Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 46

Bændablaðið - 13.12.2018, Síða 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 13. desember 201846 HROSS&HESTAMENNSKA Hestarnir Lýsingur og Alur hafa mikla sérstöðu: Einstakt litaafbrigði alhvítra hesta komið fram í íslenska hrossastofninum – Ekki hafa áður verið svona hestar í íslenska hrossastofninum sem hafa komist á skrár Á haustráðstefnu Fagráðs í fyrra gerði annar höfundur þessarar greinar stuttlega að umræðuefni samsett litmynstur í hrossum. Þetta beindist einkum að samtvinnun litförótts og arfhreins slettuskjótts. Þannig hross eru afar fátíð og þau tvö hross sem upp hafa komið á síðustu árum voru seld úr landi fljótlega eftir fæðingu. Þannig uppákomur sýna okkur að erlendis er vakað yfir sérstæðum og fágætum litum og litasamsetningum í hrossastofninum hér heima. Þeir gripir sem áhuga vekja meðal litaáhugafólks eru hremmdir, nánast án þess við tökum eftir því hér heima. Þannig var til dæmis áhugi á Ellerti frá Baldurshaga strax á folaldsári hans. Sem betur fer sáu eigendur hans við áhuganum og skynjuðu sérstöðu hans og ljáðu ekki máls á sölu. Nú þarf að vinna enn frekar úr því máli. Alhvít hross Það sem hér verður hins vegar gert að umræðuefni eru alhvít hross, einstaklingar sem eru fæddir alhvítir. Núna eru til tveir ógeltir ungir folar þannig fæddir, alhvítir glaseygir. Þeir eru þó ekki fölir á lit, albínóar eða hvítingjar, þeir bera ekki leirlitargen, eins og föl hross gera sem eru rjómagul fremur en hvít. Þeir Lýsingur frá Reykjavík, eign Jens Péturs Högnasonar, og Alur frá Ártúnum, eigna Páls Imsland, eru báðir fæddir alhvítir og hafa ekki breyst að þessu leyti síðan þeir fæddust. Alur er á annan vetur en Lýsingur er á fjórða vetur og hefur eignast folöld. Ættirnar að þessum folum gefa til kynna hvernig litaerfðum þeirra er háttað. Í báðum tilvikum benda ættirnar til þess að þessir folar séu bæði skjóttir á hefðbundinn hátt og hjálmskjóttir og verður það betur skýrt hér á eftir. Skjóttu mynstrin En nú þegar skjóttu mynstrin í íslenska hrossastofninum eru orðin þrjú, er nauðsynlegt að greina skýrt á milli þeirra. Hér verða helstu einkenni mynstranna þriggja rakin stuttlega. Hefðbundið skjótt Fyrst ber að telja hefðbundið skjótt, mynstur sem er mjög fjölbreytilegt. Það erfist með ríkjandi erfðum, þannig að skjótt hross á ætíð að minnsta kosti annað foreldrið skjótt. Lágmarkshvít hross eru gjarnan sokkótt og kannski með örlítinn hvítan flekk einhvers staðar á skrokknum. Á hinum enda skjótta rófsins eru svo höttótt hross, sem eru alhvít nema að hausinn er dökkur. Algengast er þó að skjótt hross séu einhvers staðar milli þessara öfga, séu til dæmis toppótt, vængskjótt, kápótt eða kúfótt og þar fram eftir götunum. Hvítu flekkina er oftast að finna milli höfuðs og tagls, auk þess sem skjótt hross eru mjög gjarnan sokkótt. Hross sem eru arfhrein um hefðbundið skjótt mynstur líta iðulega út mjög svipað arfblendnum skjóttum hrossum, en þau hafa þó sterkari tilhneigingu til að sýna syrjur. Syrjur eru litlir óreglulegir litblettir frekar en flekkir sem koma fyrir inni á hvítum svæðum. Syrjur eru þó ekki bundnar við arfhreint skjótt, og geta komið fyrir í hvaða hvítum flekk sem er. Slettuskjótt eða hjálmskjótt Slettuskjótt, eða hjálmskjótt er annað mynstur sem stjórnast af öðrum erfðum en hefðbundið skjótt. Birtingarmynd slettuskjótta mynstursins er ólík hjá arfblendnu og arfhreinu slettuskjóttu. Hross sem eru arfhrein um slettuskjóttar erfðir verða hjálmskjótt. Hausinn er hvítur framan í, allt frá því að vera breiðblesóttur í að vera hjálmóttur, hvítt undir kverk og upp fyrir augu. Augnliturinn er einnig einkennandi, lithimnan er ísblá þannig að hrossið er ýmist hringeygt eða glaseygt. Fætur eru sömuleiðis hvítir, gjarnan alla leið upp undir kviðinn sem einnig er oft hvítur. Hvíti liturinn getur teygt sig upp síðurnar og jafnvel í stöku tilvikum alla leið yfir bakið. Það er því yfirleitt hálsinn, makkinn og bakið, lendin og taglið og mismikill hluti síðanna sem er dökkt. Hross sem eru arfblendin um slettuskjótt eru einhvers staðar á milli þess að vera hjálmótt og einlit. Einkennin eru margvísleg, en birtast fyrst og fremst í hvítu hausmynstri, hvítu á fótum og ísbláum lit í augum. Hausmynstrin geta verið glámblesa, breiðblesa, hamarblesa, skakkblesa, þráðarblesa, tvístjarna, stórstjarna, jafnvel smástjarna og þar fram eftir götunum. Þau geta jafnvel verið án hvíts hausmynsturs. Stundum eru fætur allir dökkir, en þeir geta einnig verið með hvítu, allt frá hvítum flekk í hófbotni eða undir hófskeggi og upp í hásokka, á einum fæti eða fleirum. Arfblendin slettuskjótt hross geta haft aldökk augu, en vagl í auga, hringur eða ægishjálmur (hvít augnhvíta en ekki brúnleit) eða glasaugu eru algeng. Ýruskjótt Nýjasta skjótta mynstrið í hrossastofninum hér á Íslandi, það sem upp kom með Ellerti frá Baldurshaga 2013, hefur verið nefnt ýruskjótt. Enn sem komið er eru ýruskjóttu einstaklingarnir það fáir að við vitum lítið um hverjir mynsturmöguleikarnir eru á heildina litið, en ef við tökum mið af þeim fimm ýruskjóttu einstaklingum sem til eru í dag lýsir mynstrið sér í háum hvítum sokkum, breiðri blesu, vagli eða hring í augum og ýrðum lit um skrokkinn, þar sem blandast saman hár af dökkum lit og hvítum. Ýringin er sterkari undir kviðinn, en yfirlínan dekkri. Hrossið er því í heildina dekkra ásýndum ofanvert en neðanvert. Eftir á að koma í ljós hvaða möguleika þetta nýja mynstur hefur fram að bjóða eftir því sem einstaklingunum sem það bera fjölgar. Litaþróun alhvítra hrossa Eins og að ofan segir benda ættir alhvítu folanna Als og Lýsings til Alhvíti hesturinn Alur með móður sinni Kolku frá Ártúnum 2017. Kolka er fædd 2012. Hún er ljósmóálótt, vindótt og blesótt. Myndir / Páll Imsland Lýsingur með móður sinni, Draumadís frá Melum, sem fædd er 1998 sem er dökkjörp, glámblesótt, leistótt og hringeyg. Myndir / Páll Imsland Hinn alhvíti og glaseygi Lýsingur 2015. Nú er hann kominn á fjórða vetur og hefur eignast mörg folöld. Alur veturgamall í rigningunni sumarið 2018. Faðir Lýsings, Lykill frá Skjólbrekku, er rauðskjóttur og hringeygur. Faðir Als, Óður frá Ártúnum 2018.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.