrinum á réttan kjöl eða hvað?
„Já, við erum búnir að tvöfalda
okkur í veltu á fjórum árum.
Hagnaður fyrir afskriftir er kominn
yfir 100 milljónir króna. Þetta er
því farið að standa vel undir lánum,
nauðsynlegu viðhaldi og öðru.
Það er því kominn stöðugleiki í
reksturinn eins og maður vildi sjá
og síðan er bara að viðhalda þessum
stöðugleika. Að það sé góð nýting
á gistiaðstöðunni, meðalverð og
afkoma séu góð. Þegar því er náð
er hægt að fara að auka gæðin á
hótelunum, kannski úr tveim í þrjár
stjörnur þótt maður vilji samt ekki
fara með þau í fjórar stjörnur.
Ástæðan fyrir því er að ég tel
að markaðurinn sé ekki nógu stór
til að reka þessar einingar sem
fjögurra stjörnu hótel. Eins kallar
þetta markaðssvæði miklu fremur
á tveggja til þriggja stjörnu hótel.
Það eru önnur hótel að sinna hærri
klassa, eins og Hótel Rangá sem
er með 60 herbergi og Icelandair
Hótel Vík sem er mjög flott hótel á
landsbyggðinni.“
Ýmsir vaxtarmöguleikar
Arnar segir að ýmsir vaxtar-
möguleikar séu fyrir hendi í þeirra
starfsemi.
„Sem dæmi erum við komin
með talsverða starfsemi á
veitingastaðnum Fossbúð við
Skógafoss. Þar væri hægt að bæta
við með aukinni útsjónarsemi og
markaðssetningu. Í öðrum þáttum
er líka alltaf hægt að gera betur.“
Áhætta falin í háum gæðastaðli
og hárri verðlagningu
– Er kannski of mikið um að
hótel rekendur séu að horfa á
hágæðaþjónustu með tilheyrandi
hárri verðlagningu?
„Jú, ég tel svo vera. Ef menn
eru með háa verðlagningu þá þarf
að styðja það með mikilli og góðri
þjónustu. Það felst bara meiri áhætta
í rekstrinum eftir því sem verðlagið
hækkar.“
Segir Arnar að í þessu sé
síðan annar þáttur varðandi
verðlagninguna sem blasi ekki
beinlínis við. Ef rekstraraðilar eru
með hótel sem er í gæðaflokki yfir
þrem stjörnum og með veitingastað
í háum gæða- og verðflokki, þá
kallar það á að nýtingin sé góð. Ef
aðsóknin minnkar dugar ekki að
lækka verð til að bjarga rekstrinum.
Bendir Arnar á dæmi af hóteli á
Suðurlandi sem var í þessari stöðu.
Verð á gistingunni var lækkað, en
þá dó veitingastaðurinn. Lækkun á
gistiverði bjargaði því ekki málinu.
Ástæðan er að ferðafólk sem er að
kaupa ódýra gistingu er ekki að
kaupa mat á dýrum veitingastöðum.
Slíkir ferðamenn hegða sér öðruvísi
og bjarga sér meira sjálfir með mat
og drykk en þeir sem sækjast eftir
meiri þjónustu.
„Þessir gestir eru ekki tilbúnir að
kaupa margrétta máltíð með forrétt,
aðalrétt og eftirrétt og kokteil að
auki. Þeir eru fullkomlega sáttir við
hagstætt verð á gistingu og að fá
sér banana uppi á herbergi. Það er
bara hið besta mál, en menn verða
að hafa þetta í huga þegar þjónustan
er skipulögð í kringum gistinguna á
hótelum sem eru listaðar í verðflokki
með tvær eða þrjár stjörnur. Þangað
kemur allt annar kúnnahópur en á
fjögurra stjörnu hótelin. Það er því
ekki auðvelt að stíga skrefið til
baka þegar menn eru komnir upp í
fjögurra stjörnu rekstur. Við höfum
aldrei farið upp í þann klassa, þó
við séum t.d. með mjög gott hótel
í Skógum og á Hellu. Þar erum við
sátt við nýtinguna og samnýtum
veitingastaðinn í Árhúsum sem er
í 300 metra fjarlægð.“
Gengur mjög vel að fá
starfsmenn
– Hvernig gengur að fá starfsmenn
á hótelin?
„Það hefur gengið afskaplega vel
síðustu ár. Ég fór auðvitað í gegnum
ákveðna lærdómskúrfu í þessum
efnum þegar ég byrjaði. Í upphafi
tók ég við starfsmannahóp, en eftir
einhvern tíma var það fólk allt horfið
á braut. Nú erum við með rúmlega
30 starfsmenn og þeir eru um 40 yfir
háannatímann á sumrin.
Maður lærði að það þarf að byggja
upp ákveðinn kjarna starfsfólks sem
er allt árið um kring og síðan að ráða
aðra í kringum þann hóp. Við höfum
t.d. mannað eldhúsin hjá okkur með
kokkum frá Ungverjalandi. Þetta eru
allt vel menntaðir kokkar og færir á
sínu sviði og miklir fagmenn. Með
þessum mannskap hefur myndast
ákveðinn stöðugleiki, en við
þurftum þá líka að hugsa fyrir góðu
íbúðarhúsnæði fyrir þetta fólk.
Á Hótel Skógum keyptum við
íbúðareiningar úr gámum sem við
settum þar upp. Á Hellu keyptum
við íbúðarhús þar sem fólk leigir
bara herbergi og nýtir sameiginlega
aðstöðu. Örfáir kjósa hins vegar
frekar að vera einir út af fyrir sig og
búa í herbergjum á Hótel Hellu. Það
eru starfsmenn sem eru eldri en hinir
sem búa saman og vilja hafa það
rólegt eftir vinnu í stað þess að fá sér
kannski bjór með vinnufélögunum.“
Lítið rukkað fyrir fæði
og húsnæði
„Lykillinn að því að halda í
mannskapinn er því að bjóða upp á
húsnæði sem er gott og hentar ólíkum
einstaklingum. Einnig að rukka lága
leigu og taka lítið fyrir fæði. Í okkar
tilfelli eru starfmennirnir að jafnaði
að borga 38 þúsund krónur fyrir fæði
og húsnæði. Þau eru kannski að fá
400.000 útborguð laun og hafa því
tækifæri til að spara pening. Í staðinn
fáum við fyrsta flokks starfsfólk
sem við höldum ár eftir ár. Ein
manneskja sem er búin að vera hjá
okkur í fjögur ár er t.d. komin með
15 milljónir króna í sparnað.
Starfsmenn okkar fara svo heim
til sín í frí og segja þá auðvitað sína
sögu og þá er ekki verra fyrir okkur
að afspurnin sé góð.“
Miklir kostir að vera á
landsbyggðinni
Arnar segir að það sé mikill kostur
falinn í því að reka svona starfsemi
úti á landi, líka fyrir starfsmennina.
Það er færra sem glepur og því
auðveldara að komast af og
mögulega safna pening. Sumir hafi
þó kosið að yfirgefa þau og halda á
vit ævintýranna í Reykjavík. Hann
hafi þá reynt að aðstoða þá með
vinnu í gegnum kunningja sína í
veitingageiranum í höfuðborginni.
Því miður hafi það ekki alltaf gengið
upp, kostnaðurinn sé allur mun meiri
og menn hafi stundum freistast til
að lifa hátt í borginni. Því hafi þeir
svo oftar en ekki farið peningalausir
heim til sín aftur eftir tveggja til
fjögurra ára vinnu.
„Það er annar taktur úti á landi og
hingað kemur starfsfólk sem hugsar
oft öðruvísi en það sem sækist eftir
að vera á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Arnar Freyr Ólafsson.
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Vogue
bíður uppá alhl iðalausn fyr i r
hótelherbergið eða gist iheimi l ið.
fyr ir heimil ið