Bændablaðið - 13.12.2018, Qupperneq 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 2018 45
yfirdýralækni um 2006 hefur
þetta starf þ.e.; öflun upplýsinga,
staðsetning, merking og skráning
að mestu verið sjálfboðavinna
mín, en kostnaður sem undirritaður
hefur greitt úr eigin vasa vegna
þessa verks er kominn í 950.000. Í
þeirri upphæð eru engin vinnulaun,
enda hafði ég ætlað mér að láta
eftirlaunin mín duga til þess.
Í fyrravor var ég orðinn
vondaufur um að geta lokið þessu
verkefni, einkum vegna daufra
undirtekta og æpandi þagnar
stjórnvalda við beiðni minni um
aðstoð. Þá gekkst Guðni Ágústsson,
fyrrum landbúnaðarráðherra, fyrir
því að útvega bíl og eldsneyti
svo að fara mætti á milli
miltisbrunastaðanna til að merkja
og safna upplýsingum. Guðni er sá
sem mestan skilning hefur á þessu
verkefni mínu og hve nauðsynlegt
það er. Heiður og þökk sé honum
fyrir það. Svo fékk ég Ólöfu konu
mína til að vinna með mér við
merkingarnar, en það var og er
ómetanlegt.
Ýmsir fóru að styrkja þetta
verkefni þegar þeir fréttu af því
og fjölmargir hafa lýst ánægju
sinni. Hjartans þökk. Það hjálpaði
okkur Ólöfu af stað. Bílaumboðið
BL lagði til fjórhjóladrifinn bíl
og N 1 lagði til eldsneyti. Baldur
Baldursson, BB-skilti ehf., gekk
fram af drengskap og krafti við
að koma þessu verkefni af stað og
fengu ýmsa góða menn til að styðja
það t.d: Micro ryðfrí sérsmíði,
Wurth, Verkfæralagerinn, Arkir ehf.
o.fl. og Björn Jenson rennismiður
hefur lánað rafmagnsborvél og
draghnoðatöng. Mjólkursamsalan,
Bændasamtökin, Sláturfélag
Suðurlands og Kaupfélag
Skagfirðinga hafa styrkt þetta
verkefni. Hjartans þakkir til þessara
aðila allra.“
Hlutverk annarra að taka við
ábyrgðinni
„Ég geri mér ljóst, að ég mun ekki
geta tekið þetta verkefni með mér
yfir í aðra heima.
Aðrir verða að taka við
ábyrgðinni. Ég hef nú rætt við
Matvælastofnun. Hún tekur því vel
að taka við starfi mínu og eftirliti
og gera tillögur um reglugerð,
sem tryggi öryggi merkinganna
og endurnýjun merkja, sem kunna
að falla út af eða týnast, en sem
betur fer virðist merkingarlag okkar
traust og endingargott.“
Merki troðin í svaðið af
hrossum
„Hrossum verður þó að halda frá
slíkum merkjum. Slíkt eftirlit og
ábyrgð verður í fyrstu lotu að falla
á ábúendur og eigendur jarða, þar
sem grafirnar eru og hætta fyrir
umhverfið. Því miður hafa ekki allir
þessir aðilar áttað sig á nauðsyn
þess og sum merki hafa týnst eða
verið troðin í svað af hrossum,“
segir Sigurður. /SS/HKr.
hafa af miltisbrandi. Hafa þau gert þetta að frumkvæði Sigurðar sem telur sér skylt að koma á framfæri allri vitneskju sem hann hefur um þessa staði til
för með sér. Mynd / HKr.
sýkingar í mönnum.
Miltisbrandur er sjúkdómur sem sýkill að
nafni Bacillus anthracis veldur. Það eru einkum
grasbítandi dýr sem taka þennan sjúkdóm en menn
geta þó af og til sýkst af honum. Sjúkdómar sem
finnast í dýrum en geta jafnframt lagst á menn eru
nefndir súnur (zoonosis).
Sýkillinn getur myndað dvalagró eða spora.
Sporarnir geta lifað í hundruð ára í rökum og súrum
jarðvegi og segir Sigurður Sigurðarson dæmi um allt
að 500 ár. Á yfirborði endist miltisbrandur hins vegar
ekki lengi m.a. vegna áhrifa sólarljóss og súrefnis.
Af þessum ástæðum getur miltisbrandur verið
alvarlegt vandamál í búfjárrækt. Stærð sporanna,
sem eru 2–6 míkron (míkrómetrar, milljónustu partar
úr metra) í þvermáli, gerir þá kjörna til að setjast á
slímhúð í öndunarvegum manna og dýra. Sporarnir
loða hins vegar við jarðveginn en það dregur úr líkum
á því að menn smitist með beinum hætti frá jarðvegi.
Þegar sporar komast hins vegar í hýsil þar sem skilyrði
eru hagstæð breytast þeir í það form sem sýkillinn
hefur þegar hann er að vaxa. Sýkillinn ber með sér
eiturefni eða toxín sem er afar skaðlegt og veldur drepi.
Einkenni
Einkenni miltisbrands ráðast að nokkru af því hvernig
smitið berst. Algengasta smitleið sýkilsins til manna
er gegnum húð sem er rofin. Þeir sem meðhöndla
sýkt dýr eða afurðir sýktra dýra eru í mestri hættu.
Sýkillinn veldur kýlum sem síðar rofna og eru þá með
svörtum sárbotni vegna dreps. Húðsýking er vægasta
mynd sýkingarinnar og leiðir til dauða í 20% tilfella ef
hún er ekki meðhöndluð. Meðgöngutími húðsýkingar
er 3–5 dagar.
Neysla mengaðrar fæðu getur leitt til sýkingar
í meltingarfærum eða hálsi. Einkenni í byrjun eru
almenns eðlis en geta síðan þróast yfir í alvarleg
einkenni frá meltingarfærum eða hálsi með fylgjandi
blóðþrýstingsfalli og dauða. Í mönnum kemur sýkingin
oftast eftir neyslu kjöts af sýktu dýri. Meðgöngutími
sýkingar er 3–7 dagar.
Loks geta sporar sýkilsins borist í öndunarveg
og þaðan komist í eitilvef og valdið þar sýkingu,
drepi og blóðsýkingu. Þetta er sú smitleið sem
helst er notuð til að dreifa miltisbrandi í hernaði og
hryðjuverkastarfsemi. Við náttúrulegt öndunarfærasmit
hafa starfsmenn í ullariðnaði reynst í mestri áhættu.
Fyrstu einkenni lungnasmits eru lík inflúensu
með hita, vöðvaverk, höfuðverk, þurrum hósta og
smávægilegum óþægindum fyrir brjósti sem vara í
örfáa daga. Næstu 1–3 daga eftir upphafseinkenni
líður sjúklingi betur en versnar svo skyndilega
með háum hita, andnauð og losti. Oft má sjá bjúg á
brjóstkassanum og geta sjúklingar fengið blæðandi
heilahimnubólgu. Meðgöngutími frá lungnasmiti þar
til einkenni gera vart við sig er oftast 1–6 dagar en
getur verið lengri, allt að 43 dagar.
Heimildir:
Vísindavefurinn – Sigurður Sigurðarson
og embætti landlæknis
Gró miltisbrands geta lifað í jarðvegi í hundruð ára
Hafðu samband við sölumann í síma 590 5116 eða sendu línu á iab@klettur.is og kynntu þér þína möguleika.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 / 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
Nú bjóðum við MultiOne 6.3 SD vélar á enn betra verði en áður og
með fleiri aukahluti innifalda. Um er að ræða frábærar fjölnotavélar
með 1200 kg lyftigetu.
Á MultiOne 6.3 SD situr stjórnandi í aftari hluta þessara lipru og
sveigjanlegu véla. Vélarnar afhendast með skóflu, aukaballest
að aftan og taðgreip.
Ný sending af MultiOne
6.3 SD fjölnotavélum
Oft veltir lítil vél þungu hlassi