Bændablaðið - 13.12.2018, Side 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201846
HROSS&HESTAMENNSKA
Hestarnir Lýsingur og Alur hafa mikla sérstöðu:
Einstakt litaafbrigði alhvítra hesta komið
fram í íslenska hrossastofninum
– Ekki hafa áður verið svona hestar í íslenska hrossastofninum sem hafa komist á skrár
Á haustráðstefnu Fagráðs í fyrra
gerði annar höfundur þessarar
greinar stuttlega að umræðuefni
samsett litmynstur í hrossum.
Þetta beindist einkum að
samtvinnun litförótts og arfhreins
slettuskjótts. Þannig hross eru
afar fátíð og þau tvö hross sem
upp hafa komið á síðustu árum
voru seld úr landi fljótlega eftir
fæðingu.
Þannig uppákomur sýna okkur að
erlendis er vakað yfir sérstæðum og
fágætum litum og litasamsetningum
í hrossastofninum hér heima. Þeir
gripir sem áhuga vekja meðal
litaáhugafólks eru hremmdir, nánast
án þess við tökum eftir því hér heima.
Þannig var til dæmis áhugi á Ellerti
frá Baldurshaga strax á folaldsári
hans. Sem betur fer sáu eigendur
hans við áhuganum og skynjuðu
sérstöðu hans og ljáðu ekki máls á
sölu. Nú þarf að vinna enn frekar
úr því máli.
Alhvít hross
Það sem hér verður hins vegar gert
að umræðuefni eru alhvít hross,
einstaklingar sem eru fæddir alhvítir.
Núna eru til tveir ógeltir ungir
folar þannig fæddir, alhvítir
glaseygir. Þeir eru þó ekki fölir á
lit, albínóar eða hvítingjar, þeir bera
ekki leirlitargen, eins og föl hross
gera sem eru rjómagul fremur en
hvít. Þeir Lýsingur frá Reykjavík,
eign Jens Péturs Högnasonar,
og Alur frá Ártúnum, eigna Páls
Imsland, eru báðir fæddir alhvítir
og hafa ekki breyst að þessu leyti
síðan þeir fæddust. Alur er á annan
vetur en Lýsingur er á fjórða vetur
og hefur eignast folöld.
Ættirnar að þessum folum gefa
til kynna hvernig litaerfðum þeirra
er háttað. Í báðum tilvikum benda
ættirnar til þess að þessir folar séu
bæði skjóttir á hefðbundinn hátt og
hjálmskjóttir og verður það betur
skýrt hér á eftir.
Skjóttu mynstrin
En nú þegar skjóttu mynstrin í
íslenska hrossastofninum eru orðin
þrjú, er nauðsynlegt að greina skýrt
á milli þeirra. Hér verða helstu
einkenni mynstranna þriggja rakin
stuttlega.
Hefðbundið skjótt
Fyrst ber að telja hefðbundið skjótt,
mynstur sem er mjög fjölbreytilegt.
Það erfist með ríkjandi erfðum,
þannig að skjótt hross á ætíð að
minnsta kosti annað foreldrið skjótt.
Lágmarkshvít hross eru gjarnan
sokkótt og kannski með örlítinn hvítan
flekk einhvers staðar á skrokknum. Á
hinum enda skjótta rófsins eru svo
höttótt hross, sem eru alhvít nema að
hausinn er dökkur. Algengast er þó að
skjótt hross séu einhvers staðar milli
þessara öfga, séu til dæmis toppótt,
vængskjótt, kápótt eða kúfótt og þar
fram eftir götunum. Hvítu flekkina er
oftast að finna milli höfuðs og tagls,
auk þess sem skjótt hross eru mjög
gjarnan sokkótt.
Hross sem eru arfhrein um
hefðbundið skjótt mynstur
líta iðulega út mjög svipað
arfblendnum skjóttum hrossum,
en þau hafa þó sterkari tilhneigingu
til að sýna syrjur. Syrjur eru litlir
óreglulegir litblettir frekar en
flekkir sem koma fyrir inni á
hvítum svæðum. Syrjur eru þó
ekki bundnar við arfhreint skjótt,
og geta komið fyrir í hvaða hvítum
flekk sem er.
Slettuskjótt eða hjálmskjótt
Slettuskjótt, eða hjálmskjótt er
annað mynstur sem stjórnast af
öðrum erfðum en hefðbundið
skjótt. Birtingarmynd slettuskjótta
mynstursins er ólík hjá arfblendnu
og arfhreinu slettuskjóttu.
Hross sem eru arfhrein
um slettuskjóttar erfðir verða
hjálmskjótt. Hausinn er hvítur
framan í, allt frá því að vera
breiðblesóttur í að vera hjálmóttur,
hvítt undir kverk og upp fyrir augu.
Augnliturinn er einnig einkennandi,
lithimnan er ísblá þannig að hrossið
er ýmist hringeygt eða glaseygt.
Fætur eru sömuleiðis hvítir, gjarnan
alla leið upp undir kviðinn sem
einnig er oft hvítur. Hvíti liturinn
getur teygt sig upp síðurnar og
jafnvel í stöku tilvikum alla leið yfir
bakið. Það er því yfirleitt hálsinn,
makkinn og bakið, lendin og taglið
og mismikill hluti síðanna sem er
dökkt.
Hross sem eru arfblendin um
slettuskjótt eru einhvers staðar á
milli þess að vera hjálmótt og einlit.
Einkennin eru margvísleg, en birtast
fyrst og fremst í hvítu hausmynstri,
hvítu á fótum og ísbláum lit í
augum. Hausmynstrin geta verið
glámblesa, breiðblesa, hamarblesa,
skakkblesa, þráðarblesa, tvístjarna,
stórstjarna, jafnvel smástjarna og
þar fram eftir götunum. Þau geta
jafnvel verið án hvíts hausmynsturs.
Stundum eru fætur allir dökkir, en
þeir geta einnig verið með hvítu,
allt frá hvítum flekk í hófbotni eða
undir hófskeggi og upp í hásokka, á
einum fæti eða fleirum. Arfblendin
slettuskjótt hross geta haft aldökk
augu, en vagl í auga, hringur eða
ægishjálmur (hvít augnhvíta en ekki
brúnleit) eða glasaugu eru algeng.
Ýruskjótt
Nýjasta skjótta mynstrið í
hrossastofninum hér á Íslandi,
það sem upp kom með Ellerti frá
Baldurshaga 2013, hefur verið
nefnt ýruskjótt. Enn sem komið er
eru ýruskjóttu einstaklingarnir það
fáir að við vitum lítið um hverjir
mynsturmöguleikarnir eru á heildina
litið, en ef við tökum mið af þeim
fimm ýruskjóttu einstaklingum
sem til eru í dag lýsir mynstrið sér
í háum hvítum sokkum, breiðri
blesu, vagli eða hring í augum og
ýrðum lit um skrokkinn, þar sem
blandast saman hár af dökkum lit
og hvítum. Ýringin er sterkari undir
kviðinn, en yfirlínan dekkri. Hrossið
er því í heildina dekkra ásýndum
ofanvert en neðanvert. Eftir á að
koma í ljós hvaða möguleika þetta
nýja mynstur hefur fram að bjóða
eftir því sem einstaklingunum sem
það bera fjölgar.
Litaþróun alhvítra hrossa
Eins og að ofan segir benda ættir
alhvítu folanna Als og Lýsings til
Alhvíti hesturinn Alur með móður sinni Kolku frá Ártúnum 2017. Kolka er fædd 2012. Hún er ljósmóálótt, vindótt
og blesótt. Myndir / Páll Imsland
Lýsingur með móður sinni, Draumadís frá Melum, sem fædd er 1998 sem er dökkjörp, glámblesótt, leistótt og
hringeyg. Myndir / Páll Imsland
Hinn alhvíti og glaseygi Lýsingur
2015. Nú er hann kominn á fjórða
vetur og hefur eignast mörg folöld.
Alur veturgamall í rigningunni sumarið 2018.
Faðir Lýsings, Lykill frá Skjólbrekku,
er rauðskjóttur og hringeygur.
Faðir Als, Óður frá Ártúnum 2018.